Fréttablaðið - 05.02.2005, Síða 4

Fréttablaðið - 05.02.2005, Síða 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 62,42 62,72 117,59 118,17 80,90 81,36 10,88 10,93 9,75 9,81 8,90 8,95 0,60 0,60 94,62 95,18 GENGI GJALDMIÐLA 05.02.2005 GENGIÐ Heimild: Seðlabanki Íslands SALA 111,45 +0,67% 4 5. febrúar 2005 LAUGARDAGUR Sorpa lokaði í Grafarvogi um áramót: 40 milljónir sparast SPARNAÐUR „Þetta var einfaldlega sparnaðarráðstöfun. Það var krafa sveitarfélaganna sem eiga og reka Sorpu að draga úr kostn- aði við þessa þjónustu,“ segir Ög- mundur Einarsson, framkvæmda- stjóri Sorpu, en endurvinnslustöð- inni í Bæjarflöt í Grafarvogi var lokað um áramót. Hann segir að talið sé að fjöru- tíu milljónir króna sparist á ári við að loka stöðinni en árlegur rekstrarkostnaður allra endur- vinnslustöðvanna er 320 milljónir. Ólafur F. Magnússon, borgar- fulltrúi F-lista spurði um ástæðu lokunar Grafarvogsstöðvarinnar á borgarráðsfundi á fimmtudag. Hún er sumsé peningar. „Þetta var samdómaálit allra stjórnar- manna,“ segir Ögmundur og við- urkennir að sér hafi þótt óljúft að loka. „En ég varð að fara eftir fyrirmælum.“ Næsta endurvinnslustöð er á Sævarhöfða og þangað hafa Grafarvogsbúar farið með drasl sitt og dót. Nálægð stöðvanna tveggja réð mestu um að ákveðið var að loka í Bæjarflötinni en ekki annars staðar. Og Ögmundur framkvæmda- stjóri hefur ekki farið varhluta af óánægju. „Ég hef heyrt fullt af óánægjuröddum,“ segir hann. „Hins vegar var merkilegt með þessa stöð í Grafarvogi að hún stækkaði ekki í magni eða heimsóknarfjölda í líkingu við hverfið.“ - bþs Hálfur milljarður í landnámsbæinn Oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn gagnrýnir það sem hann kallar gríðarlega mikinn kostnað borgarinnar vegna landnámsskálans í Aðalstræti. Borgarstjóri segir kostnaðinn vera í samræmi við áætlanir. BORGARMÁL Kostnaður Reykjavík- urborgar vegna landnámsbæjar- ins við Aðalstræti er kominn í rúmlega 320 milljónir króna. Í bréfi innri endurskoðunardeildar sem lagt var fyrir borgarráð kemur fram að á þessu ári og því næsta verði lagðar 207 milljónir króna til viðbótar í landnáms- bæinn. Heildarkostnaður borgar- innar vegna landnámsbæjarins verður því vel yfir hálfan milljarð króna. „Mér finnst þetta gríðarlega mikill kostnaður við þennan skála,“ segir Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, oddviti sjálfstæðis- manna í borgarstjórn. „Síðan á eftir að reka þetta og kostnaður- inn á því bara eftir að aukast. Ég er ekki viss um að þeir sem byggðu þennan bæ á landnáms- tímanum hafi gert ráð fyrir því að borgarsjóður Reykjavíkur ætti eftir að verða fyrir þvílíkum búsifjum vegna hans á 21. öld- inni.“ Í desember seldi borgin fyrir- tækinu Stoðum sýningarskálann, sem verður í kjallara hótelsins sem verið er að byggja við Aðal- stræti, fyrir 160 milljónir króna. Borgin gerði samning við Stoðir um að leigja kjallarann. Samning- urinn er til 25 ára og greiðir borg- in 1,7 milljónir króna í leigu á mánuði eða samtals 510 milljónir á 25 árum. Vilhjálmur Þ. segir s a m n i n g i n n ó h a g s t æ ð a n fyrir borgina. Borgin fái vissulega pen- inginn núna en greiði hann allan til baka og vel rúmlega það. Vilhjálmur Þ. segir að forn- leifarnar þurfi náttúrlega ákveðna umgjörð. Kostnaðurinn sé samt kominn fram úr öllu hófi og það lýsi ekki góðri fjármálastjórn. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir að rústirnar séu umfangsmiklar og kostnaður vegna fornleifarannsókna sé al- mennt mjög mikill. Hún vísar hins vegar gagnrýni Vilhjálms Þ. til föðurhúsanna því heildarkostn- aður borgarinnar vegna land- námsbæjarins sé í fullu samræmi við áætlanir. Þá segir hún samn- inginn við Stoðir vera hagstæðan. Ákveðin hagkvæmni sé fólgin í því að sama fyrirtækið eigi bæði hótelið og sýningar- skálann. Borgin muni einnig koma til með að spara fjármuni því Stoð- ir muni sjá um viðhald skálans. trausti@frettabladid.is Hálka á Norðurlandi: Bílvelta á Dalvík LÖGREGLUMÁL Ökumaður slapp ómeiddur þegar bíll hans valt rétt sunnan við Dalvík á áttunda tím- anum í gærmorgun. Að sögn lög- reglunnar á Dalvík var mikil hálka á veginum og missti öku- maðurinn stjórn á bílnum með fyrrgreindum afleiðingum. Maðurinn var fluttur á heilsu- gæslustöðina á Dalvík þar sem hugað var að honum en hann reyndist lítið sem ekkert meiddur. Bíllinn er hins vegar mikið skemmdur og talinn óökufær. Hann var dreginn af vettvangi skömmu eftir að óhappið átti sér stað. -bs Veðrið í ársbyrjun: Dyntóttur janúar VEÐURFAR Illviðri voru tíðari og snjór meiri í janúarmánuði en verið hefur á sama tíma undanfarin ár samkvæmt upplýsingum frá Veður- stofu Íslands. Síðasta vika mánaðar- ins var hins vegar mjög hlý og leysti snjó af láglendi og upp með fjöllum. Hæsti hiti mældist á Teigarhorni og var 18 gráður 30. janúar, en mest mældist frost við Auðkúluheiði og var 23,9 stig 2. janúar. Meðalhiti í Reykjavík var -0,2 stig sem er 0,3 gráðum yfir meðallagi en á Akur- eyri var meðalhiti -0,6 stig sem er 1,6 gráðum yfir meðallagi. Sólskins- stundir voru nærri meðallagi bæði í Reykjavík og á Akureyri. - bs FUNDAÐ UM REGLUGERÐINA Drög að reglugerð um atvinnu- réttindi útlendinga eru á loka- stigi. Búist er við að fulltrúi fé- lagsmálaráðuneytisins eigi fund með fulltrúum Samtaka atvinnu- lífsins og verkalýðshreyfingar- innar á næstunni og verði að hon- um loknum reynt að ná sátt um reglugerðina. Að því búnu verður hún gefin út. Banaði dóttur sinni: Áfram á Sogni DÓMSMÁL Móðirin sem varð ellefu ára dóttur sinni að bana og særði son sinn á Hagamel í lok maí í fyrra er gert að sæta áfram öryggisgæslu á réttargeðdeildinni að Sogni. Hún er ekki talin sakhæf og segir í áliti geðlæknis að hún hafi verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum þegar hún framdi verknaðinn. Móðurinni var einnig gert að greiða syni sínum eina og hálfa milljón króna í miskabætur en hún stakk hann sex sinnum áður en hann náði að forða sér út af heimilinu og leita sér hjálpar. - hrs TEKIÐ TIL EFTIR ÁRÁS Vopnaðir menn réðust á mosku sjía- múslima í Bagdad og skemmdu hana með sprengjum. Írösku kosningarnar: Mikið fylgi lista sjía ÍRAK, AP Sameinaða íraska banda- lagið hefur mikið forskot á önnur framboð í írösku kosning- unum samkvæmt þeim tölum sem hafa verið birtar. 3,3 millj- ónir atkvæða hafa verið taldar úr tíu héruðum þar sem sjía- múslimar eru fjölmennir. Sameinaða íraska bandalagið, listinn sem komið var saman að frumkvæði hins áhrifamikla sjía-klerks Ali al-Sistani, fékk 2,2 milljónir þeirra 3,3 milljóna atkvæða sem hafa verið talin. Næst kemur Íraski listinn, framboð Iyad Allawi forsætis- ráðherra og félaga hans, með tæplega 600 þúsund atkvæði. ■ ■ ATVINNUMÁL Höfðabakka 1 - sími 587 50 70 OPIÐ Í DAG 10-14.30 Stór humar Opið laugardaga 10-14:30 FLOKKUM OG SKILUM Grafarvogsbúar þurfa nú að fara í Sævar- höfða með dót til endurvinnslu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M AÐALSTRÆTI Sýningarskálinn verður í kjallara hótelsins sem verið er að byggja á horni Túngötu og Aðalstrætis VILHJÁLMUR Þ. „Mér finnst þetta gríðarlega mikill kostnaður.“ STEINUNN VALDÍS Vísar gagnrýni Vilhjálms Þ. til föðurhúsanna. ■ EVRÓPA SKÓLARÚTA Í ÁREKSTRI Tveir full- orðnir létust og 23 börn slösuðust í árekstri á ísilögðum vegi í vestur- hluta Þýskalands. Þeir sem létust voru í bíl sem rakst á skólarútu. Tvö barnanna voru hættulega slös- uð en flest voru með beinbrot eða skrámur að sögn lögreglu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.