Fréttablaðið - 12.03.2005, Page 52
40 12. mars 2005 LAUGARDAGUR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
15
5
0
2
SMS heimasími
Panasonic KX-TCD300
Tilboð í vefverslun: 8.980 kr.
25% afsláttur
úr heimasíma
í 6 númer
Skráðu þig á siminn.is
Nú getur þú sent SMS
siminn.is/vefverslun
980
Léttkaupsútborgun:
og 750 kr. á mán. í 12 mán.
kr.
Tiboðsverð: 9.980 kr.
Hægt er að senda og taka á móti SMS. Númerabirting fyrir allt að 30 númer.
Símaskrá fyrir 200 símanúmer og nöfn. Innbyggður hátalari fyrir handfrjálsa
notkun. Dagsetning og tími og raddstýring á 20 númerum.
Auk þess að taka myndir nýtur Silja Magnúsdóttir sín vel í
stílíseringu og finnst gott að geta verið með hendurnar í öllu í
sambandi við myndatökuna. Borghildur Gunnarsdóttir
spjallaði við Silju um starfið.
Ljósmyndir og stílíseringar Silju sýna
sterkan og persónulegan stíl sem hún virð-
ist hafa þróað með sér. Myndirnar eru
flestar hráar og töff og gætu vel sómað sér
vel í jaðartískublaði. Hún starfar sem að-
stoðarljósmyndari og þrátt fyrir að vera
aðeins 22 ára hefur hún unnið mörg spenn-
andi verkefni. Hún er nýkomin heim frá
London þar sem hún vann að verkefni fyrir
KB banka en einnig hefur hún starfað sem
aðstoðarmaður ljósmyndara úti í New
York, tekið myndir fyrir förðunarskóla
Eskimo og Nars og unnið fyrir alls kyns
götublöð og fyrirtæki hér heima. „Ég byrj-
aði að stílísera og fattaði svo að mig lang-
aði að fá að ráða öllum pakkanum og þá fór
ég að grípa í myndavélina og basla við að
stilla ljósin sjálf,“ segir Silja.
Hún er núna í fastri vinnu í ljósmynda-
stofunni Photoland þar sem hún er aðstoð-
armaður föður síns og bróður. „Núna er ég
í rauninni allt í öllu, stundum er ég að
stílísera og stundum farða eða ljósmynda.
Ég hef líka verið að velja módel fyrir aug-
lýsingar fyrir ýmis verkefni svo ég er að
vissu leyti líka að vinna frílans fyrir nokk-
ur fyrirtæki.“
Silja byrjaði að taka myndir um 18 ára
aldur þegar hún stundaði nám í Verzlunar-
skóla Íslands og tók myndir fyrir Verzlun-
arskólablaðið. Það skemmtilegasta við ljós-
myndarastarfið finnst henni að vinna með
góðu fólki og einnig finnst henni þægilegt
að geta stýrt stórum hluta vinnunnar sjálf.
„Það er svo gaman að hafa eitthvað í hönd-
unum og fá að ráða því sjálf hvernig ég
ætla að hafa hlutina. Ég er allan daginn að
hugsa um eitthvert verkefni og finnst ég
aldrei vera í fríi frá vinnunni. Mér finnst
líka alltaf rosalega gaman þegar ég fæ að
gera tískuþátt því þá fæ ég að sleppa mér
alveg og gera eitthvað hrikalega skap-
andi.“
Aðspurð hvort hún stefni á að læra
greinina segir hún: „Ég veit það ekki, ef þú
hefðir spurt mig í gær hefði ég svarað allt
öðru. Líklega læri ég eitthvað á þessu sviði,
það gæti vel verið að einn daginn ákveddi
ég að fara í skóla og ljósmyndunin getur
líka nýst mér á mörgum stöðum. Þó ég hafi
oft verið spurð hvaða svið ég ætli að velja
mér finnst mér gott að geta blandað mörg-
um sviðum saman og vil helst hafa hend-
urnar í öllu.“ ■
[5] Þessa mynd stílíseraði Silja en ljósmyndin var tekin af Ara Magg. [6] Stílísering eftir Silju og ljósmynd tek-
in af Ara Magg. Auglýsingin vann til þrennra verðlauna á Ímark-verðlaunaafhendingunni. [7] Silja stílíseraði
fyrir þessa mynd en Ari Magg tók ljósmyndina. Myndin birtist í tískuþætti í tímaritinu Vamm.
[1] Silja tók þessa mynd fyrir tískuþátt í tímaritinu Vamm. [2&3] Í síðasta Verzlunarskólablaði var Silja með
tískuþátt og voru þessar myndir hluti af honum. [4] Þessa mynd tók Silja fyrir auglýsingu fyrirtækisins ÉgC.
SILJA MAGG Hún vinnur sem aðstoðarljósmyndari
á ljósmyndastofunni Photoland. Hún er þó með
hendurnar í öllu sem viðkemur myndatökunum og
grípur stundum í förðun eða stílíseringu.
Silja Magg er
[1] [2]
[3][4]
[5] [6] [7]