Fréttablaðið - 29.04.2005, Page 18
18 29. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
Gremju gætir meðal
sumra launþega vegna
þess að verkalýðsdaginn
– fyrsta maí – ber upp á
sunnudegi að þessu sinni.
Fyrsti maí er á sunnudaginn og
verða hátíðarhöld verkalýðsfé-
laga haldin um land allt. Sem
fyrr er bættra kjara og réttinda
krafist og viðbúið að nokkurt
fjölmenni verði í kröfugöngum
og á baráttufundum.
Fyrsti maí er lögbundinn frí-
dagur launþega en segja má að
fríið detti dautt niður þar sem
daginn ber upp á sunnudag.
Greina má gremju vegna þess
meðal verkafólks sem gjarnan
vildi fá frí á virkum degi. Hinir
sömu segja að þegar svona hátti
til ættu launþegar í staðinn að fá
frí á föstudegi eða mánudegi.
„Ég hef oft verið spurður að
því að undanförnu hvort ekki sé
sanngjarnt að frí sé gefið á virk-
um degi í staðinn,“ segir Aðal-
steinn Baldursson, formaður
Verkalýðsfélags Húsavíkur, og
bætir við að sér finnist krafan
sanngjörn. „Það hefur samt
aldrei verið farið fram með
hana í samningaviðræðum.“
Aðalsteinn bendir á að fyrsti
maí sé alþjóðlegur baráttudagur
verkafólks og því erfitt að
hrófla við því. „Menn verða
bara að standa og falla með
því að oft er hann á virkum
dögum og svo lendir
hann á helgi. Við verð-
um bara að bíta í það
súra epli – sem
reyndar er mjög
súrt.“
Signý Jóhannes-
dóttir, formaður
verkalýðsfélags-
ins Vöku á Siglu-
firði, segir um-
ræðuefnið sígilt.
„Sumir eru þeirr-
ar skoðunar að
þetta eigi að vera
eins og verslunar-
mannafrídagurinn
og bera upp á fyrsta
mánudag í maí. Ann-
ars var ég
að skoða
a l m -
a n -
a k -
ið fram í tímann og sé að eftir
tvö ár falla saman fyrsti maí og
uppstigningardagur. Það
verður nú ekki gæfulegt.“
Signý segist ekki sjá
fram á að frídegi
v e r s l u n a r m a n n a
verði hnikað þó að
það sé freistandi að
lengja helgina.
„Atvinnurekend-
ur vilja nú færa
s u m a r d a g i n n
fyrsta fram á
haust og upp-
s t i g n i n g a r d a g
líka vegna þessa
hökts í atvinnu-
lífinu á vorin
þannig að ég held
að þeir séu ekki til
í viðræðu um það.“
bjorn@frettabladid.is
PARATABS-VERKJATÖFLUR KOSTA FRÁ
195 UPP Í 334 KRÓNUR
Heimild: ASÍ
HVAÐ KOSTAR ÞAÐ?
„Það er heilmikið að gera við að undir-
búa keppni í íslenskri knattspyrnu fyrir
sumarið,“ segir Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Knattspyrnusambands Ís-
lands. „Það þarf gríðarlegan undirbún-
ing til að allt gangi snurðulaust fyrir sig
því þetta eru þúsundir leikja.“ Þótt álag-
ið sé mikið segir Geir það vera innan
hóflegra marka. „Það hefur þó aukist
eftir því sem umfangið verður meira.
Við erum alltaf að skapa betri umgjörð
fyrir toppfótbolta og fjölga leikjum fyrir
yngri iðkendur þannig að allir geta
fengið að leika.“
Sumarið helgar Geir fótboltanum og
hann man ekki hvenær hann fór síðast
í skipulagt sumarfrí. „Konan kvartar
mikið yfir því að ég taki aldrei sumarfrí.
Ef það gerist er það yfirleitt tengt knatt-
spyrnuviðburðum. En ég er
búinn að lofa úrbótum og
er að leita mér að öðru
áhugamáli; það er hreinn
sannleikur.“
Geir spilar fótbolta
nokkrum sinnum í viku
með vinnufélögunum.
„Það er ekki nóg með að
þurfa að stjórna þeim í
vinnunni, heldur þarf ég að
reyna að stjórna þeim í
boltanum líka. Það
getur reynst erfitt.
Þeir hafa
heldur
ekki
fengið
kennslu í fínni grunntækni
knattspyrnunnar,“ segir hann
og hlær.
Íslandsmeistaramótið í
knattspyrnu hefst í næsta
mánuði og Geir telur Ís-
landsmeistara FH sigur-
stranglegasta. Hann gefur
ekki upp hvort hann kysi
að sjá einhverja aðra
hampa titilinum. „Það er
alltaf ánægjulegt að afhenda
Íslandsmeisturum sig-
urlaunin, hverjir
sem þeir eru,
því maður veit
að það er
verðskuld-
að.“
Leitar sér að öðru áhugamáli
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? GEIR ÞORSTEINSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI KSÍ
SIGNÝ SÆMUNDSDÓTTIR
Vill koma upp
um svikahrappa
EFTIRLIT MEÐ ÖRORKUSVIKURUM
SJÓNARHÓLL
Þrekmeistarinn haldinn á Akureyri um helgina:
Reykjavíkurmaraþon framtíðarinnar
Dágóður hópur af hraustasta fólki
landsins verður á Akureyri um
helgina og reynir með sér í keppn-
inni um Þrekmeistarann 2005.
Yfir 150 manns hafa skráð sig til
leiks og telst forsvarsmönnum
mótsins til að keppendur komi frá
16 bæjarfélögum.
Einar Guðmann, umsjónar-
maður Þrekmeistarans, segir
mótið stefna í að komast á stall
með hinu fjölmenna Reykjavíkur-
maraþoni. „Ég hef sterkan grun
um að með þessu framhaldi verði
þetta Reykjavíkurmaraþon fram-
tíðarinnar. Ég leyfi mér alveg að
fara langleiðina með að fullyrða
það,“ segir hann og hlær.
Til marks um þá fjölgun sem
orðið hefur í hópi keppenda nefn-
ir Einar að árið 2001, þegar mótið
var fyrst haldið, voru keppendur
rúmlega 30. Nú stefni þeir í að
verða hátt í 160.
Meðal keppnisgreina á Þrek-
meistaranum eru þrekvél, arm-
beygjur og axlapressa og segir
Einar að ein helsta ástæðan fyrir
mikilli þátttöku sé sú að þetta séu
sömu æfingar og fólk gerir í lík-
amsræktarsölunum. „Þetta eru
kunnuglegar æfingar og koma
engum á óvart og því hefur fólk
gaman af að spreyta sig.“
Einar Guðmann veit hvað hann
syngur þegar þegar kemur að lík-
amsrækt enda sjálfur rammur að
afli. Hann tók þátt í fyrsta Ís-
landsmótinu í vaxtarrækt sem
haldið var 1982 og hefur hugsað
vel um skrokkinn á sér síðan.
„Þessi bóla sem talað var um eftir
fyrstu vaxtarræktarmótin – lík-
amsræktarbólan – er orðin ansi
langdregin og ég hef ekki enn séð
merki þess að hún fari að
sprynga.“ - bþs
!
"#$"%"%
&
'
(
))
'
FITTÝ BOLLURNAR FRÁ SPORTHÚSINU Þær tóku þátt síðast og stóðu sig vel.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
IN
AR
G
U
Ð
M
AN
N
„Mér finnst allt í lagi að herða eftirlit,
en það verður að gera það með rétt-
um formerkjum þannig að það komi
ekki niður á neinum sem á það ekki
skilið,“ segir Signý Sæmundsdóttir
söngkona. Í nýlegri skýrslu kom í ljós
að bótaþegum hefur fjölgað um 82
prósent á 13 árum og útgjöld hins op-
inbera hafa aukist um tæpa níu millj-
arða króna á þeim tíma. Trygginga-
stofnun hyggst nú herða mjög eftirlit
sitt til að ná þeim sem svíkja út ör-
orkulífeyri með því að vinna „svart“ en
eru samt á bótum. Einnig með þeim
sem eiga börn og eru fráskildir á papp-
írum til að fá hærri barnalífeyri.
Signý telur þó að langflestir séu mjög
samviskusamir og fái það sem þeir eigi
skilið og sé það sjálfsagt. Hins vegar
séu alltaf til einhverjir svartir sauðir
sem svíki undan og sé það mjög
slæmt þar sem þeir rýri sannleiksgildi
þeirra sem eru að gera rétt.
„Ég vona bara að öryrkjar fái sitt og
komið verði upp um svikahrappana,“
segir Signý.
SIGNÝ
JÓHANNESDÓTTIR
AÐALSTEINN
BALDURSSON
Bitið í súrt epli
SÚRA EPLIÐ Í þetta epli mega
þeir bíta sem eru súrir yfir að fyrsta
maí beri upp á sunnudegi.