Fréttablaðið - 26.01.2005, Side 56
Á tónleikum Stórsveitar
Reykjavíkur í kvöld verður
flutt svíta í þremur þáttum,
byggð á íslenskum þjóðlög-
um, eftir stjórnanda tónleik-
anna, Eero Koivistoinen.
Stórsveit Reykjavíkur heldur sína
fyrstu tónleika á þessu ári í Ráð-
húsi Reykjavíkur í kvöld klukkan
20.00. Stjórnandi á tónleikunum
verður einn fremsti djasstónlist-
armaður Finna um langt árabil,
Eero Koivistoinen, sem einnig
mun koma fram sem einleikari á
tenórsaxófón.
Á tónleikunum verða ný og
eldri verk eftir Koivistoinen, auk
útsetninga hans af verkum ann-
arra. Meað annars verður flutt
nýtt verk Koivistoinens, Tvísöng-
ur, en það er svíta í þremur þátt-
um, byggð á íslenskum þjóðlög-
um. Koivistoinen hefur, meðal
annars, samið mikið fyrir Stór-
sveit finnska ríkisútvarpsins og
margsinnis stýrt þeirri hljóm-
sveit en hún telst með fremstu
stórsveitum Evrópu. Þekktastur
er Koivistoinen þó sem leiðandi
saxófónleikari Finna síðustu ára-
tugi. Hann er leitandi tónlistar-
maður sem hefur reynt fyrir sér í
ýmsum stílbrigðum djasstónlistar
á löngum ferli og því ekki lítið
forvitnilegt að fá að heyra hvern-
ig hann vinnur úr íslensku þjóð-
lögunum.
Stórsveitin er einn af föstu
punktunum í tilverunni, heldur að
jafnaði sex tónleika í Ráðhúsinu á
hverjum vetri – en sem fyrr segir
eru tónleikarnir í dag fyrstu tón-
leikarnir á nýju almanaksári. Sig-
urður Flosason, forsvarsmaður
Stórsveitarinnar, segir mikinn
feng að því að fá Koivistoinen til
liðs við hana. „Þetta er einn af
fremstu djasstónlistarmönnum
Finna og hefur verið um áratuga-
skeið. Hann hefur samið mjög svo
áhugavert verk fyrir sveitina,
svítu, og það er í fyrsta sinn sem
slíkt heyrist í stórbandaformi.“
Sigurður segir Stórsveitina
þegar byrjaða að safna í disk sem
hún ætlar að vinna með ýmsum
stjórnendum. „Við vinnum aðal-
lega með erlendum stjórnendum,“
segir hann. „Við fáum nokkra
slíka til okkar á hverju ári og
erum byrjaðir á þeirri nýbreytni
að taka upp nokkur lög með hverj-
um þeirra. Við stefnum að útgáfu
á diski innan tveggja ára – og þá
með alvarlegri tónlist. Við höfum
gefið út disk með tónlist í léttari
kantinum og nú er komið að þeim
alvarlegri.“
Stórsveitin hefur starfað í
fimmtán ár og Ráðhústónleikar
hennar verið starfræktir stærst-
an hluta þess tíma. Þegar Sigurð-
ur er spurður hvað einkenni tón-
listina sem flutt verður í kvöld,
segir hann:
„Ætli við getum ekki sagt að
það sé persónuleiki höfundarins
og norrænt yfirbragð, en þó um
leið alþjóðlegt. Það er dálítið and-
lega stutt á milli Finna og Íslend-
inga sem sést best í því að eftir að
Koivistoinen sá nótur að íslensku
þjóðlögunum á bók, skynjaði hann
mjög vel eðli og kjarna tónlistar-
innar. ■
26. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
EKKI MISSA AF…
Regnhlífunum í New York,
bókaþætti Þorsteins J. klukkan
21.15 í sjónvarpinu, þar sem
hann skoðar bókaheiminn, segir
nýjustu fréttir og spjallar við gesti
um bækur á náttborðum heims-
ins...
Á skurðarborði augans, sýn-
ingu Valgerðar Guðlaugsdóttur í
Listasafni ASÍ við Freyjugötu. Á
sýningunni kryfur Valgerður kven-
líkamann og sundrar honum í
smáar einingar sem mynda síðan
einar og sér nýtt sjónarhorn á
kvenímyndina...
Hauststarf Heimilisiðnaðarfélagsins var
með miklum ágætum í haust og var áber-
andi mikil aðsókn í þjóðbúningasaumi.
Einnig komust færri að en vildu í mynd-
vefnað og þæfingu. Starfsemin er nú að
hefjast að nýju og er óhætt að segja að
þar kenni margra áhugaverðra grasa. Má
þar nefna baldýringu, dúkaprjón, eld-
smíði, faldabúning og skautbúning,
hekl, hnífagerð, íleppa, jurtalitun, knipl,
körfugerð, myndvefnað, möttulsaum,
orkeringu, spjaldvefnað, tóvinnu, víra-
virki, alls kyns útsaum, þjóðbúninga
kvenna og karla og flestar tegundir
þæfingar.
Einnig eru ýmsir fyrirlestrar og námskeið á
döfinni. Laugardaginn, 29. janúar klukkan
10.00 fjallar Elínbjört Jónsdóttir um
baldýringu í Hornstofu. Á sama stað fjallar
Ríkey Kristjánsdóttir um íslenskar út-
saumsgerðir 11. febrúar klukkan 20.00 og
heldur síðan helgarnámskeið í útsaumi
laugardaginn 12. febrúar og sunnudaginn
13. febrúar. Námskeiðin verða tvö, annars
vegar fyrir byrjendur, hins vegar fyrir lengra
komna. Fyrir þá sem skoðað hafa hið ein-
staka heimilisiðnaðarsafn á Blönduósi, eru
námskeið Heimilisiðnaðarfélagsins kjörinn
vettvangur til þess að kynnast listaverkum
íslenskra kvenna nánar.
Handverkshefðir vinsælar
TÓNLEIKAR Í HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 27. JANÚAR KL. 19.30
Verk fyrir flautu og hljómsveit eftir Mozart og Carl Nielsen
Sönglög og óperuaríur eftir Mahler, Bizet og Rossini
Hljómsveitarstjóri ::: Bernharður Wilkinson
Einleikari ::: Hafdís Vigfúsdóttir, flauta
Einsöngvari ::: Sólveig Samúelsdóttir, mezzósópran
Miðasala í síma 545 2500 I www.sinfonia.is
Ungt
listafólk
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
Miðasölusími 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga,
10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudaga
STÓRA SVIÐ
HÍBÝLI VINDANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar á vesturfara-
sögu Böðvars Guðmundssonar
Fim 27/1 kl 20, Lau 29/1 kl 20 - UPPSELT
Su 30/1 kl 20, Lau 5/2 kl. 20 - UPPSELT,
Sun 6/2 kl 20, Fi 10/2 kl 20 - UPPSELT,
Fö 11/2 kl 20 - UPPSELT,
Lau 12/2 kl 20 - UPPSELT, Fi 17/2 kl 20,
Fö 18/2 kl 20 - UPPSELT, Lau 19/2 kl 20
HÉRI HÉRASON
e. Coline Serreau
Fö 28/1 kl 20, Fö 4/2 kl 20, Su 13/2 kl 20
Síðustu sýningar
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astrid Lindgren Su 30/1 kl 14,
Su 6/2 kl 14, Su 13/2 kl 14 Síðustu sýningar
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ
VIÐ ERUM ÖLL MARLENE
DIETRICH FOR
e. Ernu Ómarsdóttur og Emil Hrvatin
Aðalæfing Fi 3/2 kl 20 - kr. 1.000
Frumsýning Fö 4/2 kl 20 - UPPSELT
Hátíðarsýning Su 6/2 kl 20
Mi 9/2 kl 20, Fi 10/2 kl 20,
Fö 11/2 - Lokasýning
BELGÍSKA KONGÓ
e. Braga Ólafsson, Gríman fyrir besta leik í
aðalhlutverki
Su 30/1 kl 20, Lau 5/2 kl 20 - UPPSELT,
Lau 12/2 kl 20, Su 13/2 kl 20
Sýningum lýkur í febrúar
AUSA eftir Lee Hall
Í samstarfi við LA. Lau 29/1 kl 20, Su 6/2 kl 20,
Fö 11/2 kl 20 Ath: Miðaverð kr. 1.500
SVIK
eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA
Fö 4/2 kl 20, Su 13/2 kl 20
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson. Í samstarfi við TÓBÍAS.
Fi 27/1 kl 20, Su 30/1 kl 20, Fi 3/2 kl 20,
Lau 5/2 kl 20 Ath: Bönnuð yngri en 12 ára.
BOUGEZ PAS BOUGER
Frönsk - japönsk nýsirkussýning
Lau 29/1 kl 20 - kr. 2.100
Aðeins þessi eina sýning
Börn 12 ára og yngri fá frítt
í Borgarleikhúsið í fylgd
fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
NÁMSKEIÐ UM VESTURFARNA
HEFST Í BORGARLEIKHÚSINU
2. FEBRÚAR
Kennarar: Viðar Hreinsson, 2/2 Upp-
haf vesturferða Gísli Sigurðsson, 9/2
Sagnalist Vestur Íslendinga Helga
Ögmundardóttir, 16/2 Lífskjör og að-
stæður frumbyggjanna Böðvar Guð-
mundsson, 23/2 Bréfin frá Vestur-Ís-
lendingum. Skráning hjá Mími Sí-
menntun á www.mimi.is eða í síma
5801800. Þátttakendum verður boðið
á sýningu á Híbýlum vindanna
2. sýning 13.feb. kl. 19.00 – 3. sýning 18.feb. kl 20.00
4. sýning 20. feb. kl. 19.00 – 5. sýning 25. febrúar kl. 20.00
6. sýning 27. febrúar kl. 19.00 – 7. sýning 4. mars kl. 20.00
8. sýning 6. mars kl. 19.00 – 9. sýning 12. mars kl. 19.00
Miðasala á netinu: www. opera.is
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
Banki allra landsmanna
Frumsýning 11. febrúar kl. 20 – UPPSELT
STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR Safnar í disk sem hún ætlar að vinna með ýmsum stjórnendum.
Svíta í stórsveitarformi
EERO KOIVISOINEN Þekktasti saxófón-
leikari Finna.