Fréttablaðið - 12.03.2005, Qupperneq 6
6 12. mars 2005 LAUGARDAGUR
Slökkviliðsturninn í Skógarhlíð rifinn:
Eins konar erfidrykkja
TILVERAN „Við horfum á eftir hon-
um með miklum söknuði,“ sagði
Jón Viðar Matthíasson slökkvi-
liðsstjóri meðan unnið var að
því að rífa turninn við Slökkvi-
stöðina í Skógarhlíð. Reyndar
var tregi manna svo mikill að
þegar fyrrverandi slökkkviliðs-
menn komu í sína mánaðarlegu
kaffiheimsókn í fyrradag var
stemmningin eins og í erfi-
drykkju, að sögn Jóns Viðars.
Turninn var reistur 1967 og
var upphaflega notaður til að
þjálfa slökkviliðsmenn en
einnig til að þurrka strigaslöng-
ur sem þá voru við lýði. Fyrir
nokkrum árum var hann dæmd-
ur ónýtur en þó hefur hann
fengið að tóra síðustu ár vegna
hlýhugs manna til hans.
Turninn vakti hrifningu
margra þegar hann var sveipað-
ur jólaskrauti. Spurður hvort
slökkviliðsmenn hafi fundið
annan stað til að skreyta svaraði
Jón Viðar því að það hefði verið
Björn Hermannsson sem hefði
komið þeim sífellt á óvart með
skreytingu sinni. Þeir gætu trú-
að að hann komi þeim aftur á
óvart þó að turninn verði farinn.
- jse
KOSNINGAR Allnokkrir starfsmenn
Háskóla Íslands áttu í erfiðleikum
með að neyta atkvæðisréttar síns
við rektorskjör á fimmtudag
vegna ósamræmis í störfum kjör-
stjórnar.
Einn þessara starfsmanna,
þeldökk kona, mætti á kjörstað
með greiðslukort en var neitað
um kjörseðil í fyrstu þar eð enga
kennitölu var að finna á kortinu.
Konan benti á að ljósmynd af sér
væri á kortinu sem hefði fram að
þessu nægt henni til að kjósa í
borgar- og alþingiskosningum.
Henni var sagt að strangari regl-
ur giltu við rektorskjör. Eftir
nokkurt þóf fékk konan þó loks að
neyta atkvæðisréttar síns.
Fréttablaðið hefur haft spurnir
af fjölmörgum starfsmönnum og
stúdentum Háskólans sem mættu
á kjörstað á fimmtudag með skil-
ríki án kennitölu og áttu ekki í
neinum vandræðum með að kjósa.
Þeldökka konan virðist skera sig
úr þeim hópi.
Þá virðast einhverjir starfs-
menn skólans hafa dottið út af
kjörskrá. Þannig var Arnfríði
Guðmundsdóttur, dósent í guð-
fræði, neitað að kjósa, en hún er í
fæðingarorlofi.
Ekki náðist í Aðalheiði Jónas-
dóttur, formann kjörnefndar, í
gær vegna þessa ósamræmis. - jse
Drengileg kosninga-
barátta heldur áfram
Kosið verður á fimmtudag í seinni umferð kosningar um rektor Háskóla Ís-
lands. Þá verður kosið milli sigurvegara kjörsins í fyrradag, prófessoranna
Ágústs Einarssonar og Kristínar Ingólfsdóttur.
REKTORSKJÖR Ágúst Einarsson, pró-
fessor í rekstrarhagfræði, og
Kristín Ingólfsdóttir, prófessor í
lyfjafræði, urðu efst í rektorskjöri
innan Háskóla Íslands á fimmtu-
dag. Því verður kosið á milli þeirra
tveggja næsta fimmtudag, en hinir
frambjóðendurnir tveir, Einar
Stefánsson, prófessor í augnlækn-
ingum, og Jón Torfi Jónasson,
prófessor í uppeldis- og menntun-
arfræði, eru fallnir úr leik.
Í hádeginu á þriðjudaginn 15.
mars verður haldinn kappræðu-
fundur milli Ágústs og Kristínar í
Háskólabíó.
Kristín hlaut 28,7 prósent
gildra atkvæða, Ágúst hlaut 27,6
prósent, Jón Torfi hlaut 24,7 pró-
sent og Einar hlaut 19,1 prósent
gildra atkvæða. Allir frambjóð-
endur eru sammála um að kosn-
ingabaráttan hafi verið afar
drengileg.
Ágúst segist mjög ánægður
með þessa niðurstöðu
og er bjartsýnn á
framhaldið. „Munurinn er tiltölu-
lega lítill, ekkert sem skiptir máli,
en nú byrjar þetta upp á nýtt.“
Hann segir jafnframt að hann hafi
ákveðið að gegna starfinu einung-
is í fimm ár, nái hann kjöri sem
rektor. „Þetta er eitthvað sem ég
hef gert upp við mig. Þetta er
verkefni og ég myndi helga mig
því í fimm ár, en svo myndi ég
snúa mér aftur að rannsóknum og
kennslu.“
Kristín segir niðurstöðuna hafa
komið sér á óvart. Þarna hafi hún
verið í hópi sterkra og verðugra
meðframbjóðenda. „Þetta var auð-
vitað afskaplega ánægjulegt.“
Spurð að því hvort það kitli ekki að
vera komin skrefinu nær því að
verða fyrsti kvenrektor Háskól-
ans segir hún þetta vissulega
mikilvægan áfanga til að ná loka-
markmiðinu. „Ég mun gera það
sem ég get til að koma stefnumál-
um mínum og áherslum á fram-
færi þessa viku.“
Einar og Jón Torfi segjast báðir
sáttir sig við niðurstöðuna, en
vilja ekki gefa upp hvorn fram-
bjóðandann þeir styðji nú. „Nú
ætla ég að draga mig úr barátt-
unni og fólk gerir það bara upp við
sig sjálft hvern það styður,“ segir
Jón Torfi.
svanborg@frettabladid.is
Búnaðarþing:
Búnaðargjald
leggist af
LANDBÚNAÐARMÁL Starfshópur sem
landbúnaðarráðherra setti á fót til
að fjalla um málefni Lánasjóðs
landbúnaðarins hefur ekki lokið
störfum sínum. Því varð minna úr
umræðum um lánasjóðinn á Bún-
aðarþingi en við var búist.
Starfshópur á þinginu komst
þó að þeirri niðurstöðu að í ljósi
gjörbreyttra aðstæðna á lána-
markaði séu forsendur fyrir
áframhaldandi innheimtu búnað-
argjalds til sjóðsins brostnar.
Verði niðurstaða starfshóps ráð-
herra sú að leggja beri sjóðinn
niður verði að tryggja hagsmuni
og réttarstöðu skuldara sjóðsins.■
AUKNAR GJALDEYRISTEKJUR
Gjaldeyristekjur ferðaþjónust-
unnar jukust um 5,4 prósent á
milli áranna 2003 og 2004.
Ferðaþjónustan hafði rúma 39
milljarða í gjaldeyristekjur í
fyrra. 26 milljarðar voru til
komnir vegna eyðslu erlendra
ferðamanna hér og þrettán
milljarðar voru fargjaldatekjur.
ÁNÆGÐ MEÐ ÍSLENSKT Almenn-
ingur er jákvæður gagnvart ís-
lenskum vörum samkvæmt nýrri
könnun IMG Gallup fyrir Samtök
iðnaðarins. 95,5% þeirra sem
keyptu íslenska byggingarvöru
voru jákvæð gagnvart henni,
97,8% gagnvart íslenskri hönnun-
arvöru, 98,2% gagnvart mat- og
drykkjarvöru og 96,7% gagnvart
neysluvöru til daglegra nota.
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
Opið LAUGARDAG 10 -14:30
Stór og
fallegur
humar
Fullt af girnilegum fiskréttum
Ætlarðu að skipta um bíl á
þessu ári?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er söknuður að Kasparov úr
skákinni?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
74%
26%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
Öll gild atkvæði:
Ágúst Einarsson 27,6%
Einar Stefánsson 19,1%
Jón Torfi Jónasson 24,7%
Kristín Ingólfsdóttir 28,7%
Háskólamenntaðir starfsmenn:
Ágúst Einarsson 26,0%
Einar Stefánsson 21,1%
Jón Torfi Jónasson 21,8%
Kristín Ingólfsdóttir 31,2%
Aðrir starfsmenn:
Ágúst Einarsson 31,5%
Einar Stefánsson 3,4%
Jón Torfi Jónasson 38,1%
Kristín Ingólfsdóttir 27,0%
Stúdentar:
Ágúst Einarsson 28,4%
Einar Stefánsson 18,3%
Jón Torfi Jónasson 26,1%
Kristín Ingólfsdóttir 27,2%
KOSNING TIL REKTORS
Vægi atkvæða skiptist þannig; háskólamenntaðir starfsmenn 60%, aðrir starfsmenn 10% og stúdentar 30%.
Heimild: hi.is, Heimasíða Háskóla Islands
MÖGULEG TÍMAMÓT
Ef Kristín Ingólfsdóttir
verður kjörin rektor Há-
skóla Íslands verður hún
fyrsta konan til að sinna
því starfi.
EINUNGIS TIL FIMM ÁRA
Ágúst Einarsson segist líta á
rektorsstarfið sem ákveðið
verkefni sem hann hafi ákveð-
ið að sinna eingöngu í fimm
ár, verði hann kjörinn nú.
TURNINN VIÐ SLÖKKVISTÖÐINA
Þegar slökkviliðsmenn hittust í fyrradag
ásamt kollegum sínum sem komnir eru á
eftirlaun var engu líkara en að þeir væru í
erfidrykkju.
Rektorskosningar í Háskóla Íslands:
Starfsmönnum vísað frá kjörstað
■ ATVINNUGREINAR