Fréttablaðið - 26.01.2005, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 26. janúar 2005
Sjálfstæð hugsun lykilatriði
Stærðfræðibækurnar Geisli eru nýtt námsefni fyrir 5.-7.bekk í
grunnskóla þar sem áhersla er lögð á að nemendur leysi verk-
efnin með sjálfstæðri hugsun fremur en fyrir fram tilgreindum
aðferðum.
Jónína Vala Kristinsdóttir er ein af
höfundum Geisla, en námsefnið
samdi hún ásamt Guðbjörgu Páls-
dóttur, Guðrúnu Angantýsdóttur
og Guðnýju Helgu Gunnarsdóttur.
„Nýja námsskráin sem kom út
árið 1999 var lögð til grundvallar
þessu námsefni, þar sem mikil
áhersla er lögð á að nemendur
skilji þau viðfangsefni sem þeir
fást við og noti sína eigin hugsun,“
segir Jónína Vala. Jafnframt var
stuðst við nýjar rannsóknir á því
hvernig börn læra stærðfræði og
rannsóknir á stærðfræðikennslu
sem nýtist nemendum vel.
„Með þessu nýja námsefni er
áhersla lögð á að börnin skoði fyrst
áður en kennarinn segir þeim til,
þegar þau eru að læra um reikni-
aðgerðirnar,“ segir Jónína Vala og
er þannig hvatt til þess að nemend-
ur leysi dæmin sjálfir á þann hátt
sem þeim er eðlilegur.
„Í ljós hefur komið að það að
kenna eina aðferð hefur heftandi
áhrif á hugsunina. Mikilvægt er að
börnin noti sína eigin hugsun og út-
skýri sjálf þær aðferðir sem þau
nota við reikninginn, en þannig
skapa nemendur sína eigin þekk-
ingu við námið,“ segir Jónína Vala
og bætir því við að hugsun kennar-
ans geti aldrei orðið hugsun nem-
andans.
Jónína Vala segir að í aðalnáms-
skrá fyrir stærðfræði sé meðal
annars kveðið á um tengsl við dag-
legt líf og það sé meðal þess sem
þurfi að hafa í huga við gerð efnis-
ins.
„Við allt stærðfræðinámið þarf
að hafa í huga að verkefnin séu
eitthvað sem börnin þekkja. Að
þau geti tengt námið við eitthvað
sem þau hafa þekkingu á fyrir,
þannig að verkefnin séu ekki í ein-
hverju tómarúmi og séu um eitt-
hvað sem er börnum skiljanlegt,“
segir Jónína Vala. ■
Árlega eru veittir ellefu námsstyrkir til virkra
viðskiptavina Námunnar, námsmannaþjónustu
Landsbankans.
Styrkirnir skiptast þannig:
• 3 styrkir til framhaldsskóla- og iðnnáms á Íslandi,
100.000 kr. hver
• 3 styrkir til háskólanáms á Íslandi (Ba/Bs/Ma/Phd),
200.000 kr. hver
• 3 styrkir til háskólanáms erlendis (Ba/Bs/Ma/Phd),
300.000 kr. hver
• 2 styrkir til listnáms, 200.000 kr. hvor
Í
SL
EN
SK
A
AU
GL
ÝS
IN
GA
ST
OF
AN
/S
IA
.I
S
L
BI
2
69
09
0
1/
20
05
Námsstyrkir til Námufélaga
Umsóknarfrestur vegna úthlutunar námsstyrkja
er til 11. febrúar 2005
Allar nánari upplýsingar
er að finna á
www. landsbanki.is og þar má
einnig nálgast skráningarblað
sem nauðsynlegt er að fylgi
hverri umsókn.
Umsóknum skal skilað í næsta
útibú Landsbankans,
merktum: Námsstyrkir,
Markaðsdeild,
Sölu- og markaðssvið,
Landsbankinn,
Austurstræti 11,
155 Reykjavík.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Á vef Námsgagnastofnunar, http://www.namsgagnastofnun.is/, er að finna gagnlegt
efni fyrir foreldra. Þar er Geislavefurinn sem er um námsefni í stærðfræði fyrir miðstig
grunnskóla, http://www.namsgagnastofnun.is/geisli/geisli.htm, og einnig vefur tengd-
ur námsefninu Einingu sem er fyrir yngsta stigið, http://www.nams.is/eining/ein-
ing.htm
Rúmfræðidæmi úr Geisla 2 sem sýnir
hvernig hægt er að nálgast stærðfræði
á ólíkan máta.
Jónína Vala segir stærðfræðina þurfa að tengjast daglegu lífi.