Fréttablaðið - 13.03.2005, Page 22

Fréttablaðið - 13.03.2005, Page 22
Launaviðtal Allir eiga rétt á atvinnuviðtali einu sinni á ári og er mikilvægt að nýta sér þann rétt. Mikilvægt er að mæta vel undirbúin(n) á fundinn og vera búin(n) að tína til skyn- samleg rök fyrir launahækkun, ef sóst er eftir henni. [ ] Stuð á skakinu um sumartímann Garðar Berg er að skipta yfir á handfærin, en hann hefur verið á línu í vetur. Garðar Berg Guðjónsson á bát sem hann notar bæði til veiða og skemmtisiglinga. Hann er á móti kvótakerfinu en segir fátt í stöðunni annað en að sætta sig við orðinn hlut. Garðar Berg Guðjónsson var ekki að koma af veiðum þegar blaðamaður tók hann tali heldur að huga að báti sínum Ríkey SH 405, sem hann hefur verið með á línu í vetur. „Ég hef aðallega verið að fá ýsu, en nú er ég að skipta úr línunni yfir á handfæri og þá er það þorskurinn. Ég byrja hér í flóanum og færi mig svo norðureftir og enda oft í Húnaflóanum. Þetta eru túrar sem geta varað í einn og hálfan sólarhring og ég landa þar sem ég er staddur hverju sinni.“ Garðar er einn á sínum báti en segist ekki finna fyrir ein- manaleika. „Það eru allar græjur um borð, sími, talstöð og meira að segja sjónvarp og ör- bylgjuofn.“ Báturinn Ríkey heitir í höfuð- ið á eiginkonu Garðars en hann er búinn að eiga bátinn í 11 ár. Hann hafði verið lengi á sjó þeg- ar hann ákvað að kaupa sinn eig- in bát og segir að fyrir duglega menn geti verið ágætt upp úr þessu að hafa. Hann hefur alltaf verið á móti kvótakerfinu og segir að vissulega hafi stemningin dofn- að eftir að allt var sett í kvóta. „Ég var í mörg ár á sóknarkvóta og það var allt öðruvísi og skemmtilegra og miklu meira kapp í mönnum. Maður verður bara að sætta sig við þetta.“ Hann segir að mórallinn í hans stétt sé samt afskaplega góður. „Sérstaklega á sumrin á skakinu, þá verður til alveg sér- stakt samfélag þar sem menn þekkja hver annan vel og njóta veiðanna.“ Garðar notar bátinn sinn í skemmtisiglingar meðfram veiðunum enda hörku bátur með 300 hestafla vél sem gengur 30 sjómílur. „Venjulegir bátar ganga þetta sjö sjómílur. Ég fer oft í skemmtisiglingar með fjöl- skyldu og vini og bregð mér á skotveiðar. Það getur verið mik- ið líf í kringum svona bát.“ ■ Hjónin Guðmundur og Guðný standa vaktina saman í dag- róðrunum og hafa gert í fjölda ára. Guðmundur Helgason og eigin- kona hans Guðný Vésteinsdóttir höfðu lokið við að landa þegar blaðamann bar að garði. Guð- mundur leit varla upp úr vinnu sinni meðan hann var tekinn tali, heldur raðaði án afláts þorskum í kör. Afli dagsins var 400 kíló af stórum og feitum þorski ásamt nokkrum rauð- mögum. „Þetta er nú frekar lít- ið,“ segir Guðmundur sem ætlar með fiskinn á Faxamarkað. „Við erum með smá kvóta og förum út á hverjum degi, sex vikur á ári og förum svo beint vestur í Hvalseyjar á grásleppu þegar þessu lýkur. Við búum í Hvals- eyjum og erum búin að vera þar í tíu ár.“ Guðmundur segir útlitið ekki gott með grásleppuna þar sem verðið sé lágt á hrognunum og grásleppa seljist ekki beint eins og heitar lummur. „Unga fólkið í dag fúlsar við siginni grásleppu,“ segir hann og brosir í skeggið. Guðný, eiginkona Guðmundar, fer alltaf með honum á sjó og samvinna þeirra hjóna gengur vel. „Þetta er eina skipið í flotan- um þar sem eru tveir skipstjórar og engir undirmenn,“ segir Guð- mundur og hlær. „Það er stundum hart barist um völdin en í heildina er samvinnan góð.“ Guðmundur hristir höfuðið þegar minnst er á kvótamál og vill sem minnst ræða það. „Það er skelfilegt hvernig búið er að fara með þessa góðu þjóð,“ segir hann og stekkur um borð í Hvalseyna þar sem Guðný bíður hans. Saman taka þau stímið í átt að olíutönk- unum til að hafa svo örugglega allt klárt fyrir morgundaginn. ■ Guðmundur og Guðný hafa ekki bara siglt lífsfleyinu farsællega saman í áratugi, heldur líka bátnum sínum Hvalseynni. Guðný hafði hins vegar ekki áhuga á mynda- töku og var fjarri þegar ljósmyndari kom á staðinn. Tveir skipstjórar og engir undirmenn FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. Aldrei fleiri konur í vinnu Alltof margar konur lifa samt undir fátækramörkum. Aldrei hafa verið fleiri konur á vinnumarkaði en af 2,8 milljörð- um manna á vinnumarkaðinum í heiminum árið 2003 voru 1,1 milljarður, eða 39 prósent, kon- ur. Aftur á móti eru sjötíu pró- sent þeirra 1,3 milljarða manna sem lifa við eða undir fátækra- mörkum konur. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu ICFT, Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga og skýrt er frá á heimasíðu Verzlunarmanna- félags Reykjavíkur. Í nýlegri skýrslu ICFTU kem- ur fram að atvinnuleysi meðal kvenna var 6,5 prósent árið 2003 en 6,1 prósent meðal karla. Hægt er að skoða skýrsluna á heimasíðu Verzlunarmanna- félags Reykjavíkur, vr.is. ■ Vefsíða fær verðlaun TopUSAJobs.com í Bandaríkj- unum þykir skara framúr. Vefsíðan TopUSAJobs.com, net- síða sem býður upp á einn mesta fjölda atvinnuauglýsinga á netinu, fékk á dögunum User’s Choice Awards 2005 frá Weddle’s, leið- andi fyrirtækið í atvinnugeiran- um á netinu. Starfsmenn í mannauð, fólk í leit að atvinnu og ráðningaraðilar kusu á síðasta ári á vefsíðu Weddle’s, weddles.com, það fyrirtæki sem þeim fannst best í atvinnuiðnaðinum. Rúmlega fjörutíu þúsund bandarískar atvinnusíður eru í gangi á netinu en TopUSA- Jobs.com býður þeim sem eru að leita sér að vinnu upp á rúmlega þrjú hundruð störf. ■ Konur hafa aldrei verið fleiri á vinnu- markaði í heiminum. Myndin er úr safni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .O L. Margir undir lágmarkslaunum Í Bretlandi er ástandið ekki nógu gott á vinnumarkaðnum. Laun margra breskra starfs- manna eru lægri en lágmarkslaun því sumar ráðningarstofur draga ólöglega af þeim pening. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu verka- lýðsfélags í Bretlandi. Þar segir að þessi bylgja hafi sérstaklega áhrif á erlenda verka- menn en margar ráðningarstofur draga af launum starfsmanna fyr- ir mat, ferðir, húsnæði og föt. Í skýrslunni kemur fram að margir láta ekki í sér heyra út af þessu vandamáli því þeir þekkja ekki lög um lágmarkslaun og eru hræddir um að missa vinnuna. Margir fá ekki einu sinni lág- markstaxta, 4,85 pund, eða um 560 krónur, á tímann. Dæmi eru um að starfsmaður hafi aðeins haft tæp- lega átta þúsund krónur á viku til ráðstöfunar eftir að vafasöm ráðningarstofa hafði dregið af honum alls kyns kostnað. ■ Erlendir starfsmenn í Bretlandi fá sumir ekki þau lágmarkslaun sem þeir eiga að fá. Sumarvinna unga fólksins Vinnumiðlun unga fólksins hefur verið opnuð í Hafnarfirði. Opnuð hefur verið vinnumiðlun unga fólksins í Hafnarfirði í Gamla bókasafninu við Mjósund. Vinnumiðlunin er á vegum Íþrótta- og tómstundanefndar Hafnarfjarðar og mun hún einnig hafa umsjón með ráðningum í sumarstörf fyrir fólk á aldrinum sautján til tuttugu ára á vegum ÍTH og garðyrkjustjóra. Vinnumiðlunin er opin mánud., þriðjud. og miðvikud. frá 10 til 16. Tekið verður við umsóknum í Gamla bókasafninu frá og með til 8. apríl 2005. Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hvetja fyrirtæki í bænum að nýta sér þessa þjón- ustu. ■ Fyrirtæki í Hafnarfirði eru hvött til að nota vinnumiðlun unga fólksins.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.