Fréttablaðið - 12.03.2005, Page 60
MÓÐUR VIKUNNAR
> MARTA SMARTA FER YFIR MÁLIN
Stíg engin feilspor
Nýjustu „trendin“ í skótískunni koma eins og köld
vatnsgusa framan í marga. Sérstaklega þá sem
hafa upplifað þessa tísku áður og jafnvel oftar en
einu sinni. Ég verð þó að viðurkenna að ég fékk
smá hland fyrir hjartað þegar ég fór að rekast á
„stultuskóna“ í tískublöðunum en um leið popp-
uðu skemmtilegar minningar upp í hugann. Ég var
mjög hrifin af þessari skótísku sem unglingur. Á þeim tíma var hippatískan
svolítið vinsæl, allavega í Árbænum. Ég er þó alls ekki viss um hvort hippa-
tískan hafi náð flugi í öðrum hverfum? Á þessu tímabili versluðum við Árbæj-
ardætur fötin okkar í Spútník og komumst í feitt þegar við uppgötvuðum
flóamarkað Hjálpræðishersins, foreldrum okkar til mikillar mæðu. Á þessu
tímabili keypti ég „stultuskó“ í Spútník sem voru úr plasti og botninn á þeim
minnti á bastkörfu. Þeir voru ekki sérlega þægilegir en ég gekk á þeim heilan
vetur og fílaði mig vel. Vinkona mín var þó örlítið flottari á því en hún hafði
afnot af „stultuskóm“ úr fataskáp ömmu sinnar. Þeir voru mun flottari en
mínir, úr grænu leðri og botninn á þeim var úr ekta við. Ég var svo heppin að
fá þá stundum lánaða en skilaði þeim alltaf aftur með trega. Það sem var svo
gott við þessa skó var hvað þeir gerðu mann spengilegan og hávaxinn og
segja má að þessi skótíska hafi verið himnasending fyrir lágvaxnar. Það voru
þó ekki allir jafn hrifnir af „stultuskónum“. Þegar gesti bar að garði áttu for-
eldrarnir það til að draga fram gersemarnar til þess eins að gera gys að þeim.
Ég lét það ekki á mig fá og notaði skóna bara þeim mun meira eða þangað
til þeir urðu ónýtir. Nú get ég tekið gleði mína á ný því „stultuskórnir“ eru
komnir aftur í tísku. Nú er bara að æfa réttu taktana, ganga bein í baki og
passa mig að stíga engin feilspor.
48 12. mars 2005 LAUGARDAGUR
V egur breska tískuhönnuð-arins Stellu McCartneyhefur legið upp á við síðan
hún útskrifaðist úr St. Martins’s
skólanum í Lundúnum árið 1995.
Tveimur árum eftir útskrift var
hún ráðin sem listrænn stjórnandi
Chloe-tískuhússins í París. Hún
kom með ferska strauma inn í
tískuheiminn og lagði meginá-
herslu á að búa til kvenleg og
þokkafull föt sem væru uppfull af
húmor. Í apríl 2001 yfirgaf hún
Chloe til að stofna tískuhús undir
eigin nafni í samvinnu við GUCCI
Group.
Síðastliðið haust tók Stella það
verkefni að sér að hanna dömu-
línu fyrir íþróttamerkið Adidas.
Þetta er í fyrsta skipti sem há-
tískuhönnuður hannar sportfatn-
að fyrir íþróttamerki. Vor- og
sumarlínan kom í verslanir úti í
heimi á dögunum en hún kemur
ekki til Íslands fyrr en í ágúst
þegar haustvörurnar koma.
Samningur Stellu við Adidas
hljómar upp á að hún geri tvær
línur á ári, vor- og haustlínu. Í
Adidas-línu Stellu er að finna
hlaupaföt, líkamsræktarföt ásamt
sundfötum. Hönnunin er framúr-
stefnuleg, smart og kvenleg og
óhætt er að segja að þessi föt eigi
eftir að hvetja konur til íþrótta-
iðkunar og er það vel. Litasam-
setningarnar spila skemmtilega
sinfóníu. Ljósgrái liturinn er
áberandi ásamt fölbleikum, lilla-
bleikum, ferskjulituðum og eyði-
merkurlituðum. Einnig er tölu-
vert um gyllta tóna út í bláa og
græna. Mikið er lagt í sníðagerð
og nostrað er við hvert smáatriði.
Adidas hefur lengi verið framar-
lega í sportfatnaði en óhætt er að
fullyrða að þetta sé það heitasta
sem er að gerast í íþróttatískunni
sem helst í hendur við ráðandi
tískustrauma. Eina neikvæða við
þessa dýrðlegu hönnun er að ger-
semarnar munu ekki berast til
Íslands fyrr en í ágúst þegar
haustlínan kemur í hús í Adidas
concept store í Kringlunni.
martamaria@frettabladid.is
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10
sími 561 1300
Í tilefni af 30 ára
afmæli verslunar
Láru gullsmiðs
bjóðum við 30-50% afslátt
af völdum vörum
áfram til 17. mars
> BERGLIND ÓMARSDÓTTIR FATAHÖNNUÐUR
Eyði mestum peningum í efni
>>>
Uppáhaldshönnuðir?
„Alexander McQueen er alltaf jafn flott-
ur og svo er ég hrifin af íslenskri hönn-
un. Ég fíla Jón Sæmund og Selmu mjög
vel en þau standa sig vel í bolahönnun.“
Fallegustu litirnir?
„Svartur er alltaf flottastur en ég er líka
hrifinn af grænu, rauðu og appelsínu-
gulu.“
Hverju ertu mest svag fyrir?
„Ég hef alltaf verið jakkafrík, veit ekki
hvað ég á marga en þeir hlaupa á ein-
hverjum tugum.“
Hvaða flík keyptir þú þér síðast?
„Ég keypti mér gallajakka hjá Rögnu
Fróða, en hún er að selja vörur eftir
finnskan hönnuð.“
Hvað finnst þér mest sjarmerandi í
vor- og sumartískunni? „Mér finnst svo
skemmtilegt þegar sólin fer að skína og
allt verður litríkara í verslununum. Ætli
mér finnist ekki öll léttu pilsin mest sjar-
merandi.“
Hvað ætlar þú að kaupa þér fyrir
vorið? „Það er svo sem ekki ákveðið.
Ég er að fara til Kúbu og það er aldrei
að vita nema ég finni mér eitthvað þar.“
Uppáhaldsverslun?
„Ég versla svolítið í Vila í Smáralind. Þar
er hægt að fá flotta boli.“
Hvað eyðir þú miklum peningum í föt
á mánuði? „Ekki miklum. Ég sauma
meira og minna allan fatnað sem ég
nota. Ég eyði meiri peningum í efni en
í föt.“
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án?
„Hermannaúlpunnar sem ég er alltaf í.“
Uppáhaldsflík?
„Levis-gallajakki sem ég keypti í Þýska-
landi fyrir nokkrum árum.“
Ljótasta flík sem þú hefur keypt?
„Ég hef keypt mér svo margt ljótt um
ævina. Ætli fermingarfötin mín toppi
þetta ekki. Ég fermdist í fölbleikum
stretsbuxum og var í fölbleikum jakka
við með skærbleikt ennisband og hvít-
um mokkasínum.“
Stjörnurnar klæðast
Rock & Republic
Ameríska gallabuxnamerkið Rock &
Republic er eitt vinsælasta galla-
buxnamerkið hjá fræga fólkinu í út-
löndum. Kryddpían Victoria Beck-
ham hefur verið það hrifin af merk-
inu að einn af hönnuðum merkisins,
Michael Ball, fékk hana til sam-
starfs við sig og saman bjuggu þau
til sjóðheita gallabuxnalínu.
Að sögn Victoríu var þetta æði
spennandi verkefni fyrir hana þar
sem tískuáhugi hennar er mikill.
Alicia Silverstone, Renée Zellweger
og Cameron Diaz eru líka miklir
Rock & Republic aðdáendur. Það
sem einkennir þessar stjörnugalla-
buxur er hvað þær eru klæðilegar
og úr góðum efnum. Á dögunum
kom gallabuxnasending frá Rock &
Republic til Íslands og eru þær seld-
ar í Gallerí 17 og í Centrum.
Yfirmáta smekklegt!
Hin snjalla Stella McCartney hefur fengið lof fyrir Adidas-línuna.