Fréttablaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 43
31FÖSTUDAGUR 29. apríl 2005
Afgreiðslutím
ar
versla
na!
Office 1 Smára
lind
Virka daga frá
11-19,
laugardaga 11
-18,
sunnudaga 13
-18
Office 1 Skeifu
nni 17
Virka daga frá
10-18,
laugardaga frá
11-16,
sunnudaga 13
-17
Office 1 Akure
yri
Office 1 Egilss
töðum
Virka daga frá
10-18,
laugardaga frá
11-16
Yfir 200 titlar á lægra verði
ÓDÝRARI TÍMARIT
Alltaf
ódýrastu
r!
NÝ SENDING AF TÍMARITUM
Gerðuverðsamanburð
Verð 445,-
Verð 795,- Verð 495,-
Verð 865,- Verð 695,-
Verð 395,-
Verð 895,-
Verð 195,-
Verð 295,-
Verð 765,-
Spár bank-
anna samstíga
Össur birtir þriggja mánaða upp-
gjör sitt í dag og eru greiningar-
deildir bankanna mjög samstiga í
spám sínum. Þær gera ráð fyrir
tæplega 3,8 milljónum dollara í
hagnað.
Í fréttatilkynningu með ársupp-
gjöri Össurar kom fram að ekki
væri búist við sterkum vexti á
fyrsta ársfjórðungi og er söluþró-
un stuðningstækja talin draga nið-
ur heildarsöluvöxt fyrirtækisins.
Bankarnir gera ráð fyrir sjö til átta
prósenta veltuaukningu á fyrsta
ársfjórðungi frá fyrra ári. - dh
Sækja ekki launakostnað
í vasa skattgreiðenda.
Laun hafa hækkað hraðar hjá
hinu opinbera en á almennum
vinnumarkaði og því verður að
linna að mati Samtaka atvinnu-
lífsins. Samtök atvinnulífsins
leggja áherslu á að einkafyrir-
tæki leiði launamyndun í landinu
en ekki hið opinbera. Aðrir aðil-
ar megi ekki grípa inn í launa-
myndun með yfirboðum. Kjara-
samningar verði að taka mið af
afkomu og samkeppnisstöðu fyr-
irtækja því að þau sæki ekki
launakostnað í vasa skattgreið-
enda.
Ari Edwald, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins,
segir launahækkanir þurfa að
vera raunhæfar og erfitt sé fyr-
ir einkageirann að fylgja hinu
opinbera eftir. „Uppi er vaxandi
krafa um sambærileg lífeyris-
réttindi fyrir atvinnulífið og hið
opinbera en það mun aldrei ger-
ast,“ sagði hann.
Samtök atvinnulífsins vilja að
Ísland verði einn vinnumarkað-
ur en ekki klofinn í almennan
vinnumarkað og opinberan
vinnumarkað eins og nú sé, með
mismunandi réttindum.
Samtök atvinnulífsins segja
alþjóðlega samkeppni kalla á
aukna aðgát gagnvart kostnaðar-
hækkunum en hér á landi séu
laun hærra hlutfall af verð-
mætasköpuninni en víðast hvar í
kringum okkur.
Samtök atvinnulífsins hafa
kynnt áherslur sínar og sagði
Ingimundur Sigurpálsson, for-
maður samtakanna, að Ísland
væri í úrvalsdeild. Þrátt fyrir
það þurfi að skerpa á leikreglum
atvinnulífsins því að mikilvægt
sé að svo verði áfram.
- dh
Fyrirtæki eiga að leiða launahækkanir
STEFNA AÐ SKRÁNINGU Á ÁRINU
Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður
Avion.
Velta í takt
við væntingar
Avion Group hagnast um
2,5 milljarða.
Velta Avion Group á síðasta ári
var í takt við væntingar og hagn-
aður félagsins var um 2,5 millj-
arðar króna. Heildarvelta félags-
ins var rúmlega milljarður doll-
ara, sem samsvarar 69 milljörð-
um króna.
Velta Excel Airways Group,
sem Avion keypti á síðasta ári,
vegur mest innan samstæðunnar.
Hún var 39 milljarðar króna og
hagnaður af Excel nam 1,8 millj-
örðum króna. Hagnaður Air Atl-
anta var tæpur hálfur milljarður
en velta félagsins var tæpir 22
milljarðar króna. Fyrirtækin sem
mynda Avion Group eru Air Atl-
anta Icelandic, Íslandsflug og
Excel Airways Group. - dh
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
LAUNAHÆKKANIR ÞURFA AÐ VERA
RAUNHÆFAR Samtök atvinnulífsins
kynna áherslur sínar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
SPÁ UM AFKOMU ÖSSURAR
– í milljónum dollara
Íslandsbanki 3,6
KB banki 3,8
Landsbankinn 3,8
VÍS selur
fyrir milljarð
VÍS seldi í gær hlutabréf í KB
banka fyrir einn milljarð króna.
Tryggingafélagið verður enn sem
áður einn af stærstu hluthöfum
bankans en félagið er fjórði
stærsti eigandi KB banka á eftir
Meiði fjárfestingafélagi, Eglu og
Arion safnreikningi. Finnur Ing-
ólfsson, forstjóri VÍS, situr í
stjórn KB banka.
Milli félaganna eru gagnkvæm
eignatengsl því KB banki á tæp 30
prósent í VÍS.
- eþa