Fréttablaðið - 05.02.2005, Blaðsíða 8
5. febrúar 2005 LAUGARDAGUR
Magnús Þór Hafsteinsson, þingflokksformaður
Frjálslynda flokksins:
Lánadrottnum Máka
bjargað af yfirvöldum
ALÞINGI Iðnaðarráðuneytið lagði til
35 milljónir króna til að ljúka fisk-
eldi Máka á Sauðárkróki sem varð
gjaldþrota árið 2002. Milljónirnar
voru hluti söluhagnaðar af Stein-
ullarverksmiðjunni á Sauðár-
króki.
Magnús Þór Hafsteinsson,
þingflokksformaður Frjálslynda
flokksins, telur fjárveitinguna
óeðlilega þar sem sýnt hafi verið
að eldi fisktegundarinnar barra
væri ekki arðbært hér á landi.
„Ég hef ákveðnar grunsemdir
um að á ferðinni hafi verið ein-
hverskonar björgunaraðgerð til
að forða lánadrottnum frá tapi.“
Í svari Valgerðar Sverrisdóttur
iðnaðarráðherra við fyrirspurn
Magnúsar á Alþingi stendur að
ríkisstjórnin hafi samþykkt að
hlutur ríkisins yrði seldur og
helmingi söluhagnaðar verk-
smiðjunnar, 105 milljónum, varið
til samgöngubóta og uppbygging-
ar í sveitarfélögum sem áttu veru-
legra hagsmuna að gæta.
Magnús segir milljónirnar 35
ekki hafa farið í uppbyggingu.
Hann hyggist fylgja málinu eftir á
Alþingi.
Ekki náðist í iðnaðarráðherra.
- gag
Landspítali-háskólasjúkrahús:
Enn álag vegna flensunnar
HEILBRIGÐISMÁL Enn er talsvert
álag á Landspítala-háskólasjúkra-
húsi vegna inflúensunnar sem
geisað hefur hér á landi undan-
farnar vikur, að sögn Guðlaugar
Rakelar Guðjónsdóttur sviðs-
stjóra á lyflækningasviði.
„Við höfum ekki þurft að opna
aðrar deildir eins og við þurftum
að gera á tímabili,“ sagði Guðlaug
Rakel. „En það er búið að vera
mikið álag og fólk er að koma og
leggjast inn daglega vegna afleið-
inga flensunnar. Það er sérstak-
lega fullorðið fólk sem fær fylgi-
kvilla, svo sem lungnabólgu.“
Guðlaug Rakel sagði að starfs-
fólkið á spítalanum hefði einnig
verið að veikjast og það gerði
einnig erfitt fyrir.
„Það hafa verið töluverð veik-
indi á starfsfólkinu, en toppnum á
því virðist náð, alveg eins og er að
gerast úti í bæ. Þetta endurspegl-
ar náttúrlega stöðuna, því við
erum öll í einu samfélagi. Það er
enginn vafi, að flensan er í rénun,
en hún er þó ekki búin enn.“
- jss
Vill sérdeild fyrir
yngstu fangana
Ungir fangar koma hættulegri úr fangelsum en þeir voru þegar þeir
fóru inn, segir Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður. Hann vill sérdeild
fyrir fanga á aldrinum 18 til 24 ára í nýju fangelsi.
FANGELSISMÁL Tilgangurinn með
þingsályktunartillögu um sérdeild
fyrir fanga á aldrinum 18 til 24
ára í fyrirhuguðu fangelsi á
Hólmsheiði er að auka möguleika
á betrun ungra fanga, að sögn
Ágústs Ólafs Ágústssonar fyrsta
flutningsmanns tillögunnar.
„Fangar koma hættulegri út en
þeir voru þegar þeir fóru inn,“
segir hann.
„Það hefur ekki góð áhrif, að
mínu mati, að blanda saman ung-
um og óreyndum saman við hina
eldri og forhertari,“ segir Ágúst
Ólafur og vísar í rannsókn Helga
Gunnlaugssonar prófessors í fé-
lagsfræði. „Þar kemur fram að
hlutfall þeirra sem lenda aftur í
kasti við lögin eftir að þeir losna
úr fangelsi er hærra hér á landi
en víðast annars staðar. Þetta
hlutfall fer hækkandi eftir því
sem aldursflokkurinn er yngri.
Þar kemur með-
al annars fram
sú niðurstaða
að 37 prósent
þeirra sem luku
fangavist voru
fangelsuð á ný,
44 prósent voru
dæmd á ný og
um 73 prósent
þeirra sem luku
f a n g a v i s t
þurftu afskipti
lögreglunnar á
ný innan fimm
ára frá því að
afbrotamenn-
irnir luku afplánun. Ítrekunar-
tíðnin var enn hærri í yngri
aldursflokkum.“
Ágúst Ólafur sagði aldurinn
ekki vera algildan mælikvarða.
Hins vegar ætti almennt að taka
tillit til ungs aldurs. Fyrirhuguð
bygging nýs fangelsis gæti veitt
einstakt tækifæri til að gera ráð
fyrir sérstakri deild fyrir unga
fanga. Í umræðum um nýja fang-
elsið hefði hins vegar komið fram
að ekki hefur verið gert ráð fyrir
slíkri sérdeild.
„Samkvæmt upplýsingum sem
fengist hafa frá Fangelsismála-
stofnun er bygging nýja fangels-
isins nú í biðstöðu þar sem ekki er
gert ráð fyrir fé til þess í fjárlaga-
frumvarpi fyrir árið 2005,“ sagði
Ágúst Ólafur. „Það er því enn
tækifæri til að gera ráð fyrir sér-
deild fyrir unga fanga á aldrinum
18 til 24 ára. Ef ekki er hægt að
gera ráð fyrir sérdeild fyrir unga
fanga í nýja fangelsinu eða bygg-
ing þess frestast verulega teljum
við, flutningsmenn tillögunnar, að
breytingar á núverandi fangels-
um séu nauðsynlegar í því skyni.“
jss@frettabladid.is
■ ASÍA
BLÓÐUGAR KOSNINGAR Tíu
létust í tveimur árásum á kjör-
staði í Bihar og Jharkhand, ríkj-
um Indlands. Níu lögreglumenn
og einn kjósandi létust í árás
maóískra uppreisnarmanna.
Annars staðar í Bihar skutu lög-
reglumenn á mannfjölda, tvær
konur létust og drengur á tán-
ingsaldri særðist.
LANDSPÍTALI
Enn er fólk að leggjast inn vegna afleið-
inga flensunnar.
MAGNÚS ÞÓR HAFSTEINSSON
Segir ólykt af máli Máka og Sægulls á
Sauðárkróki.
ÁGÚST ÓLAFUR
ÁGÚSTSSON
Vill sérdeild fyrir
unga fanga í nýju
fangelsi.
LITLA-HRAUN
Á Litla-Hrauni afplána ungir og
eldri afbrotamenn refsingar