Fréttablaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 27
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 4 Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Góðan dag! Í dag er föstudagur 29. apríl, 119. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 5.06 13.25 21.46 AKUREYRI 4.40 13.10 21.42 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Gunnar Hansson leikari streitist á móti þegar ruslfæðið togar í hann og hefur oftar en ekki sigur. Hann segist þó ekki elda nógu oft, en er stoltur af grjónagrautnum sínum. „Ég er mjög meðvitaður en ekki alveg nógu duglegur að borða hollt.“ segir Gunnar. „Ég er heldur ekki nógu duglegur að elda þó mér finnist það mjög gaman þegar ég byrja á annað borð. Ef ég hins vegar er illa svang- ur er fyrsta hugsunin ruslfæði og þá þarf ég að beita mig hörðu til að beina huganum á aðrar slóðir. Þetta er samt allt að koma og nú er ég mikið í Melabúðinni og kaupi grill- aðan kjúkling.“ Þegar Gunnar er með börnin sín hjá sér eldar hann grjónagraut, sem hann segir að sé alltaf sérlega vel heppnaður, og mexí- kóskar pönnukökur og kjúklingaréttir liggja líka ágætlega fyrir honum. „En það sem ég geri lang, langbest er að grilla svínarif,“ segir Gunnar. „Ég luma á trikki sem Gunnar Óli Kvaran vinur minn kenndi mér en það er algjört leyndarmál,“ segir hann og ljóstrar upp leyndarmálinu í um 100 þúsund eintökum. „Galdurinn er að sjóða rifin áður en þau eru grilluð. Maður lætur þau malla í um það bil klukkutíma í þremur fjórðu af vatni og einum fjórða af pilsner. Svo penslar maður rifin grimmt með grillsósunni meðan á steikingu stendur, en þau eru tilbúin þegar þau eru fallega stökk. Þá er sniðugt að pensla einu sinni enn og þá verða þau algjör snilld. Gunnar vinur minn býr að sjálfsögðu til sína eigin grillsósu en ég kaupi einhverja góða úti í búð,“ segir Gunnar. „Svo ber ég fram með þessu hrísgrjón og salat, en það er bara til að bjarga mannorðinu, sjálfum finnst mér best að borða þetta eintómt.“ Nú er Gunnar á fullu í sýningum Borgar- leikhússins á Terrorisma. „Þetta er gríðar- lega gott stykki og mikill og svartur húmor. Áhorfendur vakna þó til nýrrar vitundar um terrorisma, sem á sér oft stað í nánasta umhverfi þeirra þó hann verði ekki frétt- næmur fyrr en á hæsta stigi.“ ■ Salatið bjargar mannorðinu tilbod@frettabladid.is Blómaval býður nú grasáburð á góðu verði. Þar hefur fimm kílóa poki lækkað úr 549 kr. í 299 kr. eða um 45%. Þetta til- boð ætti að kæta þá sem hafa yfir lendum að ráða og halda þeim í góðri rækt því áburður- inn er sérvalinn á grasflatir. Gallapils, bolir, peysur, buxur, jakkar, toppar og ýmislegt fleira er á tilboði hjá tískuversl- uninni Cher á Laugavegi 82. Afslátturinn nemur 30%. Allt eru þetta nýjar vörur í númerum frá 34 til 48 en mest í 40-44. Auk þess veit- ir Cher 10% af allri annarri vöru í versluninni. Tilboðið stendur fram á þriðjudag. Garð- og svalahúsgögn eru á lækkuðu verði hjá Garðheim- um. Nefna má sett sem heitir Tennis og inniheldur borð og fjóra stóla. Það var áður á 19.950 kr. en er nú á 15.950 kr. og annað krúttlegt sett sem nefnist Bistro, það kostaði áður 12.450 kr. en er nú á 9.950 kr. Auk þess eru pallahitarar, moltu- kassar, kurlarar og mosatætarar á 15% afslætti í Garðheimum. Sumarúlpur og kápur eru á 15% afslætti hjá Hrafnhildi á Engjateig 5. Þær eru í ýms- um litum og gerðum og gildir afslátturinn aðeins fram á helgina. Hjá Hrafnhildi er opið virka daga frá 10-18 og laugar- daga frá 10-16. Gunnar Hansson leikari er bestur í grjónagraut og grillrifjum. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is LIGGUR Í LOFTINU í tilboðum FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl. Þú getur pantað smáauglýsingar á www.visir.is KRÍLIN Mér finnst svo gaman í bólinu mínu áður en ég fer að sofa. Þá er mamma svo mömmuleg! Fótboltavörur á tilboðsverði BLS. 5 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Neytendur hafa áhrif á vatnsbúskap heimsins Sameinuðu þjóðirnar telja að verði ekkert að gert muni vatnsnotkun vegna matvælafram- leiðslu tvöfaldast til ársins 2050. Með vali sínu á matvörum geta neytendur haft afger- andi áhrif á vatnsbúskap heimsbyggðarinnar. Í nýrri skýrslu sem kynnt var á fundi nefndar Sam- einuðu þjóðanna um sjálf- bæra þróun kemur fram að ef ekkert verði að gert muni vatnsnotkun vegna framleiðslu á matvælum tvöfaldast fram til ársins 2050. Samkvæmt skýrslunni liggur lykillinn að lausn á þessum vanda hvorki hjá bændum, ríkisstjórnum né tæknimönnum, heldur ræður val neytenda mestu. Þeir geti valið á milli hollr- ar fæðu úr heimabyggð, sem framleidd er með sjálfbærum aðferðum, eða matvöru þar sem miklu vatni og öðrum auðlindum hefur verið sóað við fram- leiðsluna. Í skýrslunni er kallað eftir meiri upplýsingum til neytenda um aðferðir við matvælaframleiðslu og um félagsleg og umhverf- isleg áhrif mismunandi að- ferða. ■ Neytendur geta hafnað matvöru þar sem miklu vatni er sóað við framleiðsluna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.