Tíminn - 22.06.1975, Síða 13

Tíminn - 22.06.1975, Síða 13
Sunnudagur 22, júni 1975. TÍMINN 13 Mjólkurstööin á Blönduósi. Þar fór fyrst fram framleiðsla á þurrmjólkurdufti I mjólkurbúi á tslandi. Grein og myndir Jónas Guðmundsson eins og hjá öörum félögum. Þó varö vörumagnsaukning á árinu, t.d. i byggingavörum, þvi mikið var byggt á félagssvæðinu á árinu. Framkvæmdir voru fremur litlar á árinu hjá félaginu á siðasta ári, en þó var byrjað á nýju verzlunarhúsi á Hólanesi. Félagsmenn eru 679 og starfa i 10 félagsdeildum. 46 fulltrúar hafa rétt til setu á aðalfundi. Fjölbreytt vöru- úrval hjá kaupfélögum Félagssvæði okkar er Austur- Húnavatnssýsla og rekur félagið verzlanir á Blönduósi, þar sem aöalverzlunarhús félagsins er. Þar er alhliða kaupfélagsverzlun með sérdeildum fyrir matvöru, vefnaöarvöru og byggingavörur. Auk þess er matvöruverzlun, eða útibú fyrir innan Blöndu, sem þjónar byggðakjarnanum þar, og svo tvö útibú á Skagaströnd, en þar hagar likt til og á Blönduósi að byggöakjarnanum er skipt i tvennt. Auk þess erum við með Esso- skálann, sem er ferðamanna- verzlun, með benzinsölu og ýmsa þjónustu aðra. — Þú talaðir um alhliða kaup- félagsverzlun? — Já, kaupfélagsverzlun á ís- landi hefur þróazt á nokkuð sér- stæðan hátt. Félögin verða að hafa fjölbreytt vöruúrval, sem er ótrúiega fjölþætt, þvi að oftast eru þau eini verzlunaraðilinn á svæðinu. Segja má að þetta sé smækkuð mynd af stórverzlunum ytra og vöruúrvalið eykst með ári hverju. Nýjar tegundir koma á markaö, nýr munaður og nýjar nauðsynjar, sem telja verður einkenni á neyzluþjóðfélaginu margumtalaða. Þetta verzlunar- hús, sem reist var fyrir fáeinum árum er þannig þegar að verða of litiö, þar sem vörumagnið eykst stöðugt. Þetta kallar á aukið fjármagn og aukið húsrými og ég tel að kaupfélögum landsins hafi tekizt það mjög vel að tryggja viðskiptamönnum vöruúrval miðað við þéttbýlisverzlunina, þar sem meiri verkaskiptingu verður komið við i verzlun. Starfslið og starfsemi — Hvað starfa margir hjá Kaup- félagi Húnvetninga? — Hjá félaginu starfa 47 manns, fastir starfsmenn þar af 30 við afgreiðslustörf, 13 á skrifstofu. Bifreiðarstjórar eru 3og einn við önnur störf. Heildarlauna- greiðslur voru um 29 milljónir króna á árinu. Þetta fólk starfar að rekstri kaupfélagsins, en auk áðurgreindrar verzlunar þá erum við með umboð fyrir Samvinnu- tryggingar, Oliufélagið hf. og Eimskipafélag íslands hf. Þá má og geta þess að kaup- félagið á eignaraðild og eignar- hluta i nokkrum þýðingarmiklum þjónustufélögum, eins og vélsmiðju, bifreiðaverkstæði. Vélsmiðjuna eigum við i félagi við búnaðarsambandið og þar er veitt verkstæðisþjónusta fyrir félagssvæðið. Sölufélagið — En vikjum svo að Sölufélagi Austur-Húnvetninga. Hver eru verkefni þess? — Það rekur mjólkursamlag og sláturhús, og annast afurðasölu bænda og annarra framleiðenda. Það munu vera 180 framleiðendur á félagssvæðinu, en skilyrði fyrir inngöngu i félagið er að vera framleiðandi búvöru. Frain- Gamla verzlunarhúsið á Biönduósi, þar sem aöalverzlun Kaupfélagsins var til húsa til ársins 1963. g I | I Verzlunarhús Kaupfélags Skagstrendinga á Skagaströnd. Þarna var um tfma sérstakt kaupfélag, en sameinaðist siðan aftur Kaupfélagi Húnvetninga. Þar er hægt að kaupa auk bensins og oliu, allar mögulegar „feröamannavörur”, ESSO skálinn á Blönduósi er við þjóðveginn og á miklum vinsældum að fagna hjá vegfarendum. ávexti, brauð og hvað eina.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.