Fréttablaðið - 13.03.2005, Page 20
Við hittumst á Kringlukránni.
Staðnum hans Gylfa sem ekki hefur
drukkið deigan áfengisdropa í ald-
arfjórðung. Hann á sinn fasta bás á
kránni. Þykir gaman að sýna sig og
sjá aðra þegar löngunin kemur upp
að bregða sér út á lífið. Augu
kvenna beinast að honum með
áhugaglampa og karlmenn koma
við til að taka í hönd hans og kasta á
hann kveðju. Allir þekkja Gylfa.
„Ég er hættur að láta mig skipta
hvað fólki finnst. Nýjasta sagan er
að ég hafi drukkið út aleiguna, en
allir sem þekkja mig vita að ég
drekk bara gos. Sumir koma að
borðinu mínu og vilja þefa upp úr
glasinu meðan aðrir vilja smakka.
Þeir trúa ekki að ég sé edrú, en hið
rétta er að ég hef aðeins tvisvar
drukkið blóð Krists í altarisgöngu
og af slysni fengið vitlaust glas á
matsölustað á Kanaríeyjum sem ég
neyddist til að kyngja því öll salerni
voru setin. Mér var ekki meint af og
mun aldrei falla. Það er ekki hægt.
Löngunin var tekin í burtu.“
Gylfi er að tala um mátt áhrifa-
valdsins mesta; Jesú Krists. Það var
árið 1979 að hann fletti upp í síma-
skránni í leit að lækni sem gæti
spautað hann niður vegna vín-
drykkju, en faðir læknisins varð
fyrir svörum.
„Sá var séra Sigurjón Árnason
prestur í Hallgrímskirkju, áður í
Eyjum. Mér leið alveg svakalega
illa og sagði honum frá líðan minni,
bað hann að biðja fyrir mér, sem og
hann gerði. Fimm mínútum seinna
fannst mér ég eins og svífa um í
silki, sofnaði og var þar með hættur
að drekka brennivín,“ segir Gylfi og
hyggur að feimni hafi leitt hann í
slagtog Bakkusar á sínum tíma.
Valdi hundinn fram yfir konuna
„Ég þorði aldrei að bjóða stelpum
upp og var að drepast úr feimni
þar til ég kynntist Gerði sem vandi
mig af feimninni. Hún er 26 árum
yngri og falleg. Það var nóg til að
peppa upp sjálfstraustið og í dag
er ég allt öðruvísi,“ segir Gylfi og
vísar til fyrrverandi eiginkonu
sinnar, en þau Gerða skildu fyrir
hálfu öðru ári.
„Mörgum konum þykir vænt
um mig, en ég er ekki þannig að ég
fari með hverri sem er heim. Hef
reyndar verið óheppinn í kvenna-
málum, sem er sjálfum mér að
kenna. Að geta ekki tollað með
sömu konunni alla ævi, eins og
Rúnar Júl vinur minn með Maríu
sinni. En það kemur alltaf eitthvað
upp á,“ segir Gylfi íbygginn og
minnist á gamlan Schäfer-hund
sem hann átti en er nú farinn til
feðra sinna.
„Hann bjargaði lífi mínu þegar
ég datt í bröttum stiga. Þá hét ég
því að svæfa hann aldrei meðan
hann lifði. Síðan gerist það að Þóra
Steindórsdóttir, sambýliskona mín
til tuttugu ára, vildi að hundurinn
yrði svæfður. Ég valdi hundinn því
hann hafði engan annan málstað en
mig. Ég var sá eini sem gat bjargað
lífi hans. Ég fór út samdægurs og
fékk þá leigða íbúðina með flísinni
merkilegu,“ segir Gylfi, en hundur-
inn lifði fimm ár eftir skilnaðinn.
Strok fjósamannsins
Gylfi er kominn með nýjan geisla-
disk: Þeir voru sannir sjómenn!
Diskinn samdi hann sjálfur, spilaði
á öll hljóðfæri, útsetti og tók upp,
hannaði plötuumslagið, límdi á
diskana og hulstrið. Hann selur
diskana sjálfur, flesta í gegnum
síma, en hann á stóran hóp aðdá-
enda sem hringja og panta hans
landsfrægu léttleikans músík.
„Jú, lögin mín eru stundum spil-
uð á Rás 2, en ekki mikið á öðrum
stöðvum. Lag númer þrjú á nýja
disknum yrði vinsælt ef platan
fengi meiri spilun. Það er ég viss
um,“ segir Gylfi staðfastur. Titil-
lagið er samið um áhöfnina á
Freyjunni frá Súðavík sem fórst í
ofsaveðri þann 1. mars 1967.
„Eins og með annað hvísluðu
þeir að mér að semja um minningu
sína,“ segir Gylfi sem sjálfur hefði
átt að vera um borð í Freyjunni.
„Í staðinn var ég á Gylfanum
frá Ísafirði sama óveðurskvöldið,
skammt frá Freyju. Ég hafði ráðið
mig á Freyjuna veturinn 1966 en
hún fór ekki strax til sjós. Þegar að
því kom vildi ég frekar vinna í
landi og spila með hljómsveit fyrir
Vestfirðinga. Varð þá útgerðar-
maðurinn brjálaður og hótaði að
senda mig burt. Verið var að leggja
rafmagn í Súðavík á þessum tíma
og nokkrir menn úr rafmagns-
flokknum heyrðu hótanirnar. Verk-
stjórinn bauð mér þá vinnu og hót-
aði að flokkurinn færi allur suður
yrði ég rekinn frá Súðavík. Ég
fékk því að búa áfram í braggan-
um en réð mig um vorið sem
fjósamann að Miðdal í Kjós, þar
sem allt gekk náttúrlega á aftur-
fótunum því ég kunni ekki til
verka. Ég strauk þaðan til að vera
í hljómsveit í Bolungarvík og réð
mig á Gylfann.“
Datt út úr þjóðskrá
Gylfi var sjómaður í fimmtán ár,
alltaf sjóveikur ef í landi smástund,
og segist hafa skipt um báta eins og
nærbuxur vegna fyllirís og flökku-
eðlis.
„Ég gaf skít í allt og fór þangað
sem hugurinn dró mig. Datt meira
að segja út úr þjóðskrá vegna
flakks, sem kom í ljós þegar læknir
á Bláa bandinu sagði mig verða að
borga allt úr eigin vasa því ég væri
ekki til í þjóðskrá. Vasinn var auð-
vitað tómur svo ég fór út til Eyja og
samdi Minningu um mann.“
Margir halda að Gylfi Ægisson
sé úr Vestmannaeyjum en hið rétta
er að hann er Siglfirðingur.
„Pabbi fékk harmóníku þegar ég
var sjö ára og ég fór fljótt að fikta
og stelast í nikkuna. Þegar tónlistar-
menn komu til að spila á Sigló
kynntist ég hljómsveitunum og
þrettán ára lá ég bak við sviðstjöld-
in með stolna nikkuna hans pabba,
bíðandi þess að Guðmundur Ing-
ólfsson gæfi mér merki þegar lögg-
an færi út en þá leyfði hann mér að
spila með.“
Listgáfa á sviði tónlistar er ekki
það eina sem Gylfi fékk í vöggugjöf
því hann er eftirsóttur fyrir skipa-
málverk sem hann innrammar í
bátsstýri.
„Ég byrjaði að mála því Þóru
fannst svo leitt að stofuveggurinn
væri auður. Ég bað hana að kaupa
stóran striga. Ég skyldi mála á
hann. Þetta fyrsta málverk á ég enn
og mörgum finnst það fallegast. Það
er af Róm þegar hún brennur. Síðan
hef ég málað hundruð báta á
masónít-plötur, sem Ríkey systir
listakona skilur ekki hvernig ég næ
fram, en það er mitt leyndó sem ég
þróaði sjálfur,“ segir Gylfi
brosmildur.
Jibbí jei!
Fyrsta lagið sem Gylfi samdi var
Jibbí jei! sem frægt varð í flutningi
Péturs Kristjánssonar. Hann á
minnst 400 lagasmíðar að baki,
mörg af fegurstu og vinsælustu lög-
um þjóðarinnar, allt frá Minningu
um mann, Í sól og sumaryl og Stolt
siglir fleyið mitt.
„Hljómar gerðu fyrstu plötuna
mína sem varð gullplata. Sjálfur
ætlaði ég aldrei að syngja en Gunn-
ar Þórðarsson fékk mig til þess.“
Gylfi segist alltaf hafa verið full-
ur í upptökum platna sinna og kann
sögu af upptöku þeirrar fyrstu með
Hljómum.
„Alltaf þegar ég fór í stúdíó tók
ég með eina brennivín og þegar
flaskan var tóm var ég búin að
syngja. Þegar búið var að syngja öll
lögin og ég kominn dauðadrukkinn
upp á Esju hringir Gunni í mig og
segir eitt laganna hafa gleymst. Ég
verði að koma því masterinn yrði að
fara utan um kvöldið. Ég sagðist
ekki geta það en tek leigubíl í stúd-
íóið, reyni að syngja en hitti ekki á
míkrafóninn. Endaði með að Gunni
hélt hausnum uppi meðan ég söng.
Lagið varð rosalega vinsælt, þetta
var Eyjan mín bjarta sem unnið
hafði þjóðhátíðarkeppnina á hundr-
að ára afmælinu í Eyjum.“
Það var annars á Siglufirði sem
Gylfi fékk sér fyrsta sopann, ásamt
vinum sínum Jóhanni Ágústi pró-
fessor í læknisfræði og Friðbirni,
pabba Björns Jörundar í Nýdönsk.
„Ég hafði smíðað kassabíl sem
við allir komumst inn í og við vorum
í ímynduðum leik að keyra brenni-
vínsflöskur fram á fjörð. Þá segir
einn: „Pabbi er nýkominn úr sigl-
ingu. Á ég ekki að stela einni alvöru
flösku?“ Fer svo inn um glugga og
kemur út með 75 prósenta vodka
sem við vorum svo vitlausir að
drekka, aðeins tólf ára gamlir. Við
dóum allir saman, en þá var ég kom-
inn á bragðið.“
Þjóðinni þakklátur
Ævi Gylfa Ægissonar hefur verið
litrík. Litríkari en flestra. Hann seg-
ist alltaf hafa verið stuðbolti en þó
um leið mikill einfari. Hann hefur
tvisvar fallið milli skips og bryggju,
lent í þremur árekstrum á skipum
og á áttunda áratugnum lenti hann í
þriggja daga réttarhöldum í
Englandi eftir að hann bauð þar-
lendum manni og konu til drykkju
um borð í Hofsjökli.
„Ég skildi ekki af hverju þau
komu ekki á eftir mér upp í skipið
og fór aftur út. Þá sá ég höfuð
mannsins í sjónum og konuna dána.
Bæði höfðu oltið úr völtum land-
ganginum og drukknað. Sem betur
fer tókst að endurlífga manninn
sem var til frásagnar um hvað gerð-
ist en annars hefði ég eflaust verið
dæmdur fyrir morð.“
Og Gylfi hefur kynnst sorginni,
en fimmtán ára strauk hann að
heiman frá Siglufirði og til Eyja þar
sem Steini eldri bróðir hans var til
sjós. Saman fóru þeir með farskipi
til Rússlands, Póllands og Finnlands
einn túr en í þeim næsta tók Steini
stóran sopa úr vitlausri flösku, þeg-
ar hann ætlaði á ball, sem í var
blettahreinsir.
„Það var nóg. Hefði hann komist
innan klukkutíma á sjúkrahús hefði
hann lifað. Hann var nítján ára, en
við vorum afar samrýndir,“ segir
Gylfi.
Gylfi er sáttur við sig, hann sé
hraustur og hress, vinsæll og veit af
því. Þakklátur íslensku þjóðinni.
„Íslenska þjóðin hefur alltaf
staðið rosalega vel við bakið á mér
og fyrir það er ég ætíð þakklátur.
Það er vegna hennar sem mér hefur
tekist að lifa sem listamaður og
fyrir hana sem ég skapa.“ ■
20 13. mars 2005 SUNNUDAGUR
Vinsæll og veit af því
STUÐBOLTI NÚMER EITT Gylfi Ægisson er maðurinn á bak við Sól og sumaryl, Minningu um mann, Stolt siglir fleyið mitt og fleiri perl-
ur íslenskrar tónlistarsögu. Hann er kominn með glænýjan disk þar sem hann syngur um áhöfnina á Freyjunni frá Súðavík, sem fórst 1.
mars 1967.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
Gylfi Ægisson er lifandi goðsögn. Hann er stór-
gerður og glæsilegur. Íslenskari en flest. Sterkur og
listelskur. Gáfum gæddur beint úr gnóttarbrunni
skaparans. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir ræddi við
Gylfa um sanna íslenska sjómenn, Bakkus, kon-
urnar og litríka ævi.
Yfirnáttúrulegur marmari
Ég flutti með hundinn minn á efri hæð fallegrar villu í Garðabæ þar sem fyrir
var marmaralagt baðherbergi. Þar sem ég sat á klósettinu var eins og hvíslað
að mér að flísin á móti mér hefði sögu að segja. Ég rýndi lengi í flísina og en
gat ekki greint myndefnið nógu vel. Tók því mynd af henni, þurrkaði út
munstur utan af skilaboðunum og komu þá í ljós fimm atriði úr mínu lífi á
þessari einu flís. Hundurinn minn nýdáinn sést mjög greinilega með lafandi
eyru og hvítt
trýni. Þorskinn
settum við Rúnar
Júlíusson á plötu
sem klæddur var
í kjólföt með
pípuhatt. Galdra-
norn sem ég leik
jafnan í söng-
leikjum, sjöan
mín í Happdrætti
Háskólans,
bjórflaskan með
Giraffe-merkinu,
en Þóra sambýl-
iskona mín
keyrði út Giraffe-
bjórinn þegar við
skildum, og svo
er eins og ég
sjálfur sitji hjá
hundinum.