Fréttablaðið - 13.03.2005, Qupperneq 64
Hið íslenska glæpafélag og
skemmtistaðurinn Grandrokk hafa
hrint af stað samkeppni um bestu
hrollvekjusmásöguna og mun tíma-
ritið Mannlíf birta verðlaunasög-
urnar ásamt nokkrum í viðbót í
sérblaði sem verður gefið út í sum-
ar.
Löngum hefur verið sagt að
margt búi í þokunni. Margar ís-
lenskar þjóðsögur vekja til að
mynda ennþá hroll meðal lesenda
enda er myrkrið best til að vekja
ugg. Glæpafélagið vill athuga
hvernig nútíminn tekur á slíkum
málum og skoða hvað það er sem
vekur ótta meðal manna á 21. öld.
Hvað er það sem nagar sálina og
fær líkamann til að skjálfa?
„Það eru ótrúlega margir sem
hafa gaman af því að skrifa hryll-
ingssögur og það eru þrjár sögur
komnar nú þegar,“ segir Kristinn
Kristjánsson, íslenskukennari og
foringi glæpafélagsins. Hann býst
ekki við því að höfundar leiti í þjóð-
sögurnar eftir innblæstri heldur
hafi nútímann meira að leiðarljósi.
„Annars verð ég alltaf svo hrædd-
ur þegar ég les hrollvekju. Góðar
hrollverkjur láta mann alltaf fá
hroll eins og til dæmis Djákninn á
Myrká. Það er fín saga,“ segir
hann. Bætir hann því við að Edgar
Allan Poe sé einnig í uppáhaldi.
Hið íslenska glæpafélag var
stofnað 1997 fyrir glæpasagnahöf-
unda og þá sem hafa lagt sitt af
mörkum til bókmenntagreinarinn-
ar. Meðlimir eru um 40 til 50 talsins
og hefur Kristinn verið foringi frá
byrjun. Félagið velur framlag Ís-
lendinga til Glerlykilsins, sem er
samkeppni um bestu norrænu
glæpasöguna. Einnig stendur það
fyrir upplestri á glæpasögum sem
komu út fyrir jólin á Grandrokk.
Félagið stóð fyrir svipaðri sam-
keppni í fyrra en þá var keppt um
bestu glæpasmásöguna. Voru sög-
urnar síðan gefnar út fyrir jólin í
safnútgáfu.
Uppgangur í gerð glæpasagna
hér á landi hefur verið mikill und-
anfarin ár. Að sögn Kristins var
löngu kominn tími til þess. „Við
höfum svo marga góða höfunda
eins og Arnald Indriðason og Vikt-
or Arnar Ingólfsson. Það er
skemmtilegt hvað sögurnar eru
fjölbreyttar og höfundarnir ólíkir.
Þróunin hefur verið góð og það eru
nýir höfundar að koma fram. Menn
hafa tekið miklum framförum í að
skrifa glæpasögur og maður er eig-
inlega strax farinn að hlakka til jól-
anna.“ Segir hann það jafnframt
mikla upphefð fyrir glæpasöguna
þegar Arnaldur var tilnefndur til
íslensku bókmenntaverðlaunanna
fyrir Kleifarvatn. „Það var mikil
upphefð. Það voru samt margir
sem töluðu um að hann hefði átt að
vera tilnefndur fyrir Mýrina á sín-
um tíma en það eru allir í skýjun-
um með þetta.“
Kristinn játar að tími sé kominn
til að Íslendingar eignist sinn eigin
Stephen King og vonar að hann
fæðist með tilkomu hrollvekju-
keppninnar. Verðlaun eru vegleg. Í
fyrstu verðlaun eru 200.000 kr, í
önnur verðlaun 100.000 kr og í
þriðju verðlaun eru 50.000. Úrslitin
verða tilkynnt á menningarhátíð
Grandrokk fyrstu helgina í júní.
Skilafrestur er til 9. maí og á að
skila handritum undir dulnefni á
Grandrokk, merkt samkeppni.
Jafnframt á rétt nafn að fylgja með
í lokuðu umslagi.
freyr@frettabladid.is
„Pearl Jam á sér tíu milljónir að-
dáenda um allan heim,“ sagði
Keisuke.
„Jæja, bálkestir hafa átt sér aðdá-
endur um allan heim í 50.000 ár,“
sagði Junko.
„Þetta er sennilega rétt hjá þér,“ sagði Keisuke.
„Fólk mun áfram hlaða bálkesti löngu eftir að Pearl
Jam er horfin.“
Persónur Murakamis komast oft á flug í Eftir skjálft-
ann.
Tveir fyrir einn til
Prag
18. mars
frá kr. 19.990
Helgarferð
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Prag þann 18. mars. Þú
bókar 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1. Nú getur þú kynnst þessari fegurstu
borg Evrópu á einstökum kjörum. Þú getur valið um úrval góðra hótel í hjarta
Prag og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra okkar í Prag allan
tímann.
kr. 19.990
Flugsæti með sköttum til Prag, 2 fyrir
1 tilboð, út 18. mars, heim 21. mars.
Netbókun.
Gisting frá kr. 3.700
Netverð á mann í tvíbýli á Hotel Ilf, pr.
nótt með morgunmat.
Völ um góð 3ja og 4 stjörnu hótel.
SKÁLDVERK – INNBUNDNAR BÆKUR
STÚLKA MEÐ PERLUEYRN…
Tracy Chevalier
BELLADONNA-SKJALIÐ
Ian Caldwell og Dustin Thomason
DAUÐANS ÓVISSI TÍMI
Þráinn Bertelsson
DANTE-KLÚBBURINN
Matthew Pearl
KLEIFARVATN
Arnaldur Indriðason
SYNIR DUFTSINS
Arnaldur Indriðason
VITFIRRINGUR KEISARANS
Jan Kross
STORMUR
Einar Kárason
MUSTERISRIDDARINN
Jan Guillou
P.S. ÉG ELSKA ÞIG
Cecelia Ahern
Listinn er gerður út frá sölu dagana 02.03.05 –
08.03.05 í Bókabúðum Máls og menningar,
Eymundsson og Pennanum.
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
EYMUNDSSON
MÁL OG MENNING
PENNINN
[ METSÖLULISTI ]
32 13. mars 2005 SUNNUDAGUR
baekur@frettabladid.is
>
M
ur
ak
am
i
Skáldsagan „Fjölmóðs saga föðurbetrungs“ eftir
Kristin R. Ólafsson er komin út hjá stórforlaginu
RBA í Barselónu. Þetta er önnur saga hans sem
gefin er út á Spáni en í hittifyrra kom „Pósthólf
dauðans“ einnig út á spænsku þar syðra.
Kristinn þýddi og endurritaði sögu sína á
spænsku en á þeirri tungu nefnist hún „La Saga
de Fiólmod el Intrépido“. Verkið kom fyrst út hjá
Ormstungu árið 1996. Það má í senn flokka
sem barna- og/eða unglingasögu og sögu fyrir
fullorðna, bæði vegna stílsins og frásagnarinnar
sjálfrar. Sagan var upprunalega skrifuð á óvís-
indalegri forníslensku enda gerist hún á 12. öld
á Íslandi, á Spáni og í öðrum heimum. Við þýð-
inguna/endurritunina hefur Kristinn R. leitast
við að fyrna málfarið svolítið líka og sótt talsvert
í smiðju Don Kíkóta eftir Cervantes í því sam-
bandi.
Kristinn hefur búið á Spáni í nær 30 ár.
Fjölmóður föður-
betrungur til Spánar
Leitað að hrollvekjuhöfundum
FORINGINN LES POE Kristinn Kristjánsson, foringi Hins íslenska glæpafélags, gluggar í
Edgar Allan Poe sem er í miklu uppáhaldi hjá honum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Vörður á vegi vísindanna
Við fyrstu sýn dettur sennilega
fáum í hug að leita uppruna vís-
indalegrar hugsunar hér á jörðu
í Svasílandi. Þar hafa engu að
síður fundist elstu fornminjar
sem bera þess vott að menn hafi
verið farnir að telja.
Í Vísindabókinni, aðgengi-
legu riti um sögu vísindanna
sem nú er komin út í þýðingu
Ara Trausta Guðmundssonar, er
einmitt byrjað á uppruna talna í
Svasílandi. Þaðan er síðan hald-
ið áfram yfir í forsögulega
stjörnufræði Egypta, Babýlón-
íumanna og Kínverja. Síðan er
saga vísindanna rakin áfram allt
fram á síðustu ár og endað á
kortlagningu erfðamengis
mannsins.
„Vísindasagan nær allt aftur
á steinöld,“ segir þýð-
andinn, Ari Trausti.
„Menn voru að upp-
götva vissa hluti varð-
andi tímann og annað
löngu fyrir okkar hefð-
bundnu sögu. En það
sem sést afar skýrt á
þessari bók er hversu
hratt vísindin hafa þró-
ast undanfarin ár og ára-
tugi.“
Bókin er þannig
byggð upp að ein opna er tekin
undir hvern áfanga í sögu vís-
indanna. Alls er skýrt frá rúm-
lega fimm hundruð uppgötvun-
um sem allar teljast hafa valdið
ákveðnum straumhvörfum. Má
þar nefna uppgötvun insúlíns og
pensilíns, rafmagn-
ið og kjarnorkuna,
tölvubyltinguna og
svartholskenningar, að ógleymd-
um stórmennum á borð við Galí-
leó, Newton og Einstein.
„Auðvitað er valið á þessum
vörðum á veginum umdeilan-
legt, en mér finnst þetta vera
vandaður fróðleikur, vel fram-
sett og skiljanlegt öllum. Að-
gengilegur fróðleikur um þetta
er mjög mikilvægur, einfaldlega
til að hafa upplýst samfélag og
lýðræði í landinu.“
Bókin er ríkulega mynd-
skreytt í handhægu broti og á
erindi við alla sem vilja fræðast
um vísindi og sögu manns-
andans. ■
ÞÝÐANDINN Vísindabókin er um merkileg framfaraspor í líffræði, eðlis-
fræði, stjörnufræði, heimsfræði, jarðfræði, læknisfræði og stærðfræði.
> Bók vikunnar ...
EFTIR SKJÁLFTANN
eftir Haruki Murakami
Japanski rithöf-
undurinn Haruki
Murakami er
einn vinsælasti
rithöfundur sam-
tímans enda
verður það ekki
af honum tekið að
hann kann að
segja sögur. Jarðskjálftinn í
Kobe er miðdepill þessa áhrifa-
ríka smásagnasafns sem ristir
djúpt, ekki síður en skjálftinn
sem er uppspretta sagnanna.