Tíminn - 22.06.1975, Blaðsíða 2

Tíminn - 22.06.1975, Blaðsíða 2
2 TíMrW Sunnudagur 22. júnl 1975. Frá Stýrimanna- skólanum í Reykjavík Umsóknarfrestur um skólavist fyrir nýja nemendur er til 15. ágúst. Inntökuskilyrði i 1. bekk eru: 1. Gagnfræðapróf eða hliðstætt próf 2.24 mánaða hásetatimi eftir 15 ára aldur. Þá þurfa umsækjendur að leggja fram augnvottorð frá augnlækni, heilbrigðisv-tt- orð og sakavottorð. Fyrir þá, sem ekki fullnægja skilyrði 1) er haldin undirbúningsdeild við. skólann. Einnig er heimilt að reyna við inntökupróf, i 1. bekk i haust. Prófgreinar eru: Stærðfræði, eðlisfræði, islenska, enska og danska. Haldin verða stutt námskeið i þessum greinum og hefjast þau væntanlega 15. september. Inntökuskilyrði i undirbúningsdeildina eru 17 mánaða hásetatimi auk fyrr- greindra vottorða. 1. bekkjardeildir og undirbúningsdeildir verða haldnar á eftirtöldum stöðum, ef næg þátttaka fæst: Akureyri, ísafirði og Neskaupstað Skólinn verður settur 1. október kl. 14.00. Skólastjórinn. VEGNA mistaka I umbroti á vibavangi i blaðinu i gær er hann birtur aftur hér. Atburðirnir í Portúgal Eftir fall fasistastjórnarinn- ar I Portúgal báru margir þá von I brjósti, að lýðræOiö skyti rótum og fengi að dafna I þessu fátækasta landi Evrópu. Ekki dofnuðu þær vonir við kosningaúrslitin fyrir skemmstu, þegar þjóðin hafn- aði kommúnisma með eftir- minnilegum hætti. En þvi miður er það nú að koma á daginn, að það virðist borin von, að lýðræði verði ofan á I portúgölskum stjórnmálum. Hinn fámenni, en vel skipu- lagði, kommúnistaflokkur un- ir ekki úrslitum kosninganna og hefur beitt sér fyrir ofbeldisverkum og nú slðast lagt undir sig blað jafnaðar- manna. Rétt er að vekja at- hygli á þvíi að Islenzkir kommúnistar, með Magnús Kjartansson i broddi fylking- ar, hafa lýst sérstakri velþóknun sinni á þróuninni I Portúgal og talið hana til fyrirmyndar. Soma um kosningaúrslitin I leiðara I Alþýðublaðinu I gær, sem Björgvin Guð- mundsson borgarfulltrúi skrifar, er fjallað um atburð- ina I Portúgal. Þar segir: ,,Það eru skuggaleg tiðindi, að herforingjaklfkan I Portú- gal skuli hafa svikið loforð sitt við jafnaöarmenn um að þeir skyldu fá að gefa út blað sitt á ný. i þess stað er kommúnistiskum prenturum, sem margir hafa aldrei veriö ráðnir til starfa við prent- smiðjuna og eru sagðir vopnaöir, hleypt inn I bygg- ingu biaðsins og fengin þar raunveruleg yfirráö. Holit er að minnast þess, að I Portúgal er verið að fram- kvæma nákvæmlega kenning- ar Lenins. Hann kærði sig aidrei um fjölmennan kommúnistaflokk, heldur vildi tiltölulega fámennan flokk þrautþjálfaðra flokksmanna sem koma skyldi fyrir I lykil- stöðum þjóðfélagsins, þar til flokkurinn gæti náð öllum völdum. Þetta er að gerast i Portúgal. Með samþykki her- foringjanna hafa kommúnist- ar náð yfirráðum yfir öllum fjölmiðlum — nú síðast blaði jafnaðarmanna — og hreiðraö um sig I fjölda annarra trúnaðarstarfa. Þetta er skýr- ingin á þvi, hve rólegir þeir hafa verið yfir kosningaósigri sinum. Hann á ekki að ráða úrslitum — þeir eru að taka völdin samt. Þetta eru lærdómsrlkir at- buröir, sem afhjúpa tilraunir kommúnista til að koma fram sem lýöræðislegir flokkar. ts- lendingar verða aö taka eftir þvl, að Alþýðubandalagiö og Þjóðviljinn hafa tekiö ótvl- ræöa afstöðu meö kommúnist- um I Portúgal.” — a.þ. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður KLEPPSSPÍTALINN: HJCKRUNARKONUR óskast til starfa á hinar ýmsu deildir spitalans til afleysinga og i föst störf. Vinna hluta úr fullu starfi kemur til greina. Upplýsingar veitir forstöðukonan, simi 38160. FóSTRA óskast á dagheimili fyrir börn starfsfólks spitalans nú þegar eða eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir forstöðukonan, simi 38100. Reykjavik 20. júni 1975. SKRIFSTOFA RÍKISSFÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5,SÍM111765 Húnvetningar — Húnvetningar Húnvetningafélagið i Reykjavik áætlar ferðalag i heimabyggð. Farið verður frá B.S.l. e.h. þann 4. júli n.k. Upplýsingar i simum: 81981 73379 83776 5 Timinner peningar Anglýsid' i Támanum Seiðin voru flutt austur á bll með sérstaklega útbúnum kassa, en gert. í Gljúfurá í Skaftafellssýslu Blönduseiði á leiö I nýju heimkynnin. ASK-Akureyri. Undanfarin ár hafa einstaklingar og félög aukið aö mun ræktun I ám og vötnum. Ar, sem áður voru litlar sem engar veiðiár, hafa tekið við sér og eru nú orönar allsæmiiegar veiöiár. A mörkum Austur- og Skafta- fellssýslu rennur Gljúfurá I þröngum giljum. Til skamms tima var litil sem engin veiöi i henni, þar til nokkrir einstaklingar frá Akureyri og Reykjavlk hófu ræktun árinnar. Fyrstu laxaseiðin voru látin i ána fyrir um það bil þrem- ur árum.en slðast liöinn miðviku- dag voru tvö þúsund ársgömul seiði, ættuð úr Blöndu, látin I Gljúfurá. Þannig hafa þeir félagar látið samtals 5000 seiði i ána. Það hefur einungis reynt á veiði I ánni slöastliðiö sumar, en eftir þrjá daga höföu fengizt 11 laxar, 4-6 pund að þyngd. Ekki kváðust þeir félagarnir hafa hugsað sér, að nokkur stöng yrði seld I ánni nú á næstunni, enda tæki langan tima að ná henni I viðunanlegt horf. Leiguna greiða þeir með ræktuninni og eiga eftir ákveðinn árafjölda fyrsta rétt til að taka hana á leigu. Þaö er nýmæli við flutning á laxaseiðunum, að þau voru ekki flutt I pokum, eins og venja er til, heldur voru þau flutt, á bil i þar til gerðum kassa. Var þaö eftir- tektarvert, að ekkert seiöanna var dautt eftir aksturinn frá Laxalóni, heldur voru þau vel spræk og voru fljót að taka viö sér, þegar í Gljúfurá var komið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.