Fréttablaðið - 12.03.2005, Side 62
Á sunnudaginn verða
haldnir tónleikar með
spænska tenórnum
Placido Domingo. Hann
er oft kallaður konungur
óperunnar og er ein
skærasta stjarna sígildr-
ar tónlistar.
Domingo hélt blaðamannafund í
gær ásamt sópransöngkonunnni
Ana Maria Martinez, en auk þeirra
tveggja koma fram á tónleikunum
Óperukórinn undir stjórn Garðars
Cortes og Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands, en stjórnandi tónleikanna
verður Eugene Kohn.
„Það var yndislegt að vakna við
þetta veður en ég bjóst við meiri
snjó. Kannski er það bara gott, ég
verð að passa upp á röddina,“
sagði Domingo léttur í bragði
þegar fundurinn hófst.
Tenórinn, sem er þekktur fyrir
mikinn knattspyrnuáhuga,
dreymdi um að verða knatt-
spyrnukappi. Hann segist samt
feginn að hafa valið sönginn. „Ef
fótboltann hefði orðið ofan á væri
ég sestur í helgan stein fyrir þrjá-
tíu árum síðan,“ segir þessi við-
kunnanlega stórstjarna og hlær. „Í
dag leikur tónlistin svo stórt hlut-
verk í mínu lífi að mér finnst
ómögulegt að sjá fyrir mér að ég
hefði gert nokkuð annað en að
syngja og ég er þakklátur fyrir
það tækifæri.“
Afkastamikill og langur ferill
Domingo, sem er fæddur í Madríd,
fluttist átta ára gamall til Mexíkó,
þar sem hann lærði fyrst á píanó.
Eftir að sönghæfileikar hans voru
uppgötvaðir sneri hann sér að söng-
námi og kom fyrst fram sem Al-
fredo í óperunni La Traviata í lok
sjöunda áratugarins. „Ég hef verið
ótrúlega heppinn að fá að syngja.
Að ná frama í óperuheiminum kost-
ar mikla vinnu.“ Domingo verður
seint sakaður um að hafa setið með
hendur í skauti. Á fjörutíu ára ferli
hefur hann leikið yfir hundrað hlut-
verk, tekið upp meira en hundrað
plötur og leikið í þremur kvik-
myndaútgáfum af óperum. Þá hefur
hann hlotið níu Grammy-verðlaun
og yfir einn milljarður manna í 117
löndum sá sjónvarpsútsendinguna
frá óperunni Tosca, sem sett var
upp í Róm 1992 þar sem Domingo
fór með aðalhlutverkið. „Ferill
minn er orðinn það langur að ég
söng með móður Ana Maria,“ segir
Domingo og fær viðstadda til þess
að hlæja. Hann leyfir sér þó að
efast um að honum takist að syngja
með dóttur Ana Maria.
Kemur ungu fólki á framfæri
Þrátt fyrir að vera ein skærasta
stjarna óperuheimsins leggur Dom-
ingo sitt af mörkum til þess að koma
óperusöngvurum á framfæri, því
hann stendur fyrir alþjóðlegri
keppni, Operiala, þar sem ungu
hæfileikafólki gefst kostur á að taka
þátt. Þess má til gamans geta að
Ana Maria Martinez vann Pepita
Emil-verðlaunin í þeirri keppni
1995. Domingo vill greinilega vera
viss um að óperuheimurinn verði í
góðum höndum þegar hann kveður
sviðið. Hann segir enn fremur að
það sé honum ekki erfitt að starfa
með ungum stjórnendum og hann
forðist að taka fram fyrir hendurn-
ar á þeim. „Þeir sjá um sitt og ég um
mitt. Röddin er viðkvæmasta hljóð-
færið og söngvarar verða að geta
treyst sínum stjórnanda og að þeir
vinni saman. Þrátt fyrir að vera
stjórnandi sjálfur tek ég ekki fram
fyrir hendurnar á þeim sem eiga að
stjórna mér.“
Fær ennþá sömu tilfinninguna
Domingo segist enn þann dag í dag
fá sömu spennutilfinninguna þegar
hann stígi á sviðið. „Ég veit vel að
við sem erum í þessu erum ekki að
bjarga heiminum, síður en svo. En
þegar fólk kemur til þess að sjá okk-
ur og hlusta á okkur vill það gleyma
sínum vandamálum. Ég gef því allt í
alla mína tónleika,“ segir Domingo.
Hann lofar því að tónleikarnir verði
fyrir alla, því auk aría úr óperum
verði lög sem alllir ættu að þekkja.
Domingo vildi ekkert gefa upp um
hvort hann myndi syngja á íslensku
eða hvaða lag. „Það verður bara rús-
ínan í pylsuendanum, og ef ég segði
ykkur það væri það svona svipað
eins og að fá eftirréttinn á undan að-
alréttinum.“ Fundinum lauk svo
með frekar óvæntu atriði. Gestir
fundarins fengu þá einstakt tæki-
færi til þess að syngja afmælissöng-
inn með meistaranum sjálfum, þeg-
ar í ljós kom að Ana Maria átti
afmæli. freyrgija@frettabladid.is
50 12. mars 2005 LAUGARDAGUR
EKKI MISSA AF…
... sýningu Sigríðar Salvars-
dóttur frá Vigur, í menningarmið-
stöðinni Gerðubergi sem lýkur nú
um helgina. Hún sýnir þar lista-
verk sem gerð eru úr mannshári
og hefur sýningin vakið verð-
skuldaða athygli.
... tónleikum í Salnum í Kópa-
vogi klukkan 13 í dag þar sem
flutt verða svokölluð
Sononymous-verk eftir Hilmar
Þórðarson, sem eru gagnvirk
tónverk samin fyrir tölvu og klass-
ísk hljóðfæri, mannsrödd og
mannslíkama.
... áströlsku kvikmyndinni
Picnic at Hanging Rock, sem
Peter Weir gerði árið 1975. Kvik-
myndasafn Íslands sýnir hana í
Bæjarbíói í Hafnarfirði klukkan 16
í dag.
Franska hljómsveitin Von Magnet verður
með tónleika á Nasa í dag þar sem flutt
verður tilraunakennd blanda af flamenco-
tónlist og raftónlist.
Von Magnet er ekki bara hljómsveit, því með
í för eru leikarar, dansarar og myndlistar-
menn sem í sameiningu búa til fjölskrúðuga
sýningu með tónlist, leiklist, vídeóinnsetn-
ingu og flamencodansi.
Hljómsveitin var stofnuð í London árið 1985
og hefur mikið komið fram á neðanjarðar-
sviði Lundúnaborgar. Fyrstu plöturnar gerðu
þeir undir stjórn Ken Thomas, sem er fram-
leiðandi Sigur Rósar og starfaði einnig á sín-
um tíma með Sykurmolunum.
Nýjasta platan þeirra, sú tíunda í röðinni,
heitir De l’aimant og koma þeir hingað til
lands í tilefni af útkomu hennar.
Sveitina skipa Phil Von sem dansar, leikur á
trommur, gramsar í tölvum og syngur, Flore
Magnet söngvari sem einnig sér um mynd-
böndin, sviðslistina og leiklistina, Yana
Maizel sem dansar, Sabine Van Den Oever á
flamenco-gítar og Nikho Def, sem er hljóð-
maður.
Tónleikarnir á Nasa hefjast klukkan 17 og
aðgangur er ókeypis.
Kl. 15.00
Sigrid Valtingojer opnar í dag sýninguna
Hörund jarðar í Listasafni ASÍ við
Freyjugötu þar sem hún sýnir innsetningu
og frottage-myndir. Einnig opnar Kristín
Garðarsdóttir sýningu á keramikverkum
á sama stað.
menning@frettabladid.is
Rafmögnuð flamenco-tónlist á Nasa
!
VERÐUR Á BLÚSHÁTÍÐ KK kemur fram
með gömlu félögum sínum í Grinders á
Blúshátíðinni.
Miðasala á
Blúshátíð
Blúshátíð í Reykjavík verður
haldin í dymbilvikunni í ár eins og
í fyrra. Hátíðin verður prýdd fjöl-
mörgum blústónlistarmönnum,
bæði landsliðinu sem og frábær-
um erlendum gestum.
Meðal þeirra sem koma fram á
hátíðinni er hljómsveitin Kentár
en sérstakur gestur þeirra er
Björgvin Gíslason gítarleikari,
Smokie Bay Blues band, Hot
Damn! og Mood. Einnig kemur
hinn ástsæli tónlistarmaður KK
fram með hljómsveitinni Grind-
ers í fyrsta sinn í meira en áratug
en þeir mældu götur stórborga
saman hér á árum áður.
Hátíðin hefst þriðjudaginn 22.
mars á Hótel Borg og lýkur á
negrasálmatónleikum í Fríkirkj-
unni í Reykjavík á föstudaginn
langa. ■
Schlingensief til Íslands Pilobolus á æfingu með
Íslenska dansflokknum
Pilobolus-hópurinn tók þátt í
æfingu Íslenska dansflokksins á
föstudagsmorgun. Blaðamaður
Fréttablaðsins fékk að fylgjast
með æfingunni og áttaði sig þá á
því af hverju liðsmenn flokksins
eru sagðir sterkustu íþróttamenn
heims. Styrkur þeirra er augljós-
lega gífurlegur og sést helst
þegar þau halda á hverju öðru í
erfiðum stellingum og mynda
stórkostlega skúlptúra.
Renée Jaworski er einn með-
limur hópsins og er ánægð með að
vera loksins komin til Íslands.
„Þetta er í fyrsta sinn sem við
komum hingað og við erum mjög
spennt. Þetta er áhugaverður sal-
ur sem við eigum að koma fram í,
mjög stór. Það verður gaman að
sjá hvernig fólkið tekur við okkur
og ég vona að margir sjái sér fært
að mæta. Það er mjög mismun-
andi eftir löndum hvernig viðtök-
urnar eru.
Það vekur athygli að hreyfing-
ar dansaranna virðast margar
tengjast dýraríkinu eða náttúr-
unni og nöfn hreyf-
i n g a n n a
sömuleiðis.
„Já það er
rétt, alltaf
þegar við búum
til nýjar hreyf-
ingar horfum við á
þær og finnum út
hvað þær minna okkur á
og nefnum þær eftir því.
Það er mjög gott að nota nátt-
úruna sem áhrifavald.“
Aðspurð hvort hópurinn
muni hafa tíma til að gera
eitthvað annað en að sýna á
meðan dvöl þeirra stendur
segir Renée æst: „Við
fórum í Bláa Lónið! Það
var æðislegt. Við för-
um örugglega þangað
aftur. Í dag ætlum við að rölta um
í bænum og fara í búðir og á veit-
ingastaði. Svo hef ég heyrt að það
eigi að kólna rosalega yfir helg-
ina, þá ætlum við að fara,“ segir
hún og hlær. Dansflokkurinn sýn-
ir í Laugardalshöll í kvöld.
-bg
Hinn þekkti þýski leikstjóri
Christoph Schlingensief frumflyt-
ur nýtt verk, Animatograph, í
Klink og Bank á Listahátið í vor.
Schlingensief hefur undan-
farið undirbúið verkefnið hér á
landi, en að því koma allmargir ís-
lenskir listamenn bæði frá Klink
og Bank og Þjóðleikhúsinu sem er
samstarfsaðili að verkefninu auk
Landsbankans.
Um er að ræða að hluta til
kvikmynd, sem varpað er á hring-
svið þar sem ýmsar verur eru á
kreiki. Vinnur leikstjórinn út frá
ýmsum minnum úr verkum
Wagners, afrískum trúarhefðum,
Íslendingasögunum og íslenskum
samtíma.
Verk leikstjórans hafa jafnan
vakið mikla athygli og á
Bayreuth-hátíðinni í Þýskalandi í
fyrra var frumsýnd sýning hans á
óperunni Parsifal eftir Wagner.
Vakti sýningin gríðarlegar deilur.
Þetta nýja verkefni sem hér
verður frumflutt á opnunardegi
Listahátíðar hefur verið lengi í
undirbúningi og verður sýnt í
Berlín; New York og Vín. ■
CHRISTOPH SCHLINGENSIEF Mætir
með nýtt verk í Klink og Bank á opnunar-
dag Listahátíðar.
PILOBOLUS DANSFLOKKURINN
Í þessari æfingu hentu dansararnir sér
niður í gólfið líkt og þeir væru að stinga
sér í sundlaug.
Stórtenór með fiðring í tánum
DOMINGO ÁSAMT ANA MARIA „Ferill minn er orðinn svo langur að ég söng með
móður hennar.“
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/ G
VA