Fréttablaðið - 12.03.2005, Side 31
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er laugardagur 12. mars,
71. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 7.56 13.37 19.20
AKUREYRI 7.42 13.22 19.03
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Viðar Friðfinnsson er bíladellukarl
með stóru béi, en hann hefur átt um
það bil 100 bíla síðan hann fékk bíl-
prófið 18 ára gamall. Hann segir
Kadilakka algjöra eðalbíla.
Nú á hann Cadillac Civil árgerð 1995 sem
hann er búinn að eiga í tvö og hálft ár.
Viðar hefur alveg sérstaka ást á Kadilökk-
um. „Þetta er fjórði Kadilakkinn sem ég
eignast, þetta eru slíkir eðalbílar og þennan
keypti ég bæði af því að hann er svo flottur
og svo er þetta lúxuskerra. Það er ekki síst
fjöðrunin sem er engu lík, maður finnur
aldrei fyrir misfellum í veginum heldur
sígur niður með bílnum eins og í dúnmjúku
rúmi væri,“ segir hann og hlær.
Kadilakkinn er að sjálfsögðu fullbúinn
flottum hljómflutningstækjum og æðis-
legur jafnt utan sem innan með fullkominni
þjófavörn.
„Fólk heldur gjarnan að amerískir bílar
eyði svo miklu, en það er misskilningur,“
segir Viðar. „Á langkeyrslu er þessi bíll að
eyða níu á hundraði og við erum að tala um
300 hestafla mótor. Amerískir bílar eru
ekki heldur dýrir í rekstri því varahlutirnir
eru ódýrari en til dæmis í japanska bíla þó
að oft þurfi að sérpanta í þá amerísku. Þeir
fást bara úti á hlægilegu verði.“
Viðar veit örugglega hvað hann syngur
þvi hann er búinn að vera í þessum bransa
í áratugi og nýlega opnaði hann glæsilegt
bílaverkstæði, A B Bremsur og viðgerðir, í
Akralind 1 í Kópavogi.
„Þar er ég með rúmgott og bjart hús-
næði og geri við allar tegundir bíla. Þótt við
höfum reyndar sérhæft okkur í bremsuvið-
gerðum leggjum við auðvitað áherslu á að
veita góða, persónulega og ódýra þjónustu
og bjóðum alla hjartanlega velkomna með
biluðu bílana sína.“
edda@frettabladid.is
Lúxuskerra með
fjöðrun sem er engu lík
bilar@frettabladid.is
Bílaframleiðandinn
Renault sýndi áhugaverðan
hugmyndabíl á bílasýningunni í
Genf á dögunum. Sagt er frá
bílnum á heimasíðu B&L, bl.is,
en bíllinn, sem heitir Zoé, er
þriggja manna og hannaður
með hliðsjón af þörfum borgar-
búans. Hann er afar lítill, stöð-
ugur og klár í krappar beygjur.
Hann eyðir minna en stærri
bílar og er með mikið flutn-
ingsrými.
Hyundai Sonata
er með lægstu bil-
anatíðnina sam-
kvæmt nýjustu
könnun Consumer
Reports. Könnunin birtist árlega
á vegum bandarísku neytenda-
samtakanna og eru 810 þús-
und bifreiðaeigendur spurðir
um vélarbilanir eða önnur
vandkvæði sem geta verið rak-
in til bílaframleiðandans. Sá bíll
sem var með hæstu bilana-
tíðni, í lægsta sæti í könnun-
inni, var Mercedes Benz E-
Class.
William Clay Ford
eldri, eini eftirlifandi afadrengur
bílafrömuðarins Henry Ford,
ætlar að setjast í helgan stein
eftir meira en hálfrar aldar starf
hjá bílaframleiðandanum Ford.
William Clay, sem verður átt-
ræður á mánudaginn,
ætlar að hætta í
stjórn fyrir-
tækisins í
maí á
þessu ári.
William Clay
er þó við ágæta heilsu og mun
ennþá sinna mikilvægu hlut-
verki í stjórnun fyrirtækisins.
Hann mun hins vegar ekki
gegna neinum formlegum
skyldum fyrir það.
VIÐAR OPNAÐI NÝLEGA BÍLAVERKSTÆÐI Í AKRALIND 1 Í KÓPAVOGI
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
í bílum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA TILBOÐ o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Pabbi, leyfðu
mömmu að
keyra, það er
miklu meira
spennandi!
Hyundai Sonata reynsluekin
BLS. 2
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000