Fréttablaðið - 12.03.2005, Síða 2
2 12. mars 2005 LAUGARDAGUR
Hafís nálgast landið:
Grímseyingar gera varúðarráðstafanir
HAFÍS Hafís er nærri landi við Vest-
firði, úti fyrir öllu Norðurlandi og
austur fyrir Langanes. Hreppstjór-
inn í Grímsey segir þungt hljóð í
eyjarskeggjum en í gær sóttu
Grímseyingar vír til Dalvíkur og
var ætlunin að strengja hann fyrir
höfnina til að verja báta og hafnar-
mannvirki.
Bjarni Magnússon, hreppstjóri í
Grímsey, segir að ísinn hafi verið
kominn nálægt eyjunni í gærmorg-
un og sjáist þá vel frá byggðinni.
„Þegar líða tók á daginn fjarlægðist
hann aftur og rak austur eftir en nú
er spáð norðaustlægum áttum og þá
viðbúið að hann leggist alveg að eyj-
unni. Það er ekki gott hljóð í mann-
skapnum í eyjunni og allt útlit fyrir
að landsins forni fjandi lami at-
vinnulífið í Grímsey,“ segir Bjarni.
Þór Jakobsson veðurfræðingur
segir fulltrúa frá Almannavörnum
hafa fundað með veðurfræðingum á
Veðurstofunni í gær og vel sé fylgst
með ísnum. Siglingaleiðin fyrir
Horn var greiðfær í gær en Þór
segir hana varasama í myrkri
vegna stakra jaka. Sömuleiðis er
siglingaleiðin við Óðinsboga í vest-
anverðum Húnaflóa varhugaverð.
- kk
Dráp ítalska leyniþjónustumannsins:
Verðir Negropontes skutu
ÍRAK, AP Bandaríski sendiherrann
John Negroponte var á fundi með
yfirmanni bandaríska heraflans í
Írak í nágrenni við flugvöllinn í
Bagdad þegar hermenn, sem falið
hafði verið að gæta öryggis sendi-
herrans, skutu ítalskan leyniþjón-
ustumann og særðu blaðakonuna
Giuliönu Sgrena, rétt eftir að tekist
hafði að leysa hana úr haldi íraskra
mannræningja 4. mars síðastliðinn.
Frá þessu greindi talsmaður banda-
ríska sendiráðsins í Bagdad í gær.
Ítölsk dagblöð greindu frá því í
gær að komið hefði í ljós að stjórn-
endur bandaríska herliðsins í Írak
hefðu að hluta til verið upplýstir
um ferðir ítalska leyniþjónustu-
mannsins Nicola Calipari og
kollega hans. Lítið hafi hins vegar
verið vitað um erindi þeirra í
Bagdad.
Að Calipari skyldi hafa týnt lífi
í skothríð bandarískra hermanna
eftir að hafa frelsað gíslinn
Sgrena hefur valdið mikilli
hneykslan á Ítalíu. Fjölmenn
minningarganga um hann fór
fram í Róm í gærkvöld, réttri viku
eftir andlát hans. ■
Samstarfið yrði
varla án átaka
Margir fréttamenn Útvarps íhuga uppsagnir vegna ráðningar fréttastjóra.
Formaður Félags fréttamanna sér ekki fyrir sér að fréttamenn geti starfað
með nýjum fréttastjóra í ljósi þess sem á undan er gengið.
RÍKISÚTVARPIÐ Jón Gunnar Grjetars-
son, formaður Félags fréttamanna
á Ríkisútvarpinu, segist ekki sjá
fyrir sér hvernig samstarf frétta-
manna og nýráðins fréttastjóra
fréttastofu Útvarps geti gengið upp
án átaka og þess sem hann kallar
sérkennilegra vinnubragða.
Ekkert varð af fundi þeim með
Markúsi Erni Antonssyni útvarps-
stjóra sem stjórn Félags frétta-
manna á Ríkisútvarpinu fór fram á
snemma í gærmorgun. Jón Gunnar
sagði menn bíða viðbragða Markús-
ar en standa fast við þær ályktanir
sem honum hafi verið sendar.
Í þeim ályktunum er farið fram
á að útvarpsstjóri endurskoði hið
fyrsta þá ákvörðun sína að ráða
Auðun Georg Ólafsson í starf
fréttastjóra Ríkisútvarpsins. Enn
fremur hefur verið skorað á Auðun
Georg að endurskoða sína afstöðu í
kjölfar þess uppnáms sem ráðning
hans hefur ollið.
Jón Gunnar segir að meðan
Markús Örn útvarpsstjóri sitji fast-
ur við sinn keip standi Félag frétta-
manna fast við samþykktir sínar og
ályktanir. „Samþykkt okkar um að
lýsa yfir vantrausti á Markús Örn
stendur meðan hann sér ekki
ástæðu til að svara. Hvað Auðun
Georg varðar áttum við stutt spjall
saman en þar kom ekkert nýtt fram
og það er því biðstaða áfram.“
Formaðurinn sagði enn fremur
að margir veltu uppsögnum fyrir
sér á fréttastofu Ríkisútvarpsins og
hljóðið í starfsmönnum væri eðli-
lega afar þungt. Þegar hefur einn
starfsmaður sagt formlega upp
vegna ráðningar Auðuns; Jóhann
Hauksson, dagskrárstjóri Rásar 2.
- aöe/jss
Hannes Hólmsteinn:
Skilar inn
gögnum
DÓMSMÁL Frestur Hannesar Hólm-
steins Gissurarsonar til að skila
g r e i n a r g e r ð
vegna máls
sem Auður
Laxness, ekkja
Halldórs Lax-
ness, hefur
höfðað gegn
Hannesi rann
út í gær. Heim-
ir Örn Her-
bertsson, lög-
fræðingur Hann-
esar segir að öll-
um gögnum hafi verið skilað inn
sem óskað var eftir.
Auður stefndi Hannesi Hólm-
steini fyrir að hafa brotið á
höfundarrétti Halldórs „með
ítrekuðum og grófum hætti“ í
fyrsta bindi ævisögu skáldsins. Er
Hannesi stefnt fyrir 120 atriði
sem sögð eru framin af ásetningi
eða stórfelldu gáleysi. Þess er
krafist að Hannes verði dæmdur
samkvæmt 54. grein höfundar-
laga sem kveða á um fjársektir
eða fangelsi í allt að tvö ár. Málið
var þingfest fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í nóvember. - ss
EFTA og Taíland:
Samið um
fríverslun
TAÍLAND, AP Viðræður um fríversl-
unarsamning milli Taílands og
EFTA, Fríverslunarsamtaka
Evrópu, hefjast í maí í vor. Frá
þessu greindi talsmaður tælenska
viðskiptaráðuneytisins í gær. Að
mati ráðuneytisins má búast við
því að viðskipti Taílands við
EFTA-ríkin – sem auk Íslands eru
Noregur, Sviss og Liechtenstein –
muni með fríverslunarsamningn-
um aukast um 15% og auka fjár-
festingar EFTA-ríkjanna í
Taílandi.
Gert er ráð fyrir að samningur-
inn taki gildi um mitt næsta ár. ■
Eitt ár frá harmleiknum
í Madríd:
Spánverjar
sorgbitnir
SPÁNN, AP Spánverjar minntust
þess í gær að rétt ár var liðið frá
sprengjuárásum
h r y ð j u v e r k a -
manna á járn-
brautarlestir í
Madríd, sem
kostuðu 191
mann lífið og
særðu fleiri en
1.500.
Jóhann Karl
Spánarkonungur
og Soffía drottn-
ing fóru fyrir
opinberri minn-
ingarathöfn sem spænskir og er-
lendir leiðtogar sóttu í Retiro-garð-
inum í Madríd. Við athöfnina var
vígður minningarreitur um fórnar-
lömb hryðjuverkanna. Þar hefur
verið plantað 192 ólífu- og kýprus-
trjám, einu fyrir hvern sem dó í lest-
arsprengjutilræðunum og einu til
fyrir lögreglumann sem dó í atlögu
gegn hryðjuverkamönnunum. ■
SPURNING DAGSINS
Ómar, kallast þetta ekki að
fara ævintýralega langt yfir
lækinn eftir vatninu?
„Meðan við vitum hvert við stefnum er
þetta allt í lagi.“
Súðavíkurhreppur seldi nýlega einbýlishús sem
hreppurinn lét reisa fyrir 20 milljónir króna á 16
milljónir og hyggst reisa annað slíkt á næstunni.
Ómar Már Jónsson er sveitarstjóri Súðavíkurhrepps.
BÍLL ÍTALANNA
Á þessari mynd, sem birt var í ítölsku sjónvarpi á þriðjudag, sést bíllinn sem sagt er að
Calipari og Sgrena hafi verið farþegar í er skotið var á þau.
FÓRNARLAMBA
MINNST
ÁFRAM FUNDAÐ
Gísli Tryggvason, framkvæmdastjóri Bandalags háskólamanna, fór yfir ýmis lagaleg atriði með fréttamönnum á Ríkisútvarpinu á fundi í
hádeginu í gær.
BORGARÍS VIÐ SLÉTTU
Í fyrradag rak brot úr borgarísjaka á land á
Melrakkasléttu og var auk þess töluvert
íshröngl í fjörunni.
M
YN
D
/J
SS
Skotárás:
Þrjú myrt í
dómsal
BANDARÍKIN, AP Þrír létust og einn
særðist lífshættulega í skotárás í
dómsal í Atlanta í Bandaríkjunum
í gær. Árásarmaðurinn var maður
sem verið var að rétta yfir en
hann var ákærður fyrir nauðgun.
Dómarinn, dómsritari og ótil-
greindur einstaklingur létu lífið í
árásinni. Árásarmaðurinn hljóp út
úr réttarsalnum eftir árásina,
rændi bíl af manni og notaði hann
á flótta undan lögreglu. Hann
gekk enn laus í gærkvöldi. ■
HANNES
HÓLMSTEINN
GISSURARSON