Tíminn - 22.06.1975, Síða 4
Anna prinsessa fékk kalt og óþrifalegt bað
Eins og allir vita er brezka
prinsessan dugmikil hestakona,
og tekur oft þátt I kappreiðum
með færustu knöpum heims. A
meðfylgjandi mynd fór samt
heldur illa, því að hestur önnu
prinsessu hikaði við hindrunina
og féll hún í vatnið. Þetta var i
hindrunarkappreiðum I South
Wiltshire. önnu prinsessu og
hesti hennar haföi gengið vel I
hlaupinu, en þegar kom að 17.
hindruninni, sem var við ána
Avon, þá gerðist þetta óhapp.
Sem betur fór varð hvorki hesti
eða reiðmanni meint af volkinu,
og voru bæöi jafngóð eftir að
þau höfðu verið þurrkuð og
nudduð, en áin Avon var mjög
köld, er þetta gerðist. Prinsess-
an tók þessum atburði með
miklu jafnaðargeði, og sagði að
sliku baði mætti alltaf búast við
i kappreiöum sem þessum.
Volga verður
hrein
Hópur sérfræðinga, sem rann-
sakað hafa vatnið i nær allri
Volgu, hefur komizt að raun um
að vatnið hefur hreinsazt mjög
verulega. Eftir að yfirvöldin
settu I marzmánuði 1972 strang-
ar reglur til að vernda vatnið i
ánum Volgu og Úral gegn
óhreinindum, hafa fyrirtæki við
árnar, sem veita úrgangsvatni i
þær, komið upp betri hreinsun-
artækjum, sem hafa reynzt hæf
til að leysa málið.
Sunnudagur 22. júni 1975.
Þrekmælingar
gefur hjartasjúkl
um viðvaranir
með klukku
Þetta vasaúr segir eigandanum
ekki hvað rétt klukka er. Úrið er
til þess að þeir, sem i hjólastól
sitja, geti mælt hve mikla
áreynslu þeir þola, án þess að
eiga á hættu að fá hjartaáfall.
Það mælir áreynsluna og gefur
viövörun. Areynsluþol er
breytilegt eftir einstaklingnum,
aldri og ýmsum kringumstæð-
um. Og þá nægir að lita á úrið og
sjá, hvort hreyfingaráreynsla
er mátuleg, hvorki of né van. Á
kvöldin eða um helgar getur
sjúklingurinn safnað birgðum af t
þreki og skipt þvi niður á viku-
dagana. Þrekmælirinn, sem er
vestur-þýzkur að gerð, hefur nú
þegar verið reyndur af 30.000
manns á heilsuhælum og i
heimahúsum. Með þvi að fara
eftir forskrift, geta sextugir
hjólastólasjúklingar náð
árangri fertugs fólks og liðið
vel.
Sjónvörp fyrir
aldraða
Dagblöð i Paris hafa tekið upp á
þvi að safna gömlum sjónvörp-
um, sem þó eru enn nothæf og
gefa þau gömlu fólki, sem ekki
hefur ráð á að kaupa sér ný
sjónvörp. Aðallega er reynt að
fá sjónvörpin hjá sjónvarpssöl-
um, sem oft á tiðum taka notuð
tæki upp I ný, og er það nokkurs
konar dulbúinn afsláttur. Siðan
er ef til vill ekki auðvelt að selja
gömlu tækin, og þá er þeim
hent. Þá hafa dagblöðin einnig
verið að reyna að fá stjórnvöld I
Frakklandi til þess að lækka eða
fella niður sjónvarpsafnotagjöld
fyrir gamalt fólk, sem ekki á
miklar eignir, eða getur unnið
launuð störf.
DENNI
DÆMALAUSI
11-79 |
I
m'
t
Vertu fljót. Diddi biður. Þú gætir
þó aö minnsta kosti sagt honum,
að ég hafi þurft aö bregða mér
frá.