Fréttablaðið - 12.03.2005, Page 30
30 12. mars 2005 LAUGARDAGUR
Bretinn Cat Stevens er vafa-lítið sá frægasti sem þettahefur gert en einnig koma
upp í hugann söngvarinn Páll Rós-
inkranz og nú síðast Brian „Head“
Welch, gítarleikari rokkhljóm-
sveitarinnar Korn.
Yusuf Islam verður til
Cat Stevens fæddist í júlí 1947 og
var skírður Steven Demetre
Georgiou. Móðir hans var sænsk
og faðir hans grískur. Hann var
yngstur þriggja systkina og
bjuggu þau fyrir ofan veitinga-
stað í eigu fjölskyldunnar.
Stevens var rólegt og viðkvæmt
barn sem hafði sig lítið í frammi.
Hann fékk kristilegt uppeldi og
gekk í kaþólskan skóla. Hann
fékk fljótlega áhuga á rokktónlist
og árið 1965 fór hann að troða upp
undir nafninu Steve Adams.
Hann fékk plötusamning við
Decca Records, breytti nafninu á
ný í Cat Stevens og gaf út sitt
fyrsta smáskífulag, I Love My
Dog, aðeins átján ára. Hann fór
smám saman að vekja athygli
fyrir þjóðlagakennda slagara sína
og sló í gegn með lögum á borð við
Wild World, Moon Shadow, Peace
Train, Morning Has Broken og
Father and Son. Nældi hann sér í
átta gullplötur á glæstum ferli
sínum og átti tíu vinsæl smáskífu-
lög í Bretlandi og fjórtán til við-
bótar í Bandaríkjunum.
Eftir því sem frægðin jókst
dvínaði aftur á móti áhugi Stevens
á bransanum og því sem honum
fylgdi og hætti loks að koma fram
opinberlega seint á áttunda ára-
tugnum. Hann sneri sér að
múslimatrú árið 1977 og tók upp
nafnið Yusuf Islam. Gekk hann í
hjónaband sem komið hafði verið
í kring og eignaðist fimm börn
með eiginkonu sinni. Islam gerð-
ist kennari og málsvari fyrir trú-
arbrögð sín og stofnaði múslima-
skóla í London árið 1983. Núna er
hann virkur meðlimur í breska
múslimasamfélaginu.
Islam hætti þó aldrei í tónlist-
inni. Hann hefur gefið út nokkrar
trúarplötur, afar frábrugðnar
hans fyrri verkum og voru ekki
sérlega vinsælar. Á síðasta ári gaf
hann þó út nýja útgáfu af lagi sínu
Peace Train í mótmælaskyni við
stríðið í Írak.
Frelsun Páls Rósinkranz
Páll Rósinkranz fæddist árið 1974.
Hann sló í gegn með hljómsveit-
inni Jet Black Joe, og söng inn á
þrjár plötur með sveitinni á árun-
um 1992 til 1994. Hétu þær Jet
Black Joe, You Ainít Here og
Fuzz.
Þegar sveitin var við það að
skrifa undir stóran plötusamning
við erlent útgáfufyrirtæki lagði
hún upp laupana öllum að óvörum
árið 1996. Ástæðan var sú að Páll
frelsaðist eftir að hafa fengið sig
fullsaddan af rokkstjörnulífern-
inu sem fylgdi sveitinni. Sama ár
og Jet Black Joe hætti kom út
hans fyrsta sólóplata, I Believe in
You, þar sem hann söng um Jesú
Krist.
Páll tók þátt í ýmsum tónlistar-
verkefnum næstu árin en sendi
ekki frá sér nýja plötu fyrr en árið
2000. Hún bar heitið No Turning
Back og flutti Páll þar þekktar er-
lendar ballöður. Árið eftir kom svo
platan Your Song með sams konar
efnisvali og hlutu báðar plöturnar
mjög góðar viðtökur. Fór sala
þeirra yfir 15.000 eintök hvor, sem
þykir afar gott hér á landi. Fyrir
þremur árum kom síðan platan
Nobody Knows út en síðan þá hef-
ur Páll haft hægt um sig á íslenska
hljómplötumarkaðinum.
Um verslunarmannahelgina
2002 kom Jet Black Joe óvænt
aftur saman fyrir Eldborgarhátíð-
ina og hefur spilað af og til allar
götur síðan. Engin ný hljóðvers-
plata hefur þó litið dagsins ljós
með sveitinni.
Sagði skilið við Korn
Brian „Head“ Welch, sem er einn
af stofnendum Korn, sagði skilið
við sveitina á dögunum eftir 13
ára samstarf og sex hljóðversplöt-
ur. Sagði hann ástæðuna vera
trúarvakningu sem hann hefði
orðið fyrir.
Korn hefur notið mikilla
mikilla vinsælda undanfarin ár og
hafa plötur sveitarinnar selst í
ellefu milljónum eintaka í Banda-
ríkjunum. Orðrómur hafið verið
uppi í nokkrar vikur um að Head
væri óánægður og sumum kom
það því ekki á óvart þegar hann
hætti störfum.
Head, sem er 34 ára, útskýrði
mál sitt fyrir framan um það bil
tíu þúsund meðlimi Valley Bible
trúarsöfnuðarins í Bakersfield í
Kaliforníu. Eftir að hafa sýnt ný
húðflúr á hálsi sínum (Matthew
11:28) og á hnefa (JESUS), sagðist
Head hafa gengið til liðs við söfn-
uðinn og fyrirhugaði ferð til Ísra-
els þar sem æðstiprestur kirkj-
unnar ætlaði að endurskíra hann í
ánni Jórdan. Hann sagðist hafa
fengið nóg af rokkstjörnulífern-
inu. Á meðan aðrir liðsmenn sveit-
arinnar hafi verið að skemmta sér
hafi hann beðið inni í rútu og lang-
að til að deyja. Hann talaði einnig
um að hann vildi sinna uppeldi 6
ára dóttur sinnar betur sem ein-
stæður faðir.
Welch ætlar að gefa út nýtt
efni undir nafninu „Head“ og ekki
verður um að ræða kristna tónlist.
Verður hún þess í stað meira í ætt
við tónlist Korn. Textarnir verða
þó ekki litaðir reiði eins og sú
sveit er þekkt fyrir. „Head“ vill
koma því til skila til aðdáenda
sinna að það sé gleði eftir reiðina
og ljós við endann á göngunum,
eins og hann orðar það sjálfur.
Skipt um trúarbrögð
Fjölmargir tónlistarmenn hafa
skipt um trúarbrögð eða orðið enn
trúaðri en samt haldið áfram að
gefa út sömu tónlist og áður.
Margir þessara listamanna hafa
gengið í gegnum ýmislegt í tón-
listarbransanum, misnotað vímu-
efni og fengið á endanum nóg. Til
að sigrast á þessum ógöngum hafa
þeir oft og tíðum stólað á andlega
vakningu og náð einhvers konar
sambandi við almættið.
Madonna hefur verið mikið í
sviðsljósinu undanfarið fyrir að
aðhyllast Kaballah-trúarbrögðin
sem hafa verið mikið í tísku hjá
stjörnunum. Hefur hún meðal
annars reynt að fá arftaka sinn
Britney Spears með sér í Kab-
allah-söfnuðinn. „Þegar ég eign-
aðist börnin mín vöknuðu svo
margar spurningar sem ég þurfti
að fá svör við,“ sagði Madonna
eitt sinn. „Ég fann svörin þegar
ég byrjaði að ástunda Kaballah
fyrir sjö og hálfu ári. Ég gerði
mér grein fyrir því að orð mín og
gerðir hafa áhrif og að ég fæ það
til baka sem ég gef frá mér, hvort
sem það er gott eða slæmt. Ég
gerði mér grein fyrir samhenginu
á milli sjálfrar mín og umheims-
ins.“
Michael Jackson, sem hefur
verið mikið milli tannanna á fólki
undanfarið, gekk til liðs við
múslimasöfnuðinn Children of
Islam. Kannski ekki skrítið þar
sem hann hefur gengið í gegnum
ýmislegt í sínu lífi. Breski söngv-
arinn Cliff Richard frelsaðist á
sínum tíma og rapparinn DMX
lýsti því yfir fyrir skömmu að
hann ætlaði að einbeita sér að
biblíulestri í framtíðinni. Dave
Gahan, söngvari Depeche Mode,
var hætt kominn í dóprugli þegar
hann fór að trúa á Guð og syngur
nú um frelsarann í flestum text-
um sínum. Nick Cave er einnig
mjög trúaður og söng meðal ann-
ars God Is in the House á plötu
sinni No More Shall We Part. Svo
mætti lengi áfram telja.
Samkvæmt þessu virðist Guð
vera allt umlykjandi í tónlistar-
heiminum, enda er þetta bransi
þar sem stjörnurnar þurfa á allri
þeirri hjálp að halda sem þær geta
fengið. Hvar er þá betra að fá
hana en í öruggum örmum
almættisins?
freyr@frettabladid.is
Vorsýning Kynjakatta
verður haldin 12. og 13. mars 2005
í reiðhöll Gusts, Álalind, Kópavogi.
Sýningin er opin frá klukkan 10 - 18
báða dagana.
PÁLL RÓSINKRANZ
Páll hefur átt farsælan
sólóferil eftir að hann
hætti í Jet Black Joe.
KORN
„Head“, lengst til vinstri,
yfirgaf félaga sína í Korn
fyrir skömmu og ákvað
að helga líf sitt Guði og
dóttur sinni.
CAT STEVENS
Trúbadorinn fyrrverandi
naut mikilla vinsælda á
sínum tíma.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Það þykir ávallt tíðindum sæta þegar frægir tónlistarmenn ákveða að einbeita sér að trúar-
brögðum. Flest fólk myndi telja það fráleitt að gefa upp á bátinn slíkt stjörnulíferni sem svo
marga dreymir um til þess eins að hægja á sér, krjúpa niður á hnén og segja amen.
Í örmum almættisins