Fréttablaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 42
KB banki skilaði ríflega
ellefu milljarða hagnaði
sem var í takti við vænt-
ingar greiningardeilda.
Stjórn Singer & Fried-
lander hefur ákveðið að
mæla með að hluthafar
bankans taki kauptilboði
KB banka.
KB banki hefur gert bindandi til-
boð í breska bankann Singer &
Friedlander. Stjórn breska bank-
ans hefur ákveðið að mæla með
tilboðinu.
Þar með er nánast ekkert sem
komið getur í veg fyrir að KB
banki kaupi breska bankann. KB
banki birti einnig uppgjör sitt í
gær og nam hagnaður bankans
rúmum ellefu milljörðum á fyrstu
þremur mánuðum ársins sem er í
samræmi við spár. Hagnaður
bankans hefur aldrei verið meiri
á einum ársfjórð-
ungi, en inni í
hagnaðar-
t ö l u n u m
er sölu-
hagnað-
ur af
L ý s -
i n g u
o g
geng-
ishagnaður af breytanlegu
skuldabréfi í Bakkavör. Heildar-
eignir bankans eru 1.675 milljarð-
ar króna og með sameiningu við
S&F verða eignir bankans um
2.000 milljarðar króna. Arðsemi
eigin fjár á tímablinu var 33 pró-
sent.
Kaupgengið í viðskiptunum er
316 pens á hlut, en auk þess fá nú-
verandi eigendur arðgreiðslu upp
á um 4,25 prósent á hlut. Sam-
kvæmt þessu er verð breska
bankans tæpir 65 milljarðar
króna, en KB banki á sjálfur 19,5
prósent eða rúma tólf milljarða af
því.
Með kaupunum verður Bret-
land, ásamt Danmörku og Íslandi,
helsta markaðssvæði bankans.
Þar munu eftir kaupin starfa á
sjöunda hundrað manns. Í
kynningu bankans á uppgjör-
inu í Stokkhólmi í gær fór
Hreiðar Már Sigurðsson yfir
uppgjör bankans. Hann sagði
afkomuna sýna að bankinn sé
á réttri leið. „Bætt afkoma
skýrist fyrst og fremst af
auknum tekjum, þótt það sé
vissulega ánægjulegt að sjá
heildarkostnað minnka á milli
ársfjórðunga. Tekjur aukast á öll-
um markaðssvæðum. Um 62% af
tekjum bankans myndast nú utan
Íslands og hefur það hlutfall
aldrei verið hærra.“
Sigurður Einarsson kynnti hins
vegar kaup bankans á Singer &
Friedlander í London. Hann sagði
kaupin í samræmi við stefnu
bankans um að efla starfsemi í
Bretlandi. „Saman munu Singer &
Friedlander mynda sterkari heild
með spennandi vaxtarmöguleik-
um.“ Tony Shearer, forstjóri S&F,
tók í sama streng. Hann sagði
bankann hafa góða stöðu á kjarna-
mörkuðum. „Með sölunni til
Kaupþings banka getur Singer &
Friedlander haldið áfram þróun
þessarar stefnu innan stærri fjár-
málasamstæðu.“
KB banki þarf ekki að gefa út
nýtt hlutafé vegna kaupanna og
hefur borð fyrir báru til frekari
kaupa á fyrirtækjum. Hreiðar
Már sagði á fundinum að fram til
þessa hefðu kaup bankans ein-
kennst af því sem hann kallaði
kaup Davíðs á Golíat. Hann sagði
bankann hafa áhuga á að styrkja
stöðu sína á starfssvæðum sínum
í Noregi og Finnlandi. Reiknað er
með að KB banki taki breska
bankann yfir eftir fjóra til fimm
mánuði. haflidi@frettabladid.is
Veisla en ekki bankakaup
Það fréttist af hópi Landsbankamanna og starfs-
manna Burðaráss á leið til London nú í vikunni.
Orðrómurinn flaug þegar um viðskiptalífið og
margir voru á því að nú væru
stór viðskipti í uppsiglingu.
Eins og oft vill brenna við,
þá reyndist orðrómurinn
ekki á rökum reistur. Lands-
bankamenn voru ekki í stór-
um kauphugleiðingum í þetta
sinnið. Þeir voru mættir til þess
að taka þátt í veisluhöldum
þeirra sem komu að kaupum á
Icelandkeðjunni. Venjan er að haldið sé
upp á slík viðskipti með þeim sem að þeim
komu með veglegri veislu. Ekki spillti ferðinni
að leikur Chealsea og Liverpool var á Stam-
ford Bridge og því hefur verið margt um
mannin í stúkunni sem Pálmi Haraldsson,
stjórnarformaður Iceland, leigir á vellinum.
Leikurinn var hins vegar leiðinlegur og marka-
laus.
Tugmilljarðar lítil tíðindi
Ekki fer sögum af því hvort KB-bankamenn voru
á vellinum í stúkunni sinni og Bakka-
varar. Þeir stóðu hins vegar í þriðju
stærstu fyrirtækjakaupum Íslend-
inga frá upphafi með kaupunum á
Singer & Friedlander. Fréttin kom í
gærmorgun og samhliða skilaði KB
banki mesta hagnaði skráðs fyr-
irtækis á Ísland á einum árs-
fjórðungi. Svo bar við að
þessi tíðindi viku fyrir öðrum
í fréttatíma Rúv og fóru þar
saman fréttir af dómsmálum
og hitt að sennilega eru
menn hættir að kippa sér
upp við fréttir af milljarðatug-
um.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.125
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 403
Velta: 3.153 milljónir
+0,30%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
30 29. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
Peningaskápurinn…
Actavis 40,40 +0,20% ... Atorka 6,10
+1,7% ... Bakkavör 33,00 -0,90% ... Burðarás 14,25 -... FL Group 14,50
+1,0 ... Flaga 5,46 – ... Íslandsbanki 13,75 -0,7% ... KB banki 551,00 -
0,50% ... Kögun 62,80 +0,2 ... Landsbankinn 16,50 – ... Marel 55,60 -
0,7% ... Og fjarskipti 4,05 +1,20% ... Samherji 12,10 – ... Straumur
12,20 +0,8% ... Össur 83,50 -0,60%
Methagnaður og kaup
á breskum banka
Hampiðjan 2,94%
Atorka 1,67%
Og fjarskipti 1,24%
Síminn -3,16%
Bakkavör -0,90%
Íslandsbanki -0,72%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Yfir væntingum
Áfram gert ráð fyrir góð-
um vexti.
Bakkavör skilaði 4,2 milljóna
punda hagnaði á fyrsta ársfjórð-
ungi eða 484 milljónum króna sem
er tæplega tvöföldun frá fyrra ári.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði nam 929 milljónum
króna og jókst um 58 prósent milli
ára. Hlutfall hagnaðar fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði var 21
prósent samanborið við 15 prósent
árið áður en þetta hlutfall er að
jafnaði lægst á fyrsta ársfjórðungi.
Rekstur Bakkavarar á fyrsta
ársfjórðungi var í takt við vænting-
ar stjórnenda og nokkuð yfir spám
bankanna í heild.
Sala Bakkavarar jókst um 14
prósent milli ára sem vekur athygli
vegna þess að mikil samkeppni er í
framleiðslu á kældum réttum.
Þrýstingur á verð er því mikill en
stjórnendur Bakkavarar segja
tengsl sín við Tesco, helstu við-
skiptavini sína, mjög góð. Stjórn-
endur félagsins gera ráð fyrir
áframhaldandi góðum vexti.
Mikið handbært fé frá rekstri er
einkennandi fyrir rekstur Bakka-
varar og var það 822 milljónir
króna á fyrsta ársfjórðungi.
Arðsemi eigin fjár var 19 pró-
sent á fyrsta ársfjórðungi saman-
borið við 12 prósent árið áður.
- dh
SPÁR OG AFKOMA BAKKAVAR-
AR Í MILLJÓNUM PUNDA
Hagnaður 4,2
Spá Íslandsbanka 4,5
Spá KB banka 3
Spá Landsbankans 3,6
Skýrsla Morgan Stanley til einkavæð-
ingarnefndar um söluferli Símans
verður gerð opinber í dag. Um er að
ræða þann hluta er varða tillögur ráð-
gjafafyrirtækisins um fyrirkomulag
sölunnar. Aðrar upplýsingar hafa verið
teknar út.
Eins og fram kom í Markaðinum á
miðvikudaginn fundaði einkavæðing-
arnefnd sama dag þar sem ákvörðun
um birtingu skýrslunnar var tekin. Jón
Sveinsson, formaður einkavæðingar-
nefndarinnar, segir að um vinnufund
hafi verið að ræða með ráðgjöfum
Morgan Stanley. Nefndarmenn séu
ánægðir með framgang söluferilsins
og samskipti við þá aðila, sem hafi
viljað kynna sér Símann nánar. Margir
hafi fengið viðbótargögn í hendur eft-
ir að hafa undirritað trúnaðarsamn-
ing.
„Enginn gerir í sjálfu sér athugasemd-
ir við þetta fyrirkomulag sem við
vinnum eftir,“ segir Jón. – bg
Tillögur Morgan Stanley birtar
Lífeyrissjóðurinn Framsýn, sem
er þriðji stærsti lífeyrissjóður
landsins, og Lífeyrissjóður sjó-
manna, sá fjórði stærsti, hafa
ákveðið að sameinast og mun
samruninn taka gildi frá og með 1.
júní. Með sameiningunni verður
til Gildi lífeyrissjóður sem hefur
heildareignir yfir 155 milljarða
króna og 22 þúsund sjóðfélaga.
Árni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs sjó-
manna, verður framkvæmda-
stjóri Gildis. „Við erum að búa til
öflugri sjóð og breikkum sjóðfé-
lagahópinn. Einnig aukum við
áhættudreifingu sem skilar sér
vonandi í betri ávöxtun fyrir okk-
ar félagsmenn,“ segir Árni.
Rekstur sjóðanna hefur verið í
miklum blóma undanfarin ár. Á
síðasta ári var raunávöxtun 13,6
prósent hjá Framsýn og 16,3 pró-
sent hjá Lífeyrissjóði sjómanna.
- eþa
Framsýn og Lífeyrissjóður sjómanna sameinast
Gildi lífeyrissjóður
tekur til starfa
STAÐA FRAMSÝNAR OG LÍFEYRISSJÓÐS SJÓMANNA UM SÍÐUSTU ÁRAMÓT
Lífeyrissjóður Heildareignir Virkir sjóðsfélagar
Lífeyrissjóðurinn Framsýn 76 milljarðar 17.735
Lífeyrissjóður sjómanna 68 milljarðar 3.665
Alls 144 milljarðar 21.400
HAGNAÐUR TVÖFALDAST Ágúst og Lýð-
ur Guðmundssynir, stjórnendur Bakkavar-
ar.
SAMEINING LÍFEYRISSJÓÐA Lífeyris-
sjóðurinn Framsýn og Lífeyrissjóður sjó-
manna hafa náð samkomulagi um sam-
einingu sjóðanna. Hinn nýi sjóður verður
til húsa í Sætúni.
SPÁR UM AFKOMU KB BANKA
Í MILLJÓNUM KRÓNA
Íslandsbanki 11.270
Landsbankinn 11.300
Meðaltal 11.285
Niðurstaða 11.093
SINGER KEYPTUR
Það lá vel á Tony Shearer, forstjóra
Singer & Friedlander, og
Sigurði Einarssyni, stjórnarformanni
KB banka, þegar þeir kynntu
kauptilboð KB banka í London í gær.
Eignir KB banka eftir kaupin
verða tvö þúsund milljarðar.
KB banki setur ný viðmið
Hagnast um 85 þúsund krónur á mínútu
KB banki hefur sett ný viðmið með ellefu milljarða hagnaði á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er mesti hagnaður ís-
lensks félags á einum ársfjórðungi en til samanburðar hagnaðist bankinn um 15,8 milljarða allt árið í fyrra. Ellefu milljarðarn-
ir urðu til á 91 degi á tímabilinu janúar til mars. Þetta gerir 122 milljónir króna á dag, fimm milljónir á klst., 85 þúsund á
mínútu og 1.410 á sekúndu.
En hvað eru ellefu milljarðar í samanburði við aðrar tölur? Héðinsfjarðargöng eru talin kosta sex milljarða, vikuleg velta á
fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu er um 4,5 milljarðar, kortavelta Íslendinga innanlands var ellefu milljarðar í desem-
ber og samanlögð útgjöld ríkisins vegna barna- og vaxtabóta munu nema 11,5 milljörðum á þessu ári. Ef við gerðum ráð fyrir
að meðallaun vinnandi manns væru 250.000 krónur þá þarf mánaðarlaun 44.000 manns til að jafna hagnað KB banka.
Matsfyrirtækið Moody's sendi í
gær frá sér tilkynningu þess efnis
að þeir hyggist endurmeta lánshæf-
ismat opinberra fyrirtækja og stofn-
ana víðs vegar um heiminn og nota
við það nýja aðferð.
Íbúðalánasjóður er eitt þeirra opin-
beru fyrirtækja sem er á lista þeim
sem Moody's birti yfir þau fyrirtæki
sem þessar nýju matsaðferðir muni
ná til.
Tap var á rekstri Flögu á fyrsta
ársfjórðungi ársins. Tapið nam ríf-
lega milljón dollurum eða um 65
milljónum króna. Afkoma félagsins
er í samræmi við áætlanir fyrirtæk-
isins. Á tímabilinu féll til kostnaður
vegna starfsloka stjórnenda.
Gengi íslensku krónunnar styrkt-
ist um 0,18 prósent í fremur litlum
viðskiptum í gær.