Tíminn - 22.06.1975, Blaðsíða 3
Sunnudagur 22. jiíni 1975.
TÍMINN
Valgarður L. Jónsson:
Er þögnin sama
og samþykki?
nigresi — hvað er nú þaöY A
máli okkar bænda er það sá gróð-
ur á akri okkar, sem illa er séður
og ekki er etinn af búfé, en stend-
ur hinum arðsamari gróðri fyrir
þrifum. En illgresi er vfðar. Þar á
ég við úrkynjuð afkvæmi okkar
mannanna.
Kannski eru þetta afkvæmi,
sem búið er að kosta miklu til við
gott uppeldi á íslenzkum mat,
klæðum oghúsaskjóli með hita og
þægindum, góðu atlæti og sfðast
en ekki sizt mikilli menntun. Við
Islendingar leggjum hart að
okkur við að kosta börn okkar til
mennta, og hefur það kostað þá
kynslóð, sem nú er að ganga sér
til hiiðar, marga svitadropa við
öflun verðmæta og peninga til
þess að leggja á borð með hinu
unga fólki, svo að það geti átt kost
á að ganga menntaveginn og
verði fært um að sinna sem bezt
vandasömum störfum á tækniöld
og umbótatimum. Það er sannar-
lega gleðiefni þeim, sem unnið
hafa hörðum höndum, svo að
þetta mætti verða, hve margt af
ungu fólki hefur getað menntað
sig. Að sjálfsögðu erum við stolt
af þessu. Ungt fólk, vel upp alið
og menntað, er auðvitað dýrmæt-
asta eign sérhverrár þjóðar.
Þeim mun viðkvæmari
tilfinningastrengi snertir það,
þegar ýlustráa og illgresis verður
vart i þeim mannlega akri, sem
hin unga, frfða og menntaða fylk-
ing sprettur úr. Og hér hvarflar
hugur minn að ungum ritstjóra
blaðs, sem gefur okkur litinn arð í
þjóðarbúið, en tekur vist frekar
frá því styrk. Verður ekki fram
hjá gengið aö veita athygli þeim
hugsunarhætti, sem kemur fram
hjá þessum ritstjóra, Jónasi
Kristjánssyni.
Hann vill flytja fólkið úr sveit-
unum af jörðum þess i vinnubúöir
i erlend álver. Ég segi erlend, þvi
ég geri ekki ráð fyrir, að til sé
auður i garði tslendinga til þess
að reisa margar slikar verk-
smiðjur, sem han talar um. Ég
sagði vinnubúðir, þvi að öldnu
sveitafólki yrði síikt sem versta
fangavist — það getur hver maö-
ur skilið, er til þekkir: Að köma
úr yndisleik og frelsi, sem Is-
lenzk sveit hefur upp á að bjóða,
og að vera loka'ður inni i verk-
smiðju I ófrelsi og hávaða.
Eg held að roskið fólk, sem enn
situr býli sin og nú er svo ódrengi-
lega að vegið, ætti frekar annað
skilið. En um það er talað að út-
rýma þeim, sem með smáu búin
eru, og flytja þá brott. Þetta fólk
hefur ekki siður en aðrir lagt sinn
hluta til uppbyggingar I þjóð-
félaginu. Það hefur lagt sinn
skerf til menntamála, og Jónas
Kristjánsson, er búinn að fá það,
sem honum bar, frá þessu fólki,
þó að hann vanþakki það.
Margir héldu, að þessum
manni, hefðu orðið á mistök, er
fyrsta forystugrein, hans um
skaðsemi landbúnaðar var lesin
útvarpi. Við þvi hefði verið litið
að segja, þvi að allir geta misstig-
ið sig. En það var nú öðru nær.
Hann hefur haldið áfram að sletta
úr klaufum I tíma og ótlma. Og
ekki hefur komið fram afsökun
frá þeim, sem blaðið eiga og
stjórnina hafa. Þetta er þo póli-
tlskt blað, og mætti þvl halda, að
þarna birtist einnig vilji þessara
manna — þeir vilja segja bænd-
um til syndanna og koma þeim
meira að segja & kné.
Mér þykir ótrúlegt, að hugsunin
á bak við þetta allt geti verið sú,
sama og sagt er, að sé I heiðri
höfð hjá öðrum stjórnmálaflokki
— sem sé, að þeir hugsi sem svo:
Við eigum svo lítið fylgi I sveitun-
um, að okkur er óhætt að hrak-
yrða fólk þar, því að okkur munar
ekkert um atkvæðin þaðan. Ég
hef alltaf staðið I þeirri trú, að
Sjálfstæðisflokkurinn ætti svo
mikið fylgi meðal sveitafólks, að
hans mönnum stæði ekki á sama
um atkvæðin þess.
Eh kannski er verið að stefna
að þvl, að hver stétt I þjóðfélaginu
staftdi einhuga um einn og sama
flokk með Vlsisskrifunum. Sllk
framkoma ritstjóra pólitisks
blaðs, sem hér hefur verið rædd,
er áreiðanlega ekki til þess fallin
að halda hylli þess fólks, sem
fyrir aðkastinu verður. En það er
svo sem þeirra mál, sem þarna
hafa hönd ibagga. Reyndar njöta
þeir uppskerunnar eins og þeir
hafa til sáð.
• •
SERSTOK
GÆÐAVARA
Var að fá nýja gerð af húsgagnaáklæði
sem farið hefur sigurför um Norðurlönd.
Áklæði þessi eru notuð jafnt til klæðningar
á yngri sem eldri gerðir husgagna. Gott
litaúrval. Þeir sem eru að leita að
vandaðri vöru ættu að lita inn.
Póstsendum um land allt.
Agnar ívars bólstrun,
fiárugötu 3, sími 20152
Rafstöð til leigu
Höfum til leigu sérlega vel búna
diesel-rafstöð 37 kVA, 380/220 V.
Höfum einnig til sölu nýja dieselrafstöð af
sömu gerð (Ford dieselvél)
Laugavegi 178 simi 38000
PIONŒŒR
MERKI
hinna
vandlátu
PIONŒŒR
Hljómtæki
Oftufon
Hátalarar
og Pick Up
SX-300 2 CHANNEL RECEIVER
PIOIMCCR
Hátalarar
^TÐK
Segulþræðir
Cassettur
Cartridge
Spólur
PL- 10 TURNTABLE
PIOIMCER
Sjónvarps-
og fera^a-
tæki
Einníg bíla-
sjónvarps-
tæki
3ja ára
ábyrgð
Viðgerðar-
og tækni-
þjonusta a
staðnum
H-R 99 HOME STEREO
PioiNieeR
CS- 53 SPEAKER SYSTEM
PIONEER
HÚÓAATÆKJADEILQ
Lgugavegi 66 • Simi 2-81-55