Fréttablaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 46
34 29. apríl 2005 FÖSTUDAGUR HANDBOLTI Málavextir eru þeir að þegar Heimir var rekinn frá Fram sagði hann eina ástæðuna fyrir brottrekstrinum vera þá að stjórn handknattleiksdeildar hefði feng- ið mjög freistandi tilboð sem hún átti erfitt með að hafna. „Kjartan formaður hringdi í mig daginn fyrir fyrsta leikinn gegn ÍBV í úrslitakeppninni og lét mig vita af því að þeir hefðu feng- ið tilboð frá manni sem væri tilbú- inn að greiða þjálfaralaun félags- ins gegn því að sá maður væri Guðmundur Guðmundsson,“ sagði Heimir við Fréttablaðið 21. apríl síðastliðinn og bætti við að þessi maður væri Tryggvi Tryggvason, fyrrum gjaldkeri handknattleiks- deildar og góðvinur Guðmundar. Fréttablaðið bar þessar full- yrðingar Heimis undir Kjartan sama dag, og hann svaraði svona: „Ég hef heyrt af þessu en þetta er bara kjaftasaga sem á sér enga stoð í raunveruleikanum. Við greiðum Guðmundi laun“. Þessi ummæli Kjartans fóru ekki vel í Heimi því formaðurinn segir að með þessu sé Heimir að búa til kjaftasögur og þar með að ljúga. Heimir fór í kjölfarið fram á það við Kjartan að hann bæðist afsökunar á þessum ummælum og það gerði Kjartan loksins í gær. „Hann bað mig afsökunar á ummælum sínum bæði munnlega og skriflega,“ sagði Heimir við Fréttablaðið. „Ég er mjög ánægð- ur með að hann skuli gera þetta og sé maður til þess að biðjast afsök- unar. Ég sætti mig ekki við að því væri haldið fram að ég væri að búa til kjaftasögur því ég var ekki að gera það. Ég stend fyllilega við það sem ég sagði og að hann skuli biðja mig afsökunar undirstrikar að ég sagði satt frá.“ Það var ekki bara Heimir sem var ósáttur við þessi ummæli Kjartans heldur urðu leikmenn og yngri flokka þjálfarar félagsins reiðir og þeir sendu frá sér yfir- lýsingu þar sem meðal annars segir: „Við undirritaðir lýsum yfir óánægju okkar með aðgerðir stjórnar Handknattleiksdeildar Fram í tengslum við uppsögn á samningi Heimis Ríkarðssonar og atburði liðinna daga. Stjórnin hef- ur ekki komið hreint fram í sam- skiptum við hlutaðeigandi aðila né fjölmiðla.“ Leikmenn sættust nokkrum dögum síðar við stjórn- ina þótt engin afsökunarbeiðni hafi komið frá stjórninni. Fréttablaðið hefur ítrekað reynt að ná sambandi við Kjartan síðustu daga án árangurs. henry@frettabladid.is Kjartan bað mig afsökunar Heimir Ríkarðsson, fyrrum þjálfari Fram, sefur sáttur eftir að formaður handknattleiksdeildar Fram, Kjartan Ragnarsson, bað hann afsökunar á að hafa sagt að Heimir væri að búa til kjaftasögur. Í sumarskapi Nýr og spennandi sumarfatnaður. Flíspeysur, skóbuxur, úlpur, jakkar o.fl. Vinsælu Emotion flís- peysurnar frá Sonnen- reiter í fjórum litum Dakoda skóbuxur svartar og tvílitar. Lynghálsi 4 • 110 R. S: 567 3300 • www.hestarogmenn.is OPIÐ ALLA VIKA DAGA 9-19 Á LAUGARDÖGUM FRÁ 10-16 OG SUNNUDÖGUM 13-15 Alaska úlpur og flíspeysur KJARTAN RAGNARSSON Formaður handknattleiksdeildar Fram bað manninn sem hann rak úr starfi þjálfara afsökunar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR HEIMIR RÍKARÐSSON Var ósáttur við að Kjartan Ragnars- son hefði sagt að ummæli hans væru kjaftasaga. Hann uppskar afsökunarbeiðni frá Kjartani í gær. Hann segist vera sáttur við endalok málsins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR KA enn þjálfaralaust: Heimir hafnaði KA HANDBOLTI Það ætlar ekki að ganga þrautalaust fyrir hand- knattleiksdeild KA að finna nýj- an þjálfara í stað Jóhannesar Bjarnasonar sem sagði starfinu lausu þegar KA lauk keppni á Íslandsmótinu í ár. Þeir ræddu fyrst við Atla Hilmarsson sem gaf starfið strax frá sér og svo hafnaði Heimir Ríkarðsson, fyrrum þjálfari Fram, KA- mönnum í gær. „Þetta er mjög spennandi fé- lag og ég ber mikla virðingu fyrir því starfi sem unnið er á Akureyri. Ástæðan fyrir því að ég hafna þeim er sú að ég er ekki tilbúinn að hlaupa frá vinn- unni minni og svo er ég að byggja o.s.frv. Þetta gengur því ekki upp eins og staðan er í dag,“ sagði Heimir við Frétta- blaðið í gær. Heimir hefur einnig átt í viðræðum við Gróttu/KR og bíða Seltirningar enn eftir svari frá Heimi. - hbg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.