Tíminn - 22.06.1975, Síða 15
Sunnudagur 22. júní 1975.
ItMINN
15
„Fólkið hefur
gleymzt í uppbygg-
ingu staðarins"
w
— Rætt við Kristján Armannsson,
kaupfélagsstjóra á Kópaskeri
ASK-Akureyri. Hér á Kópaskeri
er enginn læknir, ekkert félags-
heimili, og barnaskólinn er i húsi
frá 1920-’30, sem taliö er allt að
þvi ónothæft til kennslu,” sagði
Kristján Armannsson i viðtali við
blaðið fyrir skömmu.
Frá Kópaskeri eru gerðar út
nokkrar trillur, en útgerð stærri
báta hefur undanfarin ár verið
litil. Þaöan rær nú einn 20 tonna
og annar 65 tonna bátur, og er sá
minni, enn sem komið er, á hand-
færum. Þingey, stærri báturinn,
var til skamms tima á rækju, en
mun nú vera hættur þeim veiðum.
— Hvernig hafa veiðar þeirra
báta, er gerðir eru út frá Kópa-
skeri, gengið?
— Eins og kunnugt er af fréttum,
gengu rækjuveiðarnar vel, en
hins vegar er engin aðstaða hér á
Kópaskeri til vinnslu aflans. 1 at-
hugun er að kaupa vélar og tæki
til vinnslunnar, en húsnæði
sláturhúss KNÞ verður notað til
hennar. Þá öfluðu trillur heima-
manna þokkalega nú I vor, en þær
voru á grásleppuveiðum. Ógæftir
hömluðu þvl hins vegar, að
veiðitlminn nýttist nægjanlega
vel. Við aflanum tekur SÆBLIK
h/f, en það fyrirtæki var stofnað
af hreppum við Axarfjörð, kaup-
félaginu og nokkrum einstakling-
um. Það hefur og tekið við
bolfiskaflanum, og hann þá farið I
salt. Sá veiðiskapur gekk hins
vegar með eindæmum illa.
— Hverjar eru helztu fram-
kvæmdir á vegum kaupfélagsins
og hreppsins?
— Á Kópaskeri er nú hafin
bygging þriggja Ibúðarhúsa á
vegum hreppsins, og er ætlunin
aö fá rikissjóð til að standa við
gefin fyrirheit um að lán yrðu
veitt til ibúðarhúsabygginga. Þaö
hefur hins vegar komið á daginn,
að lán fást sjaldnast fyrr en eftir
aö framkvæmdir hafa verið
hafnar. En til þess að leysa þau
húsnæðisvandamál, sem ibúar
Kópaskers eiga nú við að striða,
þyrfti fyrir haustið að vera
fulllokið að minnsta kosti átta
Ibúðarhúsum. Auk þeirra fram-
kvæmda.sem hreppurinn stendur
I, eru svo þrir einstaklingar með I
smlðum eigið húsnæði. Annars er
byggingarþörfin mjög mikil, og
hefur hreppurinn farið fram á, að
rikissjóöur styrki byggingu
þriggja húsa á ári næstu fjögur
ár. Þá er einnig á vegum
hreppsins bygging skóla að Lundi
I Axarfiröi, en það verk er unnið I
samvinnu við aðra hreppa við
Axarfjörð. Þá mun og vera I bi-
gerð að hefja byggingu héraðs-
bókasafns, en óvist er hvenær af
þeirri framkvæmd getur orðiö.
A vegum kaupfélagsins er
meðal annars viðgerð á hluta
gólfs undir frystiklefum slátur-
hússins, en þaö lyftist i vetrar-
frostunum um allt að 20 senti-
metra. Þetta er mikil fram-
kvæmd og dýr á okkar mæli-
kvarða , svo að óvst er, hvort
nokkuð verður af öðrum fram-
kvæmdum I sumar. Að visu
veröur skipt um innréttingu I
útibúinu á Raufarhöfn, en þar
hefur kaupfélagið rekið verzlun I
húsnæði sambandsins undanfarin
ár.
— Hvernig er félagsleg aðstaða
Ibúa hreppsins?
— A Kópaskeri er ekkert félags-
heimili, þar sem fólk getur komið
saman, þannig að notazt er viö
mötuneyti sláturhússins. Þar eru
haldin spilakvöld en ekki er
mikill möguleiki á að setja upp
leikriteða annað þess háttar, sem
væri þó ákaflega æskilegt. Og
ekki veit ég til þess að .. slik
bygging sé I bigerð, enda mun
ærið mikið af fé hreppsins vera
notað til fyrrnefndar skóla-
byggingar. í sambandi við lækna-
mál staðarbúa má geta þess, að
hugmyndir eru uppi um aö reisa
hér læknamiðstöð, en sá bústaður
sem fyrir er, getur tæpast verið
boðlegur lækni. Til Húsavikur
verða menn að leita, ef eitthvað
alvarlegt kemur upp á, en á
staðinn koma vikulega læknar
þaðan. Þá verða Ibúar Kópaskers
að sækja alla menntun útfyrir
staðinn, utan barnaskólanáms.
Lundur I Axarfirði veitir
unglingapróf, en frekari fram-
haldsmenntunar verður að leita
utan héraðs. Barnaskólinn er sem
fyrr getur I húsnæði frá þvi
1920-'30, og er það að minu mati
allt að þvi óhæft til kennslu. Það
mun þvl óhætt að fullyrða, aö
fólkið hefur gleymzt I
uppbyggingu staðarins.
— Nú hefur verið samin
byggðaþróunaráætlun á vegum
Framkvæmdastofnunar ríkisins.
Hvað vilt þú segja um þann hlut,
er Kópaskersbúum er þar
ætlaður?
— Fyrst og fremst er ég ánægður
með ritið sem upplýsinga- og
uppsláttarbók, en ég állt það mis-
tök að setja Þórshöfn upp sem
miðstöð héraðsins. Ég tel eðli-
legra að láta þróunina haldast
eins og verið hefur. Það hefur og
vakið nokkra úlfúð, meðal annars
hjá Raufarhafnarbúum, hvers
konar hugmyndir voru uppi um
framtlð þeirra bæjarfélags. Þá
má geta þess, að Kópasker hefur
þegar náð ýmsum þeim mark-
miðum, er staðurinn átti ekki að
ná fyrr en 1985.
— Að lokum?
— Ég vil að lokum segja, að
Kópasker á sér mikla framtlð, ef
rétt er á málum haldið af yfir-
völdum og staðnum veitt sú fyrir-
greiösla, er hann, vegna smæðar
getur ekki unnið að einn og
óstuddur. Ekki er siður mikilvægt
að yfirvöld hafi samráð við Ibúa,
þegar veitt eru til dæmis
veiðileyfi á rækju, og þess gætt,
að vinnsla og veiðileyfi standist á,
en hallist ekki eins mikið á aðra
hliðina og geröist fyrr á þessu ári.
lllilii
msi0m
MStíSK
Gallabuxna
úrvalið
er í FACO
Póstsendum um land allt
Símar: 12861 og 13008
Auglýsid' iTímanum
mm