Fréttablaðið - 13.03.2005, Blaðsíða 24
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
óskar eftir að ráða rannsóknarmann.
Starfið felst í vinnu við framkvæmd tilrauna,
sýnatöku, undirbúningi sýna, efnagreiningum
o.fl. þáttum í ákveðnum rannsóknaverkefnum
stofnunarinnar.
Hæfniskröfur:
Stúdentspróf af náttúrufræði eða eðlisfræðibraut eða iðn-
nám með áherslu á matvælaiðnað eða sjávarútvegsnám.
Reynsla af störfum á rannsóknarstofu er kostur.
Vandvirkni og samstarfshæfni
Launakjör eru skv. kjarasamningum opinberra starfs-
manna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru
leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr
70/1996.
Umsóknarfrestur er til 27. mars 2005. Umsóknir með
upplýsingum um menntun og fyrri störf ásamt afritum af
prófgögnum óskast sendar með tölvupósti (helgag@rf.is)
eða til Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, Skúlagögu 4,
101 Reykjavík. Upplýsingar um starfið veita Helga
Gunnlaugsdóttir og Guðjón Þorkelsson í síma 5308600.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins er sjálfstæð ríkisstofnun
sem starfar samkvæmt lögum 64/1965 um rannsóknir í
þágu atvinnuveganna og heyrir undir sjávarútveg-
sráðuneytið. Stefna Rf er að auka verðmæti sjávarfangs
með rannsóknum, þróunarvinnu, miðlun þekkingar og
ráðgjöf. Sérfræðisvið Rf eru m.a. vinnslutækni, líftækni,
efna- og eðliseiginleikar matvæla, gæði og öryggi sjávar-
fangs, fóður og fóðurtækni í fiskeldi og umhverfis-
rannsóknir.
4
ATVINNA