Tíminn - 22.06.1975, Side 7

Tíminn - 22.06.1975, Side 7
Sunnudagur 22, júni 1975, ItMINN 7 Fólkiö mætir verð- hækkunum með hag- kvæmari innkaupum Rætt við Halldór Halldórsson, kaupfélagsstjóra Ef tekin eru miö af Reykjavik. þá er Vopnafjöröur ein af- skekktasta byggö á islandi og þangaö veröur mánuöum saman aöeins fariö meö skipum, eöa flugvélum. Þarna bjuggu til forna rikustu höföingjar Austuriands. Jón á Yztafelli lýsir Vopnafiröi svo I bók sinni, Land og lýöur: „Vopnafjöröur er ein sveit, einn hreppur. Hann er héraö fyrir sig nærri aö segja heimur, og langur vegur um heiöar og fjöll tii annarra byggöa.” Veltan 300 milljónir Aukning 55%. Meöal þeirra er sátu aöalfund SÍS i Bifröst á dögunum var Halldór Halldórson, kaupfélags- stjóri. Hann haföi þetta aö segja um kaupfélagiö og afkomuna i Vopnafiröi. — Viö erum ekki enn búnir aö halda aöalfund i kaupfélaginu en útkoman liggur þó fyrir meö nokkurri vissu. Afkoman er viðunandi, en ekki meira en þaö. Megineinkenni á rekstri síöasta árs er mikil veltu- aukning samfara stórfelldum hækkunum á tilkostnaði viö rekstur félagsins. Þaö, sem einkum varð til bjargar, var að atvinnuástand var gott á árinu, og kaupgeta al- mennings þvi talsverö. Heildar- veltan á árinu mun vera rúmlega 300 milljónir króna og haföi hækkaö um 55% frá árinu á undan, en áriö 1973 var hún innan við 200 milljónir króna. Fólkið vill spara — Nýmæli voru fá i rekstri félagsins. Þó opnuðum við mat- vörumarkaö, þar sem mönnum var gefinn kostur á að kaupa vörur i stærri einingum og var þar veittur 10% afsláttur frá venjulegu búðarveröi. Auövitaö verður aö stillatilkostnaöi mjög I hóf viö slika vörudreifingu, en fólk vill gjarnan mæta verðhækkunum meö þessu móti. Reyna aö komast að hagstæðari kjörum. Sjósókn og fiskverkun er undir- staða atvinnulifsins I þorpinu. Þar er geröur út einn skuttogari, BRETTINGUR og hefur hann gjörbreytt atvinnuástandinu á Vopnafirði til hins betra, þvl nú er afla landaö allt árið i stað þess að vélbátaútgerð er aðeins stunduö hluta úr árinu. Arsafli BRETTINGS mun hafa verið um 2500 tonn. Skipiö varö fyrir vélar- bilun seinast á árinu og missti þvl nokkuð úr heils árs úthaldi. Samgöngur — Skipaútgerð rikisins — Samgöngur voru meö svipuö- um hætti og undanfarin ár. Viö búum við ágætar flugsam- göngur, sem Flugfélag Noröur- lands og Flugfélag Austurlands ó Vopnafirði sjá um, en þau halda uppi flug- feröum til Akureyrar og Egils- staöa og þaöan komast menn svo áleiöis meö Flugfélagi Islands, ef leiöin liggur lengra. Alls er flogiö fimm sinum I viku og veröur þaö aö teljast mjög viöunandi. — En strandferðaskipin? — Ég hefi lýst skoöun minni opinberlega á þeim málum. Þaö er bráönauösynlegt, aö Skipaút- gerö ríkisins fái eitt skip til viðbótar og svo þarf aö stórbæta aðstöðu útgerðarinnar I Reykja- vlkurhöfn. Núverandi aöstaöa er vægast sagt fyrir neöan allar hellur, og engin von til aö árangur náist við núverandi skilyröi og samkeppnisaöstöðu. Mjólkurmagnið of litið — Svo vikiö sé aö sveitabúskap. Hvað varö mjólkurmagniö á árinu I mjólkurbúinu? — Það var heldur minna en I fyrra, eða 630.000 kg. Vinnslan gekk mjög vel og út- koman var góð, en hinu er ekki aö leyna, að þessi minni mjólkurbú eiga I vissum örðugleikum þvi að fjármagnskostnaöurinn er mikill miöaö við mjólkurmagnið sem berst til þeirra. Mjólkurbúið hjá okkur var byggt á tiltölulega hagkvæmum tíma, en samt sem áöur þyrftum viö að hafa um eina milljón kflóa til vinnslu á ári til þess reksturinn geti boriö sig. Merkilegt samstarf i atvinnumálum. — En atvinnumálin. Tekur kaup- félagiö þátt I atvinnulifinu? — Við gerum þaö. Á Vopnafiröi hafa kaupfélagið, hreppurinn og verkalýðsfélagið unnið saman að vinnslu sjávarafla, hafa myndaö hlutafélag, sem annast fisk- vinnsluna. Kaupfélágið á húsnæði það, sem hraðfrystingin fer fram. Við munum byggja nýtt hraðfrystihús og höfum ákveðnar hugmyndir um útgerö og fisk- vinnslu I samstarfi viö áður- nefnda aðila. Við teljum, að allt þurfi að vera á einni og sömu hendi, þvl það kemur I veg fyrir að gróði sé af einstökum liöum, en tap svo af öðrum. Þá vildi ég vekja athygli á byggðastefnu kaupfélaganna um allt land. Þau þyrftu aö hafa greiðari aögang aö fjármunum og stofnlánum en veriöhefur, þvl aö öörum ólöstuð- um, þá hafa slíkar samstarfs- heildir reynzt trúverðugri og öruggari rekstraraöilar en marg- ir aðrir. Tengslin, sem myndazt hafa á Vopnafirði, milli verka- lýðsfélagsins, hreppsins og kaup- félagsins, sem standa aö atvinnu- rekstri og fiskvinnslu, ásamt nokkrum einstaklingum, 1 byggðalaginu, er án efa hagkvæm leið fyrir fleiri byggðarlög. A Vopnafiröi hefur þetta skipulag gjörbreytt atvinnulifinu á staön- um. —JG. Haildór Halldórsson, kaupfélagsstjóri, Vopnafiröi GóÖaferÖ tíl Grænlands FLUGFÉLAG LOFTLEIDIR /SLAJVDS Félöa beirra sem feróast Til Kulusuk fljúgum viö 5 sinnum í viku meö Fokker Friendship skrúfuþotum okkar. Feróirnar til Kulusuk, sem er á austur- strönd Grænlands, eru eins dags skoöunarferöir, lagt er af staö frá Reykja- vikurflugvelli, aö morgni og komið aftur aö kvöldi. í tengslum viö feröirnar til Kulusuk bjóöum viö einnig 4 og 5 daga feröir til Angmagssalik , þar sem dvaliö er á hinu nýja hóteli Angmagssalik. Til Narssarssuaq, sem liggur sunnarlega á vesturströnd Grænlands, er flogið 4 sinnum í viku frá Keflavikurflugvelli meö þotum félaganna eöa SAS. Flestir þeir sem fara til Narssarssuaq dvelja þar nokkra daga, en kostur gefst á lengri dvöl ef vill. I Narssarssuaq er gott hótel meö tilheyrandi þægindum, og óhætt er aö fullyrða aó enginn veröur svikinn af þeim skoöunarferöum til nærliggjandi staða, sem í boöi eru. í Grænlandi er stórkostleg nátturufegurö, og sérkennilegt mannlif, þar er aö finna samfélagshætti löngu liðins tima. Þeir sem fara til Grænlands í sumar munu örugglega eiga góóa ferö.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.