Fréttablaðið - 26.01.2005, Side 54
26. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
Ég hef nú aldrei
talist til mat-
vands fólks enda
er ég alin upp
þannig að borða
skuli það sem er
á boðstólum,
sama hvort fólki
finnst það gott
eða vont. Mat-
vant fólk þykir mér
líka afskaplega leiðinlegt. Ég
hef því látið flest ofan í mig og van-
ist mörgu sem mér þótti ekki sér-
stakt. Ég borða til dæmis skötu og
finnst hún bara ansi skemmtileg og
athyglisverð á bragðið.
Einu sinni fékk ég meira að
segja úldinn humar á virtu veit-
ingahúsi. Ég brást ekki verr við en
svo að ég sagði: „Neihh en fyndið,
það er svona skötubragð af þessum
humri!“ Móðir mín tjáði mér að
það væri ekkert í lagi að skötu-
bragð væri af humri svo ég fékk
nýjan. Mér finnst samt æðislegt að
fá góðan mat og kann vel að meta
það. En ég borða líka flestan súr-
mat, lifur, rækjur, allan fisk og tek
meira að segja fljótandi lýsi á
hverjum morgni. Mér finnst það
samt ekki gott og það er heljarinn-
ar athöfn að taka lýsið á þann hátt
að ég finni ekki bragðið. Fyrst opna
ég báðar flöskurnar; lýsið og
Frískamínið. Svo helli ég lýsinu í
skeið, held niðri í mér andanum og
gleypi. Þar næst helli ég vítamín-
inu í skeið (held ennþá niðri í mér
andanum) og gleypi það. Vítamínið
er gott á bragðið og eyðir lýsis-
bragðinu. Næst gólpa ég í mig
teslurk til þess að eyða öllu bragð-
inu.
En þó svo að ég geti vanist flest-
öllum mat sem mér þykir ekki góð-
ur fyrst er eitt fyrirbrigði sem ég
neita að samþykkja sem mat. Það
er brauðsúpa. Hvað í ósköpunum??
Ógeðslegur brauðgrautur sem fólk
setur rúsínur og rjóma út í. Uss!
Sko, ef um er að ræða manneskju
sem á ENGAN mat nema gamlar
brauðskorpur sem eru of harðar til
þess að borða með smjeri og
áleggi, þá fyrst er kannski í lagi að
sjóða vatn og leysa brauðið upp í
vatninu og búa til súpu. Annars er
það bara alls ekkert í lagi og ekki
mönnum bjóðandi! ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
BORGHILDUR GUNNARSDÓTTIR GETUR BORÐAÐ FLESTALLAN MAT
Engan brauðgraut takk!
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Laugardaginn 29. janúar kl.20:00
Borgarleikhúsið
Verð 2100 kr.
Midasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
www.borgarleikhus.is
FRIÐRIK ÞÓR FRIÐR
IKSSON SEGIR FRÁ
GJALDÞROTI
ÍSLENSKU KVIKMY
NDASAMSTEYPUNN
AR OG HVAR
HONUM MISTÓKST.
HANN LÝSIR ÁRÁS
INNI Á
ÖLSTOFUNNI ÞAR S
EM VITNUM VAR ÓG
NAÐ.
LÍFRÓÐUR
LEIKSTJÓRANS
TENÓRINN SEM VIL
DI
HEIMSFRÆGÐ
NÆRMYND AF KRIS
TJÁNI JÓHANNSSYN
I
MÓÐIR BERST VIÐ
MND Á LOKASTIGI
SÉRBLAÐ UM HEILSU
EINKAVIÐTAL ÞÓRA
Í ATLANTA FLUGRÍ
K OG FRJÁLS
Janúar 2005 01. tbl. 22.
árg. 899 kr. m.vsk.
á
899
kr
m
vsk
M
ANNLÍF
MANNLÍF á nýju ári
UPPSELT
HJÁ ÚTGEFAND
A
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Það verður
fínt að byrja
að vinna á ný!
Ég trúi
því vel!
Árið hefur verið
svo fljótt að líða!
Þetta ár síðan
stelpan kom í
heiminn hefur
runnið í eitt!
Vissulega, en þú hefur
gott af því að komast út
á vinnumarkaðinn á ný í
staðinn fyrir að liggja í
leti hérna heima!
Ég veit! Þess vegna
notaði ég koddann!
Mér finnst
hún meiri-
háttar flott.
Hæ, Palli.
Ég var að
kaupa skyrtu
handa þér.
Takk,
mamma …
Það er
kominn
tími til að
fara.
Það er
erfitt að
kveðja … Bles
s! Gamli vin!
Bless
Jæja, ég ætti kannski að
njóta þess meðan ég get!
Klukkan er hálfátta á
laugardagsmorgni og það er
enn kyrrð og ró í húsinu.
Þetta er
skrýtið!
Hvað?
Engir háværir krakkar…
engar teiknimyndir á hæsta
styrk í sjónvarpinu …
Vertu snöggur
að því!
Bless!
Ahh...ég var að.....grínast.