Fréttablaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 44
HANDBOLTI Kvennalið Hauka tryggði sér í gær Íslands- meistarartitlinn í sjöunda sinn í sögu félagsins eftir 26–23 sigur á ÍBV í þriðja úrslitaleik liðanna. ÍBV hafði unnið titilinn tvö undanfarin ár en í ár stóðst enginn Haukaliðinu snúninginn sem vann alla sjö leiki sína í úrslitakeppninni. ÍBV byrjaði af krafti og allt leit úr fyrir að Eyjastúlkur ætluðu að koma í veg fyrir sigurhátíð heimastúlkna en Haukakonur tóku yfir leikinn á sjö mínútna kafla í lok fyrri hálfleiks, þær breyttu stöðunni úr 7-10 fyrir ÍBV í 14–11 fyrir Hauka. Haukar náðu mest fimm marka forskoti í seinni hálfleik en ÍBV náði hinsvegar aldrei að jafna leikinn. Hanna Guðrún Stefánsdóttir og Harpa Melsted áttu báðar mjög góðan leik en auk þeirra skiluðu þær Kristina og Ramune Pekarskyte sínu og gott betur. Harpa varð þarna Íslandsmeistari í sjötta sinn með Haukum og Inga Fríða vann einnig sinn sjötta Íslandsmeistaratitil en þrjá af þeim vann hún með Stjörnunni á sínum tíma. Harpa Melsted, fyrirliði Hauka sagði liðsheildina lykilinn að sigri Hauka í einvíginu. „ÍBV er með marga frábæra einstaklinga í lið- inu, en við erum með góða liðs- heild, sem ég held að hafi skapað þennan sigur. Við vorum kannski dálítið hræddar að koma inn í þennan leik, vitandi það að við mættum í raun tapa tveimur leikj- um, en við sýndum það bara og sönnuðum að við erum með besta liðið í dag, fyrst við vinnum 3-0,“ sagði Harpa. „Þær eru rosalega skipulagðar, spila skynsamlega, eru með góða vörn og frábæra markvörslu. Þær unnu þetta á skynsemi og meira hungri. Þær eiga hrós skilið fyrir góða rimmu og frábæra úrslita- keppni. Það er erfitt að eiga við þær, það verður bara að viður- kennast,“ sagði Alfreð Örn Finns- son, þjálfari ÍBV eftir leikinn. „Að vera með 7-0 vinningshlut- fall í úrslitakeppninni segir alla söguna um styrk okkar liðs. Það vóg þyngst í einvíginu að vinna í Eyjum og svo náðum við að klára þetta hérna heima í dag. Lykillinn að þessum síðasta sigri er vörnin og hraðaupphlaupin hjá okkur,“ sagði Guðmundur Karlsson, þjálfari Hauka. baldur@frettabldid.is Haukakonur meistarar í 7. sinn 32 29. apríl 2005 FÖSTUDAGUR > Við dáumst að ... ... þeim Hörpu Melsted og Ingu Fríðu Tryggvadóttur sem í gær voru báðar að verða íslandsmeistarar í sjötta sinn. Það er erfitt að finna betri liðsmenn eða meiri sigurvegara í sögu íslenska kvennahandboltans. sport@frettabladid.is > Við hrósum ... ... Guðmundi Karlssyni sem í gærkvöldi varð fyrsti þjálfarinn í sögu úrslitakeppni handboltans hér á landi til þess að stýra bæði karla og kvennaliði til Íslands- meistaratitils. Guðmund- ur gerði karlalið Hauka að íslandsmeisturum 2000 og svo urðu stelpurnar meistarar í gær. Guðmundur kann greinilega sitt fag. Heyrst hefur ... að Valsmenn muni fá 22 ára gamlan enskan miðjumann frá Bolton í dag eða á morgun. Hann hetir Joel Pilkington og þykir vera mjög öflugur leikmaður. Valsmenn hafa fylgst með Pilkington í töluverðan tíma en hann hefur verið fyrirliði varaliðs Bolton. Eins og kannski einhverjir vita eru tveir íslenskir knatt- spyrnumenn á mála hjá sænska úr- valsdeildar- liðinu Djur- garden, þeir Kári Árna- son og Sölvi Geir Ottesen. Það sem færri vita er að í liðinu er einnig að finna fallna stjörnu sem allir sannir knattspyrnuáhugamann ættu að þekkja afar vel, vængmanninn Ibrahim Ba, fyrrum leikmanns Frakklands og AC Milan. Fréttablaðið náði tali af Ba í Stokk- hólmi í vikunni og spurði hann út í ís- lenska knattspyrnu. Ba tjáði blaðamanni að hann teldi Eið Smára Guðjohnsen einn hæfileikaríkasta leikmann ensku úrvals- deildarinnar. „Hann er leikmaður sem allir þekkja og óttast. Ég keppti nokkrum sinnum á móti honum og dáðist alltaf að því hvað hann gat gert með boltann,“ sagði Ba, sem lék eitt tímabil með Bolton í Englandi, árið eftir að Guðni Bergsson lagði skóna á hill- una. Ba vissi þó vel hver Guðni væri. „Það er synd að ég skuli aldrei hafa feng- ið tækifæri til að spila með honum, því hann er einn virtasti leikmaðurinn í sögu félagsins. Það eru myndir af honum úti um allt og nafnið hans er nánast heilagt innan félagsins. Það er borin gríðarleg virðing fyrir Guðna. Liðsfélagar mínir sögðu mér sögur af honum og hversu frá- bær náungi hann væri. Það sama á við um stuðningsmennina, Guðni er í dýr- lingatölu hjá þeim,“ sagði Ba. Með hliðsjón af hinum ört fallandi ferli Ba stóðst blaðamaður ekki mátið um að spyrja hann hvort hann gæti hugsað sér að spila á Íslandi eftir að dvölinni hjá Djurgarden lýkur. „Veistu, mig langar að segja að það sé aldrei að vita en ég get það ekki. Ég er 31 árs og á tvö ár eftir af samningi mínum hér í Svíþjóð. Eftir að hann rennur út held ég að það sé komið nóg af fótbolta hjá mér í bili. Haukar eru Íslandsmeistarar í handbolta kvenna í þriðja sinn á fimm árum eftir 26–23 sigur á í gær. Haukar unnu alla þrjá leiki úrslitanna og töpuðu ekki leik í úrslitakeppninni í ár. FYRRVERANDI FRANSKI LANDSLIÐSMAÐURINN IBRAHIM BA: SPILAR MEÐ KÁRA OG SÖLVA Í SVÍÞJÓÐ Guðni er kóngurinn í Bolton Handboltalið ÍR: Allir á förum? HANDBOLTI Það bendir allt til þess að ÍR muni tefla fram mikið breyttu liði á næstu leiktíð enda eru leikmenn félagsins mjög eft- irsóttir. Fyrirliði liðsins, Bjarni Fritzson, er búinn að semja við franska félagið Créteil og svo eru þrír lykilmenn liðsins undir smá- sjá erlendra liða. Danska úrvalsdeildarfélagið Ajax hefur boðið Hannesi Jóni Jónssyni og Ingimundi Ingimund- arsyni samning og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun Hannes væntanlega skrifa undir sinn samning fljótlega. Ingimundur mun aðeins bíða með að skrifa undir samning við Ajax þar sem hann heldur á mánu- daginn til Sviss ásamt markverð- inum Ólafi Gíslasyni en þeir verða til reynslu hjá Winterthur fram á næsta fimmtudag. Félagið ku vera mjög spennt fyrir þeim félögum og er ekki ólíklegt að þeir fari frá Sviss með samningstilboð í töskunni. - hbg INGIMUNDUR INGIMUNDARSON Ólíklegt að hann leiki með ÍR á næstu leiktíð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BIKARINN Á LOFT Harpa Melsted og Haukastelpurnar fagna hér sjöunda meist- aratitli félagsins. Fréttablaðið/Stefán Hanna G. Stefánsdóttir: Liðsheildin HANDBOLTI Hanna Guðrún Stef- ánsdóttir sagði það æðislega til- finningu að vera búin að landa titlinum. „Við vorum staðráðnar í að vinna í Vestmannaeyjum og þegar það tókst vissum við að við værum komnar langt með þetta, því við erum taplausar á heimavelli. Það er allt hægt ef hjartað er til staðar og við höf- um það á réttum stað. Við höfð- um viljann til að vinna þetta og erum með frábæra liðsheild, sem er lykillin að góðu gengi liðsins,“ sagði Hanna, sem skor- aði 9 mörk í leiknum. - bb LEIKIR GÆRDAGSINS DHL-deild kvenna HAUKAR–ÍBV 26–23 (15-12) Mörk Hauka: Hanna Guðrún Stefánsdóttir 9, Ramune Pekarskyte 6, Harpa Melsted 5, Ragnhildur Guðmundsdóttir 4, Anna Guðrún Halldórsdóttir 1, Inga Fríða Tryggvadóttir 1. Varin skot: Kristina Matuzeviciute 17/3. Mörk ÍBV: Alla Gokorian 9/2, Anastasia Patsiou 5, Tatjana Zukovska 3, Guðbjörg Guðmannsdóttir 3, Eva Björk Hlöðversdóttir 2, Darinka Stefanovic 1. Varin skot: Florentina Grecu 23/2. Deildabikar karla í fótbolta ÍA–KEFLAVÍK 2–1 Ellert Jón Björnsson (3.), Kári Steinn Reynisson, víti (88.) – Ingvi Rafn Guðmundsson (56.). BREIÐABLIK–FH 3–3 (4–2 í vítak.) Olgeir Sigurgeirsson, víti (14.), Ellert Hreinsson (18.), Birgir Hrafn Birgisson (108.) – Tryggvi Guðmundsson 2 (víti 38., 56.), Ásgeir G. Ásgeirsson (93.). Breiðablik nýtti allar 4 vítaspyrnur sínar en Hjörvar Hafliðason varð tvær frá FH og tryggði Blikum sæti í undanúrslitum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.