Fréttablaðið - 29.04.2005, Síða 2
2 29. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
Umdeildur dómur staðfestur:
Skilorð fyrir að berja konu
HÆSTIRÉTTUR Maður fékk þriggja
mánaða fangelsisdóm skilorðs-
bundinn í þrjú ár í Hæstarétti í
gær. Dóminn fékk hann fyrir árás
á eiginkonu sína.
Dómurinn er nær samhljóða
fyrri dómi Héraðsdóms Reykja-
ness, en hann vakti mikið umtal
því látið var að því liggja að kon-
an hefði verið valdur að bræði
mannsins, en hann sakaði hana
um framhjáhald. „Við refsimat í
málinu verður að líta til þess, að
samkvæmt frásögn kæranda hef-
ur sambúð hennar og ákærða ver-
ið stormasöm allt frá því að þau
giftust [...] í þessu tilviki leggur
ákærður hendur á kæranda í mik-
illi bræði og hníga gögnin frekar
að því, að kærandi kunni að hafa
valdið henni,“ sagði þá í dómi hér-
aðsdóms.
Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttardómari skilaði sérá-
liti, en hann vildi kveða upp 30
daga skilorðsbundinn fangelsis-
dóm. Hann sagði að fallast mætti
á að opinber umfjöllun um brot
mannsins „þar sem meðal annars
var birt mynd af honum undir
nafni, hafi verið einhliða og
ósanngjörn og til þess fallin að
valda honum þjáningum og
skaða“ og vildi meta honum það til
refsilækkunar.
- óká
Ríkisendurskoðandi á fundi fjárlaganefndar Alþingis
Segja spurningum ekki svarað
EINKAVÆÐING Fjárlaganefnd Al-
þingis ákvað á fundi sínum í
gær að Sigurður Þórðarson rík-
isendurskoðandi hefði ekki
gefið fullnægjandi svör við
spurningum nefndarmanna um
einkavæðingu á Búnaðarbanka
og Landsbanka á árunum 2002
til 2003. Því var fallist á að kalla
framkvæmdanefnd um einka-
væðingu, og fyrrum nefndar-
menn hennar, á fund nefndar-
innar að tíu dögum liðnum.
Lúðvík Bergvinsson, þing-
maður Samfylkingarinnar sagði
að ekki hefðu fengist svör við
ýmsum veigamiklum spurning-
um, svo sem þeirri, hvers vegna
báðir bankarnir voru seldir í
einu þrátt fyrir að talið væri að
hærra verð fengist fyrir þá yrðu
þeir seldir hvor í sínu lagi,
hvers vegna Kaldbakshópnum
hefði verið synjað á þeirri for-
sendu að hann hefði ekki erlend-
an fjárfesti á sínum vegum og
hvers vegna hæsta verðið var
ekki látið gilda þegar
Landsbankinn var seldur
Samson.
„Einnig var spurt hvers
vegna samsetning S-hópsins
breyttist dag frá degi meðan
viðræðurnar stóðu yfir [um sölu
á Búnaðarbankanum] og
hvenær þýski bankinn kom inn í
myndina og hver aðkoma hans
nákvæmlega var,“ segir Lúðvík.
Ríkisendurskoðandi fundaði
með Halldóri Ásgrímssyni for-
sætisráðherra áður en hann
mætti fyrir fjárlaganefnd. Sam-
kvæmt upplýsingum frá forsæt-
isráðuneytinu tengist sá fundur
ekki einkavæðingu bankanna.
- sda
Dómar í Landssíma-
málinu mildaðir
Dómar Héraðsdóms yfir Árna Þór Vigfússyni, Kristjáni Ra. Kristjánssyni og
Ragnari Orra Benediktssyni voru í Hæstarétti samtals mildaðir um 20 mánuði.
Allir kröfðust þeir sýknu í málinu, en ákæruvaldið vildi staðfestingu héraðsdóms.
HÆSTIRÉTTUR Hæstiréttur mildaði
nokkuð dóma héraðsdóms yfir
þeim Árna Þór Vigfússyni, Krist-
jáni Ragnari Kristjánssyni og
Ragnari Orra Benediktssyni. Árni
Þór og Kristján Ra. höfðu báðir
fengið tveggja ára dóm í héraði en
fá nú 15 og 18 mánaða fangelsis-
dóm, en til frádráttar kemur 11
daga gæsluvarðhaldsvist þeirra.
Ragnar Orri fékk átta mánaða
dóm í héraði, en sá dómur var
mildaður í þrjá mánuði og til frá-
dráttar kemur sjö daga gæslu-
varðhaldsvist. Árni Þór og Krist-
ján þurfa einnig að greiða hálfa
milljón hvor í málsvarnarlaun og
Ragnar Orri 350 þúsund.
Árni Þór og Kristján Ragnar
voru sakfelldir fyrir hylmingu
með því að hafa veitt viðtöku frá
Sveinbirni Kristjánssyni, fyrrum
aðalféhirði Landssímans, tæplega
163,6 milljónum króna á árunum
1999 til 2001 og ráðstafað í eigin
þágu, auk Alvöru lífsins og Skjás
eins. Ragnar Orri Benediktsson
var dæmdur fyrir hylmingu.
Sveinbjörn Kristjánsson, fyrr-
um aðalféhirðir Landssímans,
ákvað að una sínum dómi í héraði,
en mál hans var skilið frá hinum.
Hann var dæmdur í fjögurra og
hálfs árs fangelsi fyrir um 261
milljónar króna frádrátt í starfi
sínu hjá Símanum.
Árni, Kristján Ra. og Ragnar
Orri kröfðust allir sýknu fyrir
Hæstarétti, en til vara krafðist
Árni Þór þess að héraðsdómur
yrði ómerktur og málinu vísað
heim í hérað og til þrautavara
mildunar refsingar. Kristján Ra.
Kristjánsson krafðist þess til vara
að refsing hans yrði ákveðin sem
fésekt og Ragnar Orri fór til vara
fram á mildun refsingar.
„Ákærði Árni Þór hefur ekki
áður sætt refsingum svo að kunn-
ugt sé og ákærði Kristján Ragnar
ekki að því marki að máli skipti.
Brot ákærðu varða hins vegar
fjölmargar greiðslur, sem spanna
yfir talsverðan tíma, og eru flest-
ar að verulegri fjárhæð. Alls
nema brot þeirra stórfelldri fjár-
hæð, sem ekki á sér hliðstæðu í
öðrum dómsmálum. Þegar litið er
til þess að ákærði Kristján hafði á
hendi fjárvörslur þeirra að megin
stofni og átti þannig ríkari þátt í
verknaðinum verður nokkur mun-
ur gerður á refsingu þeirra,“ seg-
ir í dómi Hæstaréttar. Dóminn
kváðu upp Markús Sigurbjörns-
son, Garðar Gíslason, Guðrún Er-
lendsdóttir, Gunnlaugur Claessen
og Hrafn Bragason. Ríkissak-
sóknari skaut málinu til Hæsta-
réttar í lok júlí í fyrra, bæði fyrir
ákærðu sem vildu áfrýja og
ákæruvaldið sem vildi staðfest-
ingu á héraðsdómi.
olikr@frettabladid.is
Síminn:
Tjáir sig ekki
um dóminn
LANDSSÍMAMÁLIÐ „Af hálfu Símans
eru engin viðbrögð við dómi
Hæstaréttar,“ sagði Eva Magnús-
dóttir, upplýsingafulltrúi fyrir-
tækisins. Hún sagði fyrirtækið
frá upphafi hafa ákveðið að tjá sig
ekki um dóma í Landssímamálinu
svokallaða. „Málinu var lokað af
hálfu Símans og svo tók dóms-
kerfið við,“ sagði hún og kvað fyr-
irtækið treysta dómstólum lands-
ins til að komast að réttlátri niður-
stöðu.
Ekki náðist í Árna Þór Vigfús-
son í gær til að fá viðbrögð hans
við dómnum, sem er heldur mild-
ari en sá sem kveðinn var upp í
héraði.
- óká
Háskólinn á Akureyri:
Fjölþjóðleg
heimsókn
SAMSTARF Tuttugu og þrír nemend-
ur, frá sex löndum, sem leggja
stund á umhverfisverkfræði við
Háskólann í Tampere í Finnlandi,
heimsóttu Háskólann á Akureyri í
gær. Heimsóknin er hluti af sam-
starfsverkefni Íslands, Finnlands,
Kanada og Rússlands sem ætlað
er að stuðla að auknum tengslum
vísindamanna landanna. Verkefn-
ið kallast „Northern Environment
Student Forum“ og hefur verið í
umsjón Finna.
- kk
Lögmaður Ragnars Orra:
Vonsvikinn
en virðir
dóminn
LANDSSÍMAMÁLIÐ „Ég er vonsvik-
inn að því leyti að ég vonaði að
hann yrði sýknaður,“ segir Sig-
mundur Hannesson, lögmaður
Ragnars Orra Benediktssonar,
um úrskurð Hæstaréttar. „Aftur
á móti er nokkur leiðrétting í
þessu; dómurinn var lækkaður úr
átta mánuðum niður í þrjá. En við
virðum niðurstöðu æðsta dóm-
stóls landsins.“
Að sögn Sigmundar vildi Ragn-
ar Orri ekki tjá sig um málið opin-
berlega. „Hann er rétt búinn að
renna yfir dóminn og er að átta
sig á þessu.“
Hvorki Ásgeir Þór Árnason,
lögmaður Kristjáns Ra. Kristjáns-
sonar, né Gestur Jónsson, lögmað-
ur Árna Þórs Vigfússonar, vildu
tjá sig um málið.
- bs
LÍKFUNDUR Í REYKJAVÍK Lokið er
rannsókn lögreglunnar í Reykja-
vík á láti manns sem fannst við
listaverkið Sólfarið við Sæbraut á
miðvikudagskvöldið. Að sögn lög-
reglu var um að ræða einstakling
sem lýst hafði verið eftir fyrr um
daginn og ljóst að ekki var um
glæpsamlegt athæfi að ræða.
Málið telst upplýst.
ÚTAFAKSTUR Í NORÐURÁRDAL Bíl
var ekið út af þjóðveginum í
Norðurárdal í gærkvöld. Að sögn
lögreglu er bíllinn ónýtur en öku-
manninn, sem er tvítugur, sakaði
ekki. Hann var einn í bílnum.
Alltaf í leiðinni
www.ob.is
14 stöðvar!
SPURNING DAGSINS
Magnús, var Stoke bara djók?
„Stoke er djók.“
Magnús Kristinsson, útgerðarmaður og hluthafi í
Stoke City, segir að knattspyrnufélagið sé hans
versta fjárfesting í áratug og ætlar að selja sinn
hlut.
■ LÖGREGLA
JÓN STEINAR GUNNLAUGSSON
HÆSTARÉTTARDÓMARI
Jón Steinar vildi meta fjölmiðlaumfjöllun
manninum til refsilækkunar.
Nafn Hæstiréttur Héraðsdómur Mismunur
Árni Þór Vigfússon 15 mánuðir 24 mánuðir 9 mánuðir
Kristján Ragnar Kristjánsson 18 mánuðir 24 mánuðir 6 mánuðir
Ragnar Orri Benediktsson 3 mánuðir 8 mánuðir 5 mánuðir
KRISTJÁN RAGNAR OG ÁRNI ÞÓR Í HÆSTARÉTTI
Árni Þór Vigfússon og Kristján Ra. Kristjánsson mættu hvorugur við uppkvaðningu dóms-
ins í gær, en myndin var tekin við flutning málsins í Hæstarétti í byrjun mánaðarins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
SIGURÐUR ÞÓRÐARSON KEMUR
AF FUNDI MEÐ FORSÆTISRÁÐHERRA
Í GÆR.
Ríkisendurskoðandi mætti fyrir fjárlaga-
nefnd í gær og svaraði spurningum um
einkavæðingu Landsbankans og Búnaðar-
bankans á árunum 2002 til 2003.
GESTIRNIR Á AKUREYRI
Næst heldur hópurinn til Murmansk og
Lapplands í þeim tilgangi að rannsaka og
greina framþróun ör- og jaðarsamfélaga.
Fyrri dómur þyngdur:
Annþór fær
þrjú ár
HÆSTIRÉTTUR Hæstiréttur þyngdi í
gær fyrri dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur yfir Annþóri
Kristjáni Karlssyni um hálft ár og
er hann nú þriggja ára
fangelsisdómur. Staðfestur var
tveggja ára dómur yfir Ólafi Valtý
Rögnvaldssyni.
Annþór og Ólafur Valtýr réðust
inn á heimili mjaðmagrindarbrot-
ins manns og gengu í skrokk á hon-
um. Fyrir dómi breytti maðurinn
framburði sínum og vildi fría Ann-
þór af því að hafa handleggsbrotið
sig. Sögunni var ekki trúað og kvað
Hæstiréttur brot Annþórs bæði
„alvarleg og ófyrirleitin.“ - óká