Fréttablaðið - 29.04.2005, Qupperneq 46
34 29. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
HANDBOLTI Málavextir eru þeir að
þegar Heimir var rekinn frá Fram
sagði hann eina ástæðuna fyrir
brottrekstrinum vera þá að stjórn
handknattleiksdeildar hefði feng-
ið mjög freistandi tilboð sem hún
átti erfitt með að hafna.
„Kjartan formaður hringdi í
mig daginn fyrir fyrsta leikinn
gegn ÍBV í úrslitakeppninni og lét
mig vita af því að þeir hefðu feng-
ið tilboð frá manni sem væri tilbú-
inn að greiða þjálfaralaun félags-
ins gegn því að sá maður væri
Guðmundur Guðmundsson,“ sagði
Heimir við Fréttablaðið 21. apríl
síðastliðinn og bætti við að þessi
maður væri Tryggvi Tryggvason,
fyrrum gjaldkeri handknattleiks-
deildar og góðvinur Guðmundar.
Fréttablaðið bar þessar full-
yrðingar Heimis undir Kjartan
sama dag, og hann svaraði svona:
„Ég hef heyrt af þessu en þetta er
bara kjaftasaga sem á sér enga
stoð í raunveruleikanum. Við
greiðum Guðmundi laun“.
Þessi ummæli Kjartans fóru
ekki vel í Heimi því formaðurinn
segir að með þessu sé Heimir að
búa til kjaftasögur og þar með að
ljúga. Heimir fór í kjölfarið fram
á það við Kjartan að hann bæðist
afsökunar á þessum ummælum og
það gerði Kjartan loksins í gær.
„Hann bað mig afsökunar á
ummælum sínum bæði munnlega
og skriflega,“ sagði Heimir við
Fréttablaðið. „Ég er mjög ánægð-
ur með að hann skuli gera þetta og
sé maður til þess að biðjast afsök-
unar. Ég sætti mig ekki við að því
væri haldið fram að ég væri að
búa til kjaftasögur því ég var ekki
að gera það. Ég stend fyllilega við
það sem ég sagði og að hann skuli
biðja mig afsökunar undirstrikar
að ég sagði satt frá.“
Það var ekki bara Heimir sem
var ósáttur við þessi ummæli
Kjartans heldur urðu leikmenn og
yngri flokka þjálfarar félagsins
reiðir og þeir sendu frá sér yfir-
lýsingu þar sem meðal annars
segir: „Við undirritaðir lýsum yfir
óánægju okkar með aðgerðir
stjórnar Handknattleiksdeildar
Fram í tengslum við uppsögn á
samningi Heimis Ríkarðssonar og
atburði liðinna daga. Stjórnin hef-
ur ekki komið hreint fram í sam-
skiptum við hlutaðeigandi aðila né
fjölmiðla.“ Leikmenn sættust
nokkrum dögum síðar við stjórn-
ina þótt engin afsökunarbeiðni
hafi komið frá stjórninni.
Fréttablaðið hefur ítrekað
reynt að ná sambandi við Kjartan
síðustu daga án árangurs.
henry@frettabladid.is
Kjartan bað mig afsökunar
Heimir Ríkarðsson, fyrrum þjálfari Fram, sefur sáttur eftir að formaður handknattleiksdeildar Fram,
Kjartan Ragnarsson, bað hann afsökunar á að hafa sagt að Heimir væri að búa til kjaftasögur.
Í sumarskapi
Nýr og spennandi
sumarfatnaður.
Flíspeysur, skóbuxur,
úlpur, jakkar o.fl.
Vinsælu Emotion flís-
peysurnar frá Sonnen-
reiter í fjórum litum
Dakoda
skóbuxur
svartar
og tvílitar.
Lynghálsi 4 • 110 R. S: 567 3300 • www.hestarogmenn.is
OPIÐ ALLA VIKA DAGA 9-19
Á LAUGARDÖGUM FRÁ 10-16 OG SUNNUDÖGUM 13-15
Alaska
úlpur og
flíspeysur
KJARTAN RAGNARSSON Formaður
handknattleiksdeildar Fram bað manninn
sem hann rak úr starfi þjálfara afsökunar í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HEIMIR RÍKARÐSSON Var
ósáttur við að Kjartan Ragnars-
son hefði sagt að ummæli hans
væru kjaftasaga. Hann uppskar
afsökunarbeiðni frá Kjartani í
gær. Hann segist vera sáttur við
endalok málsins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KA enn þjálfaralaust:
Heimir
hafnaði KA
HANDBOLTI Það ætlar ekki að
ganga þrautalaust fyrir hand-
knattleiksdeild KA að finna nýj-
an þjálfara í stað Jóhannesar
Bjarnasonar sem sagði starfinu
lausu þegar KA lauk keppni á
Íslandsmótinu í ár. Þeir ræddu
fyrst við Atla Hilmarsson sem
gaf starfið strax frá sér og svo
hafnaði Heimir Ríkarðsson,
fyrrum þjálfari Fram, KA-
mönnum í gær.
„Þetta er mjög spennandi fé-
lag og ég ber mikla virðingu
fyrir því starfi sem unnið er á
Akureyri. Ástæðan fyrir því að
ég hafna þeim er sú að ég er
ekki tilbúinn að hlaupa frá vinn-
unni minni og svo er ég að
byggja o.s.frv. Þetta gengur því
ekki upp eins og staðan er í
dag,“ sagði Heimir við Frétta-
blaðið í gær. Heimir hefur
einnig átt í viðræðum við
Gróttu/KR og bíða Seltirningar
enn eftir svari frá Heimi.
- hbg