Tíminn - 13.07.1975, Qupperneq 40
Sunnudagur 13. júli 1975.
Núlima búskapur þarfnast
BAUER
haugsugu
Guöbjörn
Guöjónsson
SÍS-FÓDIJU
SUNDAHÖFN
GBÐI
fyrirgóóan mai
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
ÍÞRÓTTAMIDSTÖÐ í EYJUM Hræðslan við
VERÐUR TILBÚIN AÐ ÁRI samdrátt orsök
Verða kjarnorkusprengjur eða
stórvirkir jarðborar notaðir
til samgöngubóta á íslandi?
FB-Reykjavík. ófærir fjallvegir
eru viða þröskuldur á vegi sam-
gangna milli héraða hér á landi.
Hcfur mönnum dottið margt i
hug, sem gera megi tii þess að
ryðja leiö gegnum fjöll, eða
bora göng til þess að opna leiöir,
sem ekki teppast i fyrstu snjó-
um á haustin. Til dæmis hafa
menn á Vestfjöröum viðrað þá
hugmynd, hvort hægt sé að nota
neðanjarðarkjarnork uspreng-
ingar til þess að gera Breiða-
dalsheiöi að betri samgöngu-
leiö, en hún er nú, og cinnig
kemur til greina að nota stór-
virkar borvélar, sem bora jarð-
göng i heilu lagi, nokkurra
metra breið, rétt eins og nú eru
boraðar holur, t.d. þegar verið
er að leita að heitu vatni.
Viö spurðum Agúst Valfells
verkfræðing um kjarnorku-
sprengingar sem þessar, en
hann hefur fylgzt með tilraun-
um og áætlanagerð við háskóla i
Iowa i Bandarikjunum, þar sem
sérstaklega var unnið að áætlun
varðandi nýjan skipaskurð i
stað Panamaskurðarins. AgUst
sagði, að hægt væri að gera ná-
kvæmar áætlanir um neðan-
jarðarkjarnorkusprengingar,
sem yrðu þess valdandi, að
jarðsig myndaðist yfir spreng-
ingarstaðnum. Hefði verið gerð
áætlun um notkun kjarnorku-
sprengja við gerð skurðar í
Panama og einnig við hafnar-
gerð i Alaska. Hætt var við að
beita þessari nýju aðferð á báð-
um stöðum af hættu við geisla-
virkni. I Panama hefði þurft að
flytja burtu um 25 þúsund
manns um stundarsakir, og i
Alaska voru menn áhyggjufullir
vegna þess, að þar myndu áhrif
geislavirkninnar komast i vatn,
sem siðan færi i hreindýramos-
ann, og úr honum i hreindýrin
og að lokum i Eskimóana, sem
lifa á hreindýrunum.
Mjög dýrt er að nota kjarn-
orkusprengjur til þess að fram-
kalla landsig eins og hér um
ræðir, þar sem ein sprengja
myndi kosta um 1 milljón doll-
ara, og veldur aðeins nokkur
hundruð metra sigi. Er tæpast
þess að vænta, að Islendingar
eigi i náinni framtið eftir að
notfæra sér þessar aðferðir.
Haukur Tómasson hjá Orku-
stofnun er manna fróðastur hér
um nýja bortækni. Hann sagði,
að tækninni á þessu sviði fleygði
stöðugt fram, en þegar á sjötta
áratugnum hefði verið farið að
bora grennri gerð jarðgangna á
svipaðan hátt og gert er, þegar
boraðar eru holur niður i jörð-
ina. Munurinn væri aðeins sá,
að borstefnan væri lárétt'. Er
þetta auðvelt, ef bergið er ekki
allt of slæmt, þar sem borað er.
Þegar talað væri um grönn
göng, væri átt við göng frá 2 til 5
metra á breidd. Til þess að það
gæti borgað sig að bora göng
með þessari aðferð þyrftu þau
að vera minnsta kosti 2—3 kiló-
metra löng, en til dæmis göng
gegnum Breiöadalsheiði yrðu
aðeins nokkur hundruð metra
löng, og er það allt of stutt til
þess að geta orðið hagkvæmt.
Haukur sagði, að aðalerf-
iðleikarnir fyrir okkur væru þó
þeir, að fá upplýsingar um
reynslu að borunum sem þess-
um I samsvarandi jarðmyndun-
um og hér eru. Hann sagði, að
nú væri verið að hefjast handa
um boranir i Arisona i Banda-
rikjunum, sem við mættum
draga nokkurn lærdóm af.
Vandamálið hér er, hversu
mishart bergið er. Blágrýtið er
mjög hart, en harka þess er þó
ekki svo mikil, að hún komi i
veg fyrir borun. Hins vegar eru
mun linari jarðlög á milli, og
það er þessi mismunur sem
veldur erfiðleikum.
Þegar jarðgöng eru boruð á
þennan hátt, er mun auðveldara
að ganga frá þeim að innan, þvi
að þá þarf ekki að fóðra þau
jafnvandlega og annars þyrfti,
og sparast nokkuð við það. Það
sem mestum sparnaðinum
veldur þó er það, hversu mun
fljótvirkari þessi aðferð er
heldur en venjuleg aðferð við
gerð jarðgangna.
Kostnaður við kaup á borvél
til þess að bora jarðgöng yrði
mikill, en ódýrasta vél á mark-
aðinum kostar um 40 milljónir
króna, og nægir hún einungis
fyrir mjög litil göng. Vél fyrir
t.d. 3 metra breið göng mundi
ekki kosta undir 100 milljónum,
og þaðan af meira ef um breið-
ari göng væri að ræða.
Banaslys
H.V. Reykjavik. Banaslys
varð i Reykjavik um klukkan
fjögur aöfaranótt laugardags-
ins, þegar tvitugur maður féll
fram af svölum á áttundu hæð
háhýsis við Ljósheima.
Engin vitni voru að þvi þeg-
ar maðurinn féll fram af svöl-
unum, sem eru sameiginlegar
með heilli hæð i húsinu, en
skömmu áður hafði fólk i hús-
inu haft tal af honum og er tal-
ið að hann hafi verið drukkinn.
Sementssala verksmiðjunnar
var 158.000 tn. 1974. Svavar Páls-
son kvað starfsmenn verk-
smiðjunnar hafa áætlað, að sala
yrði 120.000 tn. á þessu og að auki
26.000 tn. til sérþarfa (Sigalda
o.fl.) og sú áætlun hefði verið bor-
in fram undir áætlanadeild
Framkvæmdastofnunar, sem
hefði gert ráð fyrir meiri sam-
drætti og áætlað söluna 108.000
tn. Runin hefur hins vegar orðið
önnur þvi salan var orðin 54.000 tn
i júnilok, þrátt fyrir verkfall, en
var 58.000 tn á sama tima i fyrra.
Maðurinn var aðkomumaö-
ur i húsinu, en ekki er vitað tii
að hann hafi verið að heim-
sækja neinn sérstakan aðiia.
Að svo stöddu er ekki unnt
að birta nafn mannsins, en
hann er fæddur árið 1955, var
ókvæntur, barnlaus og bjó
heima hjá foreldrum sinum.
Ekki vitum við hvort það
er fylgikvilli kvennaársins
eða ekki, að stúlkurnar við
vegginn virðast láta sig litlu
skipta karimanninn á gras-
inu, þrátt fyrir tilburði hans
til að draga athygli þeirra að
sér: Timamynd Róbert.
SJ-Reykjavík. Likanið á með-
fylgjandi mynd er af iþróttamiö-
stöð Vestmannaeyinga, sem senn
ris af grunni i Brimhólalaut við
Illugagötu. Hærri hluti likansins
er iþróttahúsið ásamt búnings-
herbergjum, en lægri byggingin
verður sundlaug ásamt búnings-
klefum. 1 tengibyggingunni
verður sameiginlegt anddyri, 50
fermetra þrekþjálfunarsalur og
fundaaðstaða.
Iþróttamiðstöðin verður mið-
svæðis i kaupstaðnum, þegar lok-
ið verður byggingu nýja hverfis-
ins i vesturbænum. Útivistar og
iþróttasvæði bæjarins er þarna
norður og vestur af.
Búið er að taka grunn að húsinu
og fylla hann, enn fremur slá upp
fyrir sökklum. Byggingin var
boðin út, og annast danskt fyrir-
tæki, Klemennsen og Nielsen,
framkvæmdir, en eingöngu
Islendingar vinna við fram-
kvæmdir eins og er, fyrir utan
fjóra Dani, sem eru i Eyjum við
stjórn verksins. Miðstöðin var
teiknuð hjá teiknistofu prófessor
Pauls Kjærgaard.
Iþróttamiðstöðin verður 3.300
fermetrar, á einni hæð 20x40
metra völlur verður á gólfi
iþróttahússins, en sundlaugar-
kerið verður 25x11 metrar. A þaki
verður grár pappi, festur með
listum, en skærari litir verða á
göflum og við glugga.
Að sögn Páls Zophoniassonar
bæjartæknifræðings verður sund-
laugin væntanlega tilbúin i mai —
júni að ári og iþróttasalurinn i
ágúst.
sementsskortsins
SJ—Reykjavik. Unnið er við út-
skipun á sementi hjá Sements-
verksmiðju rikisins frá 7 á
morgnana til 11 á kvöldin þessa
dagana. Að sögn Svavars Páls-
sonar forstjóra verksmiðjunnar
má gera ráð fyrir þvi að á næst-
unni verði sementsskortur úr sög-
unni norðanlands og annars stað-
ar, þar sem hans hefur orðið vart.
Næsta sementsskip fer til Vest-
fjarða með 1200 tn og siðan fer
skip norður og verður komið
þangað i næstu viku.
Um sementsskortinn nyðra
sagði Svavar Pálss. að kaupend-
ur á Ákureyri — Steypustöðin og
KEA — hefðu i vor gert ráð fyrir
verulega miklum samdrætti, og i
aprillok hefði verksmiðjan lagt að
þeim að kaupa meira en þeir
raunverulega vildu. Siðan kom
verkfall og tafir á sementsdreif-
ingu, en raunin hefur orðið sú, að
samdráttur hefur ekki orðið i
sementssölunni.
Pantanir á 7000. tn á sementi
lágu fyrir, þegar verkfallinu i
ríkisverksmiðjunum lauk og tókst
að afgreiða þær á fjórum vikum
Engar pantanir biöu frá þvi fyrir
verkfall. Flutningsskip verk-
smiðjunnar var erléndis I verk-
fallinu og lá siðan teppt á
Akranesi með farm. Verksmiðjan
hefur fengið önnur skip til
sementsflutninga eftir að verk-.
fallinu lauk. Þeir, sem brýnasta
þörf hafa fyrir sement hafa sótt
það sjálfir á bilum, og greiðir
flutningajöfnunarsjóður hluta af
flutningskostnaði.