Fréttablaðið - 05.02.2005, Blaðsíða 46
Hörður Ágústsson listamað-
ur segist hafa þurft að vera
gagnrýninn á sjálfan sig þeg-
ar hann stúderaði myndlist
hér heima á stríðsárunum.
Sýning á verkum Harðar Ágústs-
sonar stendur nú yfir í vestursal
Kjarvalsstaða. Hörður er fyrir
löngu orðinn kunnur sem einn af
fremstu listamönnum þjóðarinnar.
Á ferli sem spannar meira en hálfa
öld hefur hann skilað margföldu
lífsstarfi sem myndlistarmaður,
hönnuður, kennari, gagnrýnandi,
rithöfundur, fræðimaður á sviði
sjónvísinda og brautryðjandi í rann-
sóknum á íslenskri húsagerðarsögu.
Síðast en ekki síst er hann einn
helsti baráttu- og hugsjónamaður á
sviði íslenskra sjónlista, talsmaður
þess að umbúnaðurinn sem slíkur
eigi sér innihald og að mennt og
menningararfur forms og lita sé
engu síðri en orðsins list.
Á sýningunni er leitast við að
varpa ljósi á framlag Harðar
Ágústssonar á sviði myndlistar,
hönnunar og byggingarlistar og
hvernig hinir ólíku þættir fléttast
saman í einstæðu lífsverki, þar sem
enginn þeirra verður skilinn án vit-
undar um hina.
Hörður segist mjög sáttur við
uppsetninguna á sýningunni. Hún
spannar tímabilið frá 1941 til dags-
ins í dag – en Hörður varð 83 ára 4.
febrúar.
Ekki segist Hörður eiga neitt
uppáhaldsverk á sýningunni. „Þetta
er eins og að eiga mörg börn,“ segir
hann. Maður hefur sama álit á þeim
öllum. Sérstöðu listsköpunar sinnar
segir Hörður mega rekja aftur til
þess tíma sem hann var beðinn um
að kenna formfræði. „Ég fór að
rannsaka hvað væri formfræði.
Guðmundur Finnbogason hafði
skrifað rit, óþekkt og mjög merki-
legt, þar sem hann rannsakar og
spyr sjálfan sig og aðra að því hvers
vegna sum form séu merkileg og
ómerkileg. Ég fór að spyrja mig að
því sama í samvinnu við mína nem-
endur og upp úr því varð til hinn
formræni hlutur sýningarinnar til.
En það var svo mikið verk að mála
ferhyrninga, þríhyrninga og hringa
að mér leist ekki á blikuna. En svo
varð mér gengið framhjá Málaran-
um einn daginn og sá þar límbands-
rúllur. Ég hugsaði með mér að þetta
væri einmitt það sem vantar í form-
fræðina og litafræðina og keypti
rúllur í mismunandi litum. Þetta hef
ég notað fram til dagsins í dag.“
Áhugi Harðar á arkitektúr hefur
átt stóran þátt í því að vekja Íslend-
inga til vitundar um íslenska bygg-
ingarlist. „Ég hef nú sagt við vini
mína að ég hafi ætlað að vera lista-
maður fyrir hádegi og arkitekt
eftir hádegi. Ég stefndi að því þeg-
ar ég var ungur að verða arkitekt.
En stríðið kom í veg fyrir það, lok-
aði fyrir samgöngur til meginlands-
ins og norðurlandanna – og til
Bandaríkjanna vildi ég ekki fara.
Ég fékk lánað lítið herbergi í kjall-
ara á Laufásvegi og setti upp skóla
fyrir sjálfan mig. Það eina góða við
stríðið var að þá opnaðist markaður
fyrir listaverkabækur frá Banda-
ríkjunum. Í gegnum þær kynntist
ég módernismanum sem kom sér
vel þegar ég fór til Parísar. Ég hef
alltaf litið svo á að ég hafi verið
minn eigin kennari – vegna þess að
þegar ég bar verk mín saman við
þau sem voru í listaverkabókunum,
þurfti ég að vera gagnrýninn á
sjálfan mig.
42 5. febrúar 2005 LAUGARDAGUR
EKKI MISSA AF…
… Gítar-
tónleikum
Péturs Jón-
assonar á
Myrkum
músíkdög-
um í Lista-
safni
Reykjavíkur
– Hafnarhúsi á morgun klukkan
15.00. Pétur leikur verk eftir
Svein Lúðvík Björnsson, Jónas
Tómasson, Huga Guðmunds-
son, Per Nörgaard, Einojuhani
Rautavaara og Anders Nilsson.
… Allra síðustu sýningu á hinu
sprellfjöruga og fyndna verki,
Faðir vor, í Iðnó annað kvöld.
…Heimildarmynd um Ragnar í
Smára í sjónvarpinu annað kvöld.
Skökk staða nútímatónlistar í dag er um-
ræðuefni á málþingi og í pallborðsumræð-
um Tónskáldafélags Íslands sem haldin
verða í Norræna húsinu í dag klukkan
13.00.
Þátttakendur eru Sten Melin formaður
Sænska tónskáldafélagsins, Anders Beyer
ritstjóri Nordic Sounds/ NOMUS, Patrick
Kosk tónskáld frá Finnlandi og Kolbeinn
Bjarnason flautuleikari CAPUT. Fundarstjóri
er Bjarki Sveinbjörnsson
Rætt verður um tónlist á hátíðum – einlitt
efnisval út frá forneskjulegum fagurfræði-
legum forsendum, áhrif mennturnar á tón-
sköpun í dag og spurt hvort úreltar tón-
smíðakennsluaðferðir í skólum séu að tak-
marka tónsköpun í dag.
Einnig verður rætt um tónlist á geisladisk-
um og í útvarpi, þar sem spurt er hvort
markaðsþenkjandi útsendingarstjórar og út-
gáfustjórar séu að úthýsa framsækinni nú-
tímatónlist.
Umræðurnar fara fram á skandinavísku og
verða hljóðritaðar af RÚV til flutnings á
norrænum vettvangi.
Kl. 22.00
Raftónleikar – fjölvíðir og fjölbreyttir í
Salnum Kópavogi. Leikin verða verk eft-
ir Hilmar Þórðarson, Ríkharð H. Frið-
riksson, Camillu Söderberg, Harald
Sveinbjörnsson og Úlfar Inga Haralds-
son.
menning@frettabladid.is
Málþing tónskáldanna
Birgitta og Jónsi
í Ávaxtakörfunni
HÖRÐUR ÁGÚSTSSON Myndlistarmaður, hönnuður, kennari, gagnrýnandi, rithöfundur,
fræðimaður á sviði sjónvísinda og brautryðjandi í rannsóknum á íslenskri húsagerðarsögu.
Söngleikurinn vinsæli, Ávaxta-
karfan, verður frumsýndur á
morgun með nýjum leikendahóp
þar sem Birgitta Haukdal leikur
hina réttsýnu Geddu gulrót og
Jónsi er kominn í hlutverk Imma
ananas, sem vill verða konungur
ávaxtanna.
„Nú eru bráðum liðin sjö ár
síðan þetta var sýnt síðast og nýir
áhorfendur komnir í heiminn,“
segir Kristlaug María Sigurðar-
dóttir, annar tveggja höfunda
Ávaxtakörfunnar. Hún gerði text-
ann en Þorvaldur Þorvaldsson
samdi lögin.
„Við Þorvaldur höfum orðið
vör við mikla eftirspurn. Fólk
hefur hringt í okkur og spurt
hvenær við ætlum að setja þetta
upp aftur eða hvort við ætlum
ekki að gera framhald.“
Eins og margir muna gerist
þessi söngleikur í ávaxtakörfu
þar sem Mæja litla jarðarber
verður fyrir stanslausu einelti
meðan Immi ananas býr sig undir
að verða krýndur konungur
ávaxtanna.
„Þetta er náttúrlega hápóli-
tískur söngleikur þar sem ekkert
er verið að skafa utan af hlutun-
um, og krökkunum finnst það
ágætt. Þau þekkja alveg einelti og
eru voða glöð að geta talað hreint
út um það.“
Selma Björnsdóttir, sem var í
örlitlu hlutverki í fyrri uppfærsl-
unni, leikur nú Evu appelsínu en
með hlutverk Mæju litlu jarðar-
bers, sem sífellt sætir einelti, fer
nú Lára Sveinsdóttir.
Þorvaldur hefur auk heldur
samið tvö ný lög og Kristlaug
hefur raunverulega endurskrifað
allt leikritið.
„Ég byrjaði með tóma tölvu og
skrifaði þetta alveg upp á nýtt, en
held samt í kjarnann úr gömlu
uppfærslunni. Auðvitað má ég
ekki breyta of miklu, en nú er
meiri húmor í þessu og ég er búin
að mýkja aðeins pólitíkina. En hún
er þarna samt.“
Minn eigin kennari
!
JÓKER
2 MILLJÓNIR
Í FYRSTA VINNING
FLEIRI
VINNA!
2x
Jókerinn kostar 200 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
14
9
6
8
ÁVAXTAKARFAN LIFNUÐ Á NÝ Birgitta Haukdal leikur Geddu gulrót í nýju Ávaxtakörf-
unni, sem frumsýnd verður á morgun.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.