Tíminn - 08.06.1975, Side 32
32
TÍMINN
Hænan sem flaug
Það var morgunn.
Haninn gól og hænu-
mamma opnaði annað
augað.
— Ég nenni eigin-
lega ekki að fara á fæt-
ur. Þá verð ég að vinna
öll verkin, sem ég er
vön að vinna. Ég held
ég liggi áfram.
Hún fór samt sem áð-
ur á fætur og gaf hænu-
ungunum morgunmat-
inn. Siðan lét hún þá
fara út að leika sér. Svo
fór hún að laga til i hús-
inu.
— Alltaf sömu disk-
arnir alla daga, hugs-
aði hún. — Sama rykið
og sami gamli hattur-
inn, þegar maður fer i
bæinn. Æ, æ og aftur æ!
Þegar hænumamma
var á heimleið með
það, sem hún hafði
keypt i bænum, fór að
rigna. Vindurinn greip
i regnhlifina og lyfti
hænumömmu upp i
loftið.
Fyrst missti hún
budduna sina. Pening-
unum rigndi yfir frú
Önd, sem var þarna á
gangi. Svo missti
hænumamma eplin sin.
Eitt þeirra lenti á höfð-
inu á frú Gæs.
Hænumamma sveif
hærra og hærra upp i
skýin. Henni fór að
finnast þetta skemmti-
legt. En allt i einu sner-
ist reghlifin við. Hænu-
mamma féll niður i átt
að jörðinni. Hún varð
svo hrædd, að hún bað-
aði út vængjunum og
fann þá, að hún gat
flogið. Það var yndis-
legt. Hún flaug og
flaug, yfir bæinn og
kringum kirkjuturninn.
Hænuungarnir sáu
skuggann hennar á
grasinu, þvi að nú var
sólin farin að skina aft-
ur.
— Valur, skrækti
einn unginn.
— Örn, skrækti ann-
ar.
— Nei, þetta er bara
hún mamma, tisti sá
þriðji. Og hann hafði
rétt fyrir sér, þvi að
augnabliki siðar lenti
hænumamma i miðju
blómabeðinu.
— Ég gat flogið,
sagði hún upp með sér.
Næsta morgun hopp-
aði hún út úr rúminu
jafnskjótt og haninn
gól.
Hún flýtti sér að gera
húsverkin, svo að hún
gæti sem fyrst flogið af
stað til að verzla. Hún
naut ferðalagsins bæði
að heiman og heim
aftur þennan dag, og
þann næsta, og alla
aðra daga upp frá þvi.
DAN
BARRV
Hann hefur
) komiðf J l
hingað a -
l i nótt.
HESTUR!
RISA-HESTUR!
Við sólarupprás, sjá verðirnir á borgarmúrun-
um furðulega sjón.
Hvað
er I /
þetta? ji
Ótrúlegustu fregnir rGuðirnir hafa V'Grikkir hafa
fljúga sem eldur i sinu spnt okkur hp.nnan ekki ráðizt á
Nú hefur okkur borizt
risavaxinn hesturtil
að draga vagninn.
Þetta er merki um
_ sigur. '___________|