Tíminn - 08.06.1975, Blaðsíða 13
Sunnudagur 8. júni 1975
TÍMINN
13
Opið til kl. 7 á föstudögum — Lokað á laugardögum
Verzlið
þar sem
úrvalið er
Hringbraut 1 2 1
— Sími 1 0-600
húsið
mest og
kjörin bezt
28-600 Byggingavörukjördeild 28-602 Raftækjadeild
28-601 Húsgagnadeild 28-603 Teppadeild
Mikilvægt að konur afli
N
sér fjölbreyttrar menntunar,
en séu ekki sjélfskipaðar
í nokkrar atvinnustéttir
— ÉG MAN svo vel að
þegar ég sá þessa aug-
lýsingu þá greip mig
strax að þarna væri
komið tækifærið, sem ég
hefði verið að biða eftir.
Það er Guðný Björnsdóttir, sem
þetta segir, dúxinn i vor i
Menntaskólanum við Hamrahlið,
sem stundað hefur nám i öld-
ungadeildinni þar undanfarin 3
1/2 ár. Og við erum að ræða um
hvernig það æxlaðist að hún inn-
ritaðist i menntaskólanám jafn-
framt vinnu á lögfræðiskrifstofu.
Guðný er Norðfirðingur. Lauk
prófi frá Samvinnuskólanum 1958
og starfaði siðan hjá bæjarfóget-
anum I Neskaupstað, þangað til
fyrir fimm árum að hún flutti til
Reykjavikur og fór að vinna á
lögfræðiskrifstofu Vilhjálms
Amasonar.
— Mig hefur undir niðri alltaf
langað til að læra meira. Þegar
ég lauk landsprófi hraus mér
hálfpartinn hugur við að vera
fyrstfjögur ár fjarri heimili minu
I menntaskóla og svo ef til vill
annað eins eða meira i háskóla-
námi. trr varð þvi að ég valdi
tveggja ára verzlunarmenntun i
Samvinnuskólanum að Bifröst.
Ég sé heldur ekkert eftir þessu,
þvi að ég hef ekki siðri áhuga á
námi nú, en þegar ég var yngri.
En óneitanlega er mikill munur
á möguleikum fólks til náms eftir
þvi hvar það á heima á landinu.
— Voru þessi 3 1/2 ár ekki erfið,
að stunda nám samhliða vinnu?
— Jú, vissulega er þetta erfitt.
Það skyldi enginn halda að þetta
sé eitthvað, sem maður hleypur i.
Kennslan i öldungadeildinni er
geysilega góð, og án hennar álit
ég að þetta væri ekki hægt. Við
fengum helmingi færri tima I
námsgreinunum en reglulegir
nemendur skólans, svo yfirferð er
hröð.
Hvað mér sjálfri viðvikur var
mikil hjálp I þvi hve mikill velvilji
og skilningur rikti á vinnustaðn-
um gagnvart námi minu. Ég fékk
stundum fri til að lesa fyrir próf
ef ég var i timaþröng, allt upp i
tiudaga. Einsfékkégað fara kl. 3
siðdegis tvo daga I viku eina önn-
ina, en þá sótti ég tima f stærð-
fræði með reglulegum nemendum
skólans. Það var skemmtilegt að
eiga þess kost að kynnast lika
skólalifinu með þeim.
— Fannst þér munur á þessum
nemendum og „öldungunum” i
náminu?
■— Nei, og ég kunni jafn vel við
mig á báðum stöðum. Stundum er
talað um að fullorðið fólk sé ein-
beittara og stefnufastara i námi.
Mér finnst ekki vera hægt að al-
hæfa þannig. Margt ungt fólk er
afar duglegt og eins þeir full-
orðnu. Ég er á móti þvi að skapa
kynslóðabil með svona tali.
Hins vegar tel ég mig taka
námið öðru visi eftir að vera búin
að stunda vinnu þetta lengi. Ég
tek það miklu meira sem vinnu,
eitthvað sem þarf að gera, heldur
en ég hefði gert þegar ég var
yngri.
— Vinnudagurinn hefur trúlega
verið langur hjá þér?
— Það var svoli'tið breytilegt.
Ég var ekki alltaf á hverjum degi
I skólanum. 1 öldungadeildinni
eru alltaf tvær samfelldar
kennslustundir i hverri grein.
Timar hófust kl. 5.20 og stóðu til
10.30 og alla laugardaga kl. 1.15-6
siðdegis.
Hver einstakur var að sjálf-
sögðu ekki alltaf I timum. Eftir
áramót i vetur var frekar rólegt
hjá mér, ég hafði lokið það miklu
af náminu, og ég var aðeins þrjá
daga i viku i skólanum. En einn
daginn var ég alveg frá 5-10. 1
fyn-avetur var ég hins vegar alla
daga I timum.
— Og hvenær lastu?
— Ég reyndi að lesa um helgar.
Þegar ég var mikið i skólanum
las ég ekki, t.d. aldrei neitt þegar
ég var i tlmum til hálf ellefu.
Konur, sem langaði til
að læra á sinum tima
— Hvað voru margir við nám i
öldungadeild i vetur?
— Um 350 manns og konur i
meirihluta.
— Heldurðu að skýringin sé sú,
að konur hafi slður hugsað út i að
afla sér starfsmenntunar á unga
aldri en karlar?
— Það kann að vera. Og einnig
sú, að þegar fólk sem nú er 35-40
ára var i menntaskóla voru karl-
ar þar i miklum meirihluta og
hugsunarhátturinn var slikur, að
það þótti sjálfsagt. Ég held að nú
sé mikið af konum, sem höfðu I
raun og veru hug á og hæfileika til
þessa náms að láta verða af
framkvæmdum.
— Er ekki þreytandi að stunda
kyrrsetuvinnu og sitja svo á
skólabekk að vinnudegi loknum?
— JU, að visu. Þó held ég að
þetta sé allra erfiðast fyrir hús-
mæður með ung börn. Það hlýtur
að vera vandi fyrir þær að skapa
sér næði til að lesa. Eins virðist
mér kvæntir karlmenn, sem
stunda fulla vinnu, eiga erfitt um
vik að stunda þetta nám. Það er
sjálfsagt ekki gott fyrir þá að
hafa sama og engan tima aflögu
handa fjölskyldu og heimili.
— Stunda ekki konur, sem hafa
heimili og vinna lika úti þetta
nám?
— Jú, þess eru dæmi. Ég dáðist
mjög að dugnaði einnar konunn-
ar, sem var að ljúka náminu nú I
vor. Það var þýzk húsmóðir með
sex börn öll innan fermingar.
önnur húsmóðir, sem vinnur
úti, var llka að ljúka og húri tók
stúdentsðróf bæði á nýmálasviði
og náttúrusviði.
Það eru lfka ófá börnin, sem
hafa fæðst inn i deildina, ef svo
má segja, og mæðurnar hafa
haldið áfram náminu.
— Finnst þér konur almennt
hafa hug á þvi að afla sér starfs-
réttinda?
— Areiðanlega hafa margar
konur mikinn áhuga á þvi, enda
er það ekki sizt mikilvægt I nú-
timaþjóðfélagi, að konur hafi at-
vinnuréttindi, en séu ekki alveg
sjálfskipaðar I nokkrar atvinnu-
stéttir. Ég álit það mjög mikils
virði, að konur afli sér sem fjöl-
breyttastrar menntunar svo að
það leggist alveg niður að tala um
ákveðnar stéttir sem kvenna-
stéttir. Ég tel æskilegt að þær
menntistá unga aldri, en betra er
seint en aldrei!
— Hafðirðu tima fyrir nokkur
önnur áhugamál, en námið?
— Ég reyndi að stela mér tima
til ýmislegs. En ég hef ekki getað
haft eins mikið samband við
kunningjana og mig hefði langað
til. Og óneitanlega dró maður úr
skemmtánalifinu.
Áhuginn á raungreinum
varð ofan á
— Þú ert ekki að hugsa um ?ð
læra lögfræði? Hefurðu nokkuð
fengið bakterfuna á lögfræðiskrif-
stofunni?
— Upphaflega var ég mikið að
hugsa um það. En nú hefur áhug-
inn breytzt. Ég tók stúdentspróf á
náttúrusviði og áhugi á raungrein
um hefur orðið ofan á. En ég er
ekki fullráðin i hvaða grein ég tek
fyrir. Mest dálæti hef ég á stærð-
fræði.
— Og þú ætlar i háskólanám i
haust?
— Ég býst við þvi. Þá reyni ég
sennilega að minnka við mig
vinnu. En ég býst við að fyrsta
árið verði erfiðast fjárhagslega,
þegar skattarnir miðast við tekj-
ur fyrra árs og námslán fást trú-
lega ekki vegna þeirra. Mig lang-
ar raunar til að reyna að vinna
eitthvað með námi.
Guðný Björnsdóttir.
— Finnst þér ekki eins og þú
sért laus úr prisund eftir þessi 3
1/2 ár?
— Jú, nú ætla ég að hafa það
gott og reyna að hreyfa mig sem
mest. 1 sumarleyfinu ætla ég
austur á land og geyma allar
sólarlandaferðir.
Timamynd Róbert
— Það er nú svo, segir Guðný,
— að þótt ég hafi verið bundin yfir
bókunum þessi ár, þá hafði ég það
mikla ánægju af þessu að það
kom eiginlega aldrei til mála að
hætta. Og svo kynntist ég mjög
góðu fólki i „öldungadeildinni”.
SJ
Skoðið húsgagnaúrvalið - það er hvergi meira - og
verðið er við allra hæfi. Við bjóðum staðgreiðslu
afslátt eða JL-kaupsamninga. Aðeins 1/4 hluti
sem útborgun og eftirstöðvarnar eigið þér kost
á að fá lánaðar til allt að 18 mánaða.
KOSTA
KJÖR