Tíminn - 22.06.1975, Page 40
Nýtíma búskapur þarfnast
BAUER
haugsugu
[
Sunnudagur 22. júni 1975
J
Guöbjörn
Guöjónsson
SIS-FOÐUR
SUNDAHÖFN
m '<
mz
fyrirgóóan mai
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Kanadískir og íslenzkir
• r
sjonvarpsmenn vinna saman
gébé—Rvlk. — Hér á landi er nú
staddur hópur af kanadisku sjón-
varpsfólki frá Winnipeg, og eru
þau að taka ákveðna þætti i
klukkustundar-mynd, sem sýna á
i Kanada, i tilefni 100 ára land-
náms lslendinga þar. Taka þau
fyrir ýmsa ákveðna þætti, svo
sem forsögu þess aö Islendingar
fluttust vestur. 1 þessu skyni
hefur hópurinn ferðazt um Suður-
land, og unniö i Reykjavik, en þar
hafa þau notið aðstoðar ólafs
Ragnarssonar frá isl. sjónvarp-
inu, en Ólafur fer einmitt til
Kanada á vegum sjónvarpsins
þegar haldið verður upp á afmæli
Islendingabyggðar þar.
— Við reynum að greiða götu
þessa hóps hér. t.d. við að útvega
þeim myndir, og vera þeim innan
handar um ýmsar upplýsingar,
sagði Ólafur. Þau munu svo
greiða fyrir okkur þegar við för-
Varanlegt slitlag
sett á tæpan kíló-
metra á Húsavík
ASK-Akureyri. Varanlegt slitlag
veröur lagt á fjórar götur á Húsa-
vik I sumar. Hafin verður bygg-
ing annars áfanga við gagnfræða-
skólann og væntanlega byrjaö á
nýju barnadagheimili fyrir um 60
böm. Þetta kom meðal annars
fram i viðtali er blaðið átti við
Guðmund Nielsson bæjarritara á
Húsavik.
1 fyrra voru þrjár götur gerðar
tilbúnar fyrir oliumöl, en nú er
unnið við að gera Fossvelli
tilbúna fyrir slitlagið. Gert er ráð
fyrir að þvi' verki verði lokið i
ágúst, en þá mun væntanlega
Miðfell h/f i samvinnu við bæinn
leggja oliumölina. Reiknað er
með að framkvæmdirnar kosti
allt að 30 milljónum.
Tilboð i annan áfanga við gagn-
fræðaskólann var opnað á föstu-
dag, en um var að ræða lokað til-
boö, þar sem einungis verktakar
innan sýslunnar gátu boðið i
verkið. Hér er um að ræða 1500
rúmmetra húsnæði sem er 221
fermetri að stærð. Verður þar
aðallega aðstaða fyrir kennara.
Um dagheimilið sagði Guð-
mundur að endanlegt svar frá
ráðuneyti hefði ekki borizt, en á
fjárlögum fyrir árið 1975 hefði 5.7
milljónum verið veitt til heimilis-
ins. Þarna yrði um aö ræða pláss
fyrir um 60 börn á aldrinum 6
mánaða til 6 ára, á fjórum deild-
um. A Húsavik er nú eitt dag-
heimili, en þaö rúmar einungis 30
böm á aldrinum 2ja til 6 ára.
Að lokum sagði Guömundur, að
hafizt yrði handa innan skamms
og yrði byriað á framkvæmdum
við höfnina og stefnt að þvi að
steypa þekju á hafnargarðinn og
leiða þangað rafmagn og vatn. Þá
yrði einnig unnið áfram við svo-
nefndan þvergarð, sem er skjól-
garður fyrir bátalægin. Verkið
var hafið I fyrra og er miðaö viö
að um 15 milljónir fari i fram-
kvæmdirnar.
um vestur. Með Ólafi fara tveir
menn aðrir frá sjónvarpinu, Orn
Harðarson myndatökumaður og
Oddur Gústafsson hljóðupptöku-
maður.
Sr. Emil Björnsson fréttastjóri
sagði i gær, að áætlað væri að
taka upp 3-4 háUfma þætti vestan
hafs. Þættirnir verða allir teknir I
lit, bæði upp á seinni tima þegar
við fáum litasjónvarp á Islandi og
sem heimild fyrir seinni tima. —
Fyrsta myndin verður sennilega
skilgreining á þvi þjóöfélagslega
ástandi, sem hér rikti og varð
þess valdandi, að svo margir Is-
lendingar fluttu vestur um haf,
sagði sr. Emil. Einn þáttur verö-
ur sennilega helgaður afmælis-
hátiðinni, sem stendur dagana 2.-
4. ágúst og svo reynt aö fylgja
slóðum Islendinga á Nýja Islandi.
Þá sagði sr. Emil Björnsson, að
Ólafur Ragnarsson myndi
„hoppa út úr fréttunum I nokkra
mánuði” meðan hann ynni að
þessu verkefni, en ekki væri hægt
að segja um, hve langan tima það
tæki. — Við vonumst til að geta
sýnt fyrsta þáttinn 21. október,
sem er hinn raunverulegi
afmælisdagur landnáms Is-
lendinga I Vesturheimi, sagði sr.
Emil.
Um kostnaðarhlið þessarar far-
ar, vildu s r. Emil Bjömsson og
Ólafur Ragnarsson litið segja,
nema að nú væri verið að vinna að
endanlegri kostnaðaráætlun.
LITIÐ FRAMBOÐ
AF HÚSNÆÐI
í SVEIT FYRIR
DVALARGESTI
ÚR ÞÉTTBÝLI
HJ-Reykjavik. ! vetur gekkst
Upplýsingaþjónusta landbúnað-
arins fyrir könnun meðal fólks i
sveitum landsins, hvort áhugi
væri á þvi að taka á móti dval-
argcstum úr þéttbýii. Að sögn
Agnars Guðnasonar hjá Upplýs-
ingaþjónustu landbúnaðarins
voru undirtektir mjög dræmar,
og hafa aðeins 12 heimili gefið
kostá aðstöðu til þcssarar starf-
semi.
Agnar kvað hugmynd þessa
hafa verið lengi i deiglunni, og
hefði hún oft verið rædd áður,
þótt ekki yrði af framkvæmdum
fyrr. Undirbúningur hófst i
febrúar og var málið þá kynnt i
bændaspjalli útvarpsins. Einnig
var málið lagt fyrir búnaðar-
þing og þar var ákveðið að leita
samráðs við landssamtök veiði-
félaga. Þá var um þetta fjallað i
búnaðartimaritinu Frey og
jafnframt var sent með eyðu-
blað til útfyllingar fyrir þá, er á-
huga höfðu á málinu og gátu
boðið upp á gistiaðstöðu.
— Fyrst á eftir sýndi margt
fólk áhuga og mikið var um
hringingar til að leita upplýs-
inga hjá okkur, sagði Agnar.
Flestir vildu þó fá meira fé fyrir
aðstöðuna en við höfðum hugsaö
okkur, þvi að við tókum miö af
þvi, hvað kostar að leigja sér
sumarbústaðina i Húsafelli, og
vildum ekki fara langt upp fyrir
það verð. 1 þetta skipti var ár-
angur húsnæöiskönnunarinnar
þvi ekki jafnmikill og vonir
stóðu til, en við munum halda á-
fram i þeirri trú að fleiri heimili
bætist við næsta sumar.
— Það fólk i þéttbýli, sem
hefur áhuga á að dvelja I lengri
eða skemmri tima á sveita-
heimili i sumar, getur fengið
lista yfir þá staði, sem bjóða
upp á gistingu, hjá Upplýsinga-
stofnuninni. Þar koma fram all-
ar nauðsynlegustu upplýsingar
svo sem hvað snertir stærð og á-
sigkomulag húsnæðis, hvaða
þjónusta stendur til boða,
hversu langt er til næstu
verzlunar, hvort um veiði er að
ræða i grenndinni, hverjir staðir
séu skoðunarverðir o.s.frv.
NYJA FOLKIÐ Á HVERAVOLLUM
Bækur efst á
blaði — síðan
handavinna og
gömul hvalbein
gébé—Rvik. —Veðurstofan hefur
nýlega ráðið nýtt fólk til að taka
við störfum á veðurathugunar-
stöðinni á Hveravöllum, en eins
og kunnugt er, er fólk ráöið þang-
að til eins árs I senn. Hjónin, sem
valin voru úr hópi þrjátiu og
fimm umsækjenda, eru Auöur
Brynja Sigurðardóttir og Páll
Kristinsson, búsett i Reykjavik.
Timinn náði tali af þeim og spuröi
þau hvers vegna þau hefðu sótt
um þetta starf, sem svo að segja
einangra þau I heilt ár frá sam-
skiptum við annað fólk.
Auður Brynja varð fyrir svör-
um og sagði að þetta hefði verið
draumur sinn i mörg ár, og vel-
komin hvild frá kennslunni, en
hún hefur verið kennari við
bamaskóla I rúmlega tiu ár. Páll
tók undir þetta og sagði, að gott
Bangsi í frysti
gébé—Rvik — Hrafn Ragnarsson
skipstjóri á Arnari, sem skaut
hvitabjörninn á föstudag um
þrjúleytið, sagði að þeir heföu séð
bangsa á sundi rétt viö skipið.og
heföi hann virzt þreyttur. Enda
engin von, þar sem um sextiu sjó-
milur hefðu verið I næstu isrönd.
Var bangsi stór og þungur er þeir
innbyrtu hann, en nú hvllir hann I
kaldri gröf eða I frystihúsinu I
Ólafsfirði, og er nú beöiö eftir að
tilboð séu gerð I hann.
Þaö var urn þrjár sjómilur
suð-austur af Grimsey sem skip-
verjar á Arnari urðu varir viö Is-
björninn á sundi skammt frá
skipinu. Skaut skipstjórinn hann
með haglabyssu og var bangsi
siðan innbyrtur. Timinn haföi
samband við Agnav Inólfsson
prófessor i liffræöi, og sagði hann
að sér fyndist ótrúlegt að bangsi
hefði heföi getað synt alla þessa
leið — Annars eru is-
birnir sundþolnir og góð sunddýr
og er trúlegt að bangsi hafi borizt
meö isflögu mikinn hluta leiöar-
innar, sagði Agnar.
Nú biður bangsi i frystihúsinu á
Ólafsfirði eftir þvi að vera
stoppaður upp af einhverju safni,
en skipstjórinn á Arnari, Hrafn
Ragnarsson, sagði aö enn heföu
engin tilboð borizt i björninn og
þvi enn als óvlst hvaö um hann
yrði.
yrði að breyta til og komast úr
skarkalanum og hraöanum i ró
og kyrrö. Þau sögðu, að fyrsta
skilyröi fyrir þvi aö þau fengju
starfiö, hefði verið mjög nákvæm
og ströng læknisrannsókn, en til
allrar hamingju hefði hún reynzt
jákvæð.
Ekki sögðust þau Auður Brynja
og Páll neitt hafa hugsað út i
peningahlið málsins, fyrr en að
eftir að þau voru ráðin, en þá
komu I ljós ýmsir möguleikar
sem þeim voru lokaðir áður. Nú
hafa þau fest kaup á ibúð, og
munu láta kaup sitt renna beint I
hana, og hafa fjárhaldsmann,
sem sér um þá hlið málsins. Ekki
geta þau eytt miklum peningum i
einverunni á Hveravöllum og
langt i næstu sjoppu, eins og Páll
komst að orði.
Þá sagöi Auður Brynja, að
undirbúningurinn væri mjög
erfiöur, t.d. þyrfti að kaupa mat
til heils árs, og verður honum
komiö fyrir i þrem stórum frysti-
kistum á Hveravöllum. Þá eru
þau að viða að sér ýmissi tóm-
stundaiðju, og eru þar bækur efst
á blaði, sfðan alls kyns handa-
Auöur Brynja Sigurðardóttir
og Páii Kristinsson. Tima-
mynd: Gunnar.
vinna og Páll hefur viðað að sér
gömlum hvalbeinum, sem hann
ætlar að skera úr ýmsa hluti.
1 næstu viku verða þau á nám-
skeiði hjá Veðurstofunni til að
kynna sér öll þau mörgu mæli-
tæki, og talstöðvar, sem þau
veröa að kunna vel skil á. Ef ein-
hver heldur, að ekki sé nóg að
starfa á Hveravöllum, er það
mesti misskilningur, þvi að lesa
þarf af mælum á 3 klst. fresti all-
an sólarhringinn, og færa niður-
stöðurnar niður i dagbók, veður-
brisvar til fjórum
flílílliín é ?ölarhring, viðhald
húsa og véla eru mikil, og svo
mætti lengi telja.
Þegar þau voru spurð, hvort
þau væru ekkert hrædd við að
veröa leið á hvort öðru, þvi að
mánuðir geta liðið án þess að þau
sjái aðra manneskju, hlógu þau
bæði og sögðust ekkert hrædd um
það. Auður Brynja Sigurðardóttir
og Páll Kristinsson taka við hinu
nýja starfi. 20. ágúst.