Fréttablaðið - 20.01.2005, Blaðsíða 61

Fréttablaðið - 20.01.2005, Blaðsíða 61
FIMMTUDAGUR 20. janúar 2005 Battle Angel Alita er japönsk hasarmyndasaga eftir Yukito Kishiro. Hún gerist á 26. öldinni, þegar jörðin er einn stór rusla- haugur. Á ruslahaugnum dafnar lifandi samfélag manna, vélmenna og sæborga. Í þessum heimi er alls ekki óalgengt að fólk fái sér gervi- handlegg eða gervihaus því að slíkt makeover þykir sjálfsagður hlutur. Þarna þykir það jafnvel óvenjulegt að vera alveg mennsk- ur án nokkura hjálpartækja. Aðalpersónan er stórhættuleg stríðs-sæborg sem lítur út eins og fjórtán ára stúlka. Góðhjartaður vísindamaður finnur hana skemmda og óvirka á haugunum og endurbyggir hana til að ala upp sem dóttur. Hann nefnir hana Alitu. En Alita man ekkert um uppruna sinn og þráir að komast að því hver hún raunverulega er. Sem tökubarni líður henni oft eins og hún eigi hvergi heima, þrátt fyrir góðan fósturföður. Hún er viðkvæm og síhrædd en breytist í grimma og banvæna stríðsskepnu þegar hún neyðist til að berjast fyrir lífi sínu í myrkum öngstræt- um ruslahaugsins. Eins og svo margar manga-sápur er erfitt að leggja þessa frá sér. Alita er ein- staklega tragísk og sæt, og ævin- týri hennar eru full af sprenging- um og hasar með tilheyrandi hraðalínum. En Alita er ekki bara enn eitt sci-fi-unglinga-action-dramað frá Japan. Terminator og Titanic leik- stjórinn James Cameron féll fyrir henni þegar hann las fyrstu þrjár bækurnar og hefur nú ákveðið að gera kvikmynd byggða á þeim. Þar fáum við kynnast „fæðingu“ stúlkunnar, fyrstu ástinni í lífi hennar og þátttöku hennar í æsispennandi ofbeldis-boltaleik (ekki ósvipuðum Rollerball). Hljómar betur en Titanic. Myndin verður nánast öll tölvugerð eins og nýju Star Wars-myndirnar og Alita sjálf verður tölvuteiknuð. En hreyfingar hennar verða leikn- ar af mennskri leikkonu þannig að hún verður soldið svona eins og Gollum. Einnig ber að geta þess að myndin verður í þrívídd. Já, þrívídd. Sjálfur lýsir Cameron myndinni sem sögu um samband föður og dóttur með brjálaðasta hasar sem sést hefur. Hún verður bönnuð innan tólf og full af blóði. En blóðið verður reyndar blátt, því þannig er sko vélmennablóð á litinn. Battle Angel Alita verður frumsýnd árið 2007 en það eru til staflar af Battle Angel Alita-bók- um til aflestrar þangað til. Hugleikur Dagsson Næsti Tortímandi Camerons BATTLE ANGEL ALITA NIÐURSTAÐA: Eins og svo margar manga-sápur er erfitt að leggja þessa frá sér. Alita er einstak- lega tragísk og sæt, og ævintýri hennar eru full af sprengingum og hasar með tilheyrandi hraðalínum. [ MYNDASÖGUR ] UMFJÖLLUN Aðeins 599 kr. 5 690691 2000 08 Lífsreynslusagan • Heilsa • • Matur • Krossgátur 3. tbl. 67. árg., 19. jan úar 2005. Aðeins 599 kr. g•á~t Persónuleikaprófið Þórdís Kjartansdótt ir hjálpar konum sem misst hafa brjó st Eina konan í lýtalækningum Ragnheiður Þórdís Stefáns- dóttir söngkona Losaðu þig við streituna Vikan gefur góð rá ð! Tískan fyrir vetrars portið Íslenskur kokkur í meistarakeppni Hvernig dekra þær við karlana sína? 4 síður a f mér Kynntist ástinni í Kólumbíu! Íslensk stúlka fór í afdrifaríka ungmen naferð 00 Vikan03. tbl.'05-1 7.1.2005 1 3:07 Page 1 Náðu í eintak á næsta sölustað ný og fersk í hverri viku S M Á R A L I N D Sími 517 7007 Náttföt 4490 kr. 1990 kr. Flísgalli 6990 kr. 3990 kr. Áður Nú Þolir ekki Óskarinn sinn Gwyneth Paltrow skammast sín þegar hún sér Óskarsverð- launastyttuna sína því hún minnir hana á stundina þegar hún grét í gegnum þakk- arræðuna sína. Leik- konan fékk Óskarinn fyrir leik sinn í Shakespeare in Love árið 1999. „Ég geymi hana á bak við bókahilluna í svefnherberginu mínu af því að mér finnst óþægilegt að hafa hana fyrir augunum. Ég hafði hana í geymslu í margar vikur og gæti aldrei haft hana uppi á hillu,“ sagði Paltrow. „Af einhverri ástæðu hef ég ekki verið fær um að vera ánægð með hana. Ég skammast mín bara einhvern veg- inn og hún kveikir á óþægilegum tilfinningum. Hún tengist erfiðum hluta af lífi mínu.“ ■ Miðasala á Houdini að hefjast Miðasala hefst í dag á sýninguna The Return of Houdini sem verð- ur frumsýnd í Borgarleikhúsinu í mars. Þetta verður fjölskyldusýn- ing sem sameinar leikhús, sirkus og töfrabrögð. Í sýningunni koma fram tveir af helstu sjónhverfinga- og hverfilistamönnum samtímans, annars vegar Dean Gunnarsson og hins vegar mexíkóski sjón- hverfingamaðurinn Ayala. Dean framkvæmdi einmitt áhættuatriði fyrir almenning í Reiðhöllinni í Víðidal um síðustu helgi. Nefndist það Milli bíls og dauða og vakti mikla athygli. ■ Lýsir yfir sakleysi sínu Rapparinn Young Buck, sem söng í Laugardalshöll í sumar ásamt 50 Cent, hefur lýst yfir sakleysi sínu af ákæru um að hafa stungið mann við afhendingu Vibe-tónlistar- verðlaunanna á síðasta ári. Hinn 23 ára Buck, sem heitir réttu nafni David Darnell Brown, er sakaður um að hafa stungið mann sem hafði slegið læriföður hans, Dr. Dre á hátíðinni. Verði Buck fundinn sekur á hann yfir höfði sér átta ára fangelsisvist. ■ ■ SÝNING DEAN GUNNARSSON Dean Gunnars- son hlekkjaður við bíl í Reiðhöllinni um síðustu helgi. Hann komst undan á síð- ustu stundu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.