Fréttablaðið - 29.04.2005, Page 28
Sveppir Sveppir eru uppfullir af B-vítamíni, og þá sérstak-
lega B12, ásamt járni og kalíum. Best er að kaupa þá ferska og
geyma þá í kæli í bréfpoka.[ ]
GNOÐARVOGI 44
Opið frá 10-18:15
Nýr stór
humar
Nýlagað sushi
Glæsilegt úrval
fiskrétta
- tilbúnir á grillið
Réttir kvöldsins
Fordrykkur í boði hússins
M/ þriggja rétta seðlinum Canasta Cream
Forréttur verð f/ einrétta verð f/ þriggja
rétta máltíð
Humarsúpa kr. 850
m/ rjómatoppi og hvítlauksbrauði
Aðalréttir
Smjörsteiktur skötuselur kr. 2.950 kr. 3.890
m/ hvítvínssósu , grænmeti
og bakaðri kartöflu
Lambafillet kr. 2.980 kr. 3.890
m/ sherrybættri sveppasósu, grænmeti
og bakaðri kartöflu
Nautalundir kr. 3.150 kr. 3.990
m/chateaubriandsósu, grænmeti
og bakaðri kartöflu
Eftirréttur
Súkkulaðifrauð kr. 690
Borðapantanir í síma 562 1988
Veitingahúsið Madonna Rauðarárstíg 27 www.madonna.is
Tómatar eru ber
Kirsuberjatómatar eru sætir
og ljúffengir og henta bæði í
salöt og matreiðslu.
Kirsuberjatómatar eru smávaxnir
tómatar, sérlega sætir og bragð-
góðir og minna ef til vill fremur á
ber en grænmeti. Það er ekkert
skrítið þegar haft er í huga að
tómatar eru í raun ber. Kirsu-
berjatómatar henta vel í salöt en
ekki síður í ýmiss konar rétti.
Yfirleitt er þó best að elda þá ekki
of lengi, eða ekki lengur en svo að
þeir haldi lögun. Heitur kirsu-
berjatómatur, til dæmis kryddað-
ur með ferskum kryddjurtum,
pipar og salti, getur verið eins og
bragðsprengja og er frábært með-
læti með margs konar mat. En svo
er líka gott að tína þá bara beint
upp í sig, rétt eins og hver önnur
ber.
Kirsuberjatómatasalat með bals-
amediki
400 g kirsuberjatómatar
3 msk. ólífuolía
1 msk. balsamedik
1 tsk. sykur eða hunang
1 hvítlauksgeiri, pressaður
nýmalaður pipar
salt
hnefafylli af salatblöðum
8-10 grænar ólífur, steinlausar
75 g fetaostur
Hver tómatur um sig er skor-
inn í tvennt. Olía, edik, sykur,
hvítlaukur, pipar og salt sett í skál
og hrært vel saman. Tómatarnir
settir út í og blandað vel. Látið
standa í hálftíma og hrært öðru
hverju. Salatblöðin rifin eða söx-
uð gróft og ólífurnar skornar í
sneiðar. Öllu blandað saman í skál
og borið fram.
Kirsuberjatómatar með hvítlauk
250 g kirsuberjatómatar
2-3 hvítlauksgeirar
3 msk. ólífuolía
nýmalaður pipar
salt
8-12 basilíkublöð
Ofninn hitaður í 200˚C. Djúp
rauf skorin í hliðina á hverjum
tómat, næstum inn að miðju. Hvít-
lauksgeirarnir skornir í þunnar
sneiðar og einni sneið stungið inn í
hvern tómat (best er að þrýsta ögn
á þá svo að raufin opnist). Þeir eru
svo settir í eldfast mót, hæfilega
stórt til að rúma þá í einföldu lagi,
ólífuolíu ýrt yfir og kryddað með
pipar og salti. Bakað í um 15 mínút-
ur, eða þar til tómatarnir eru vel
mjúkir en halda enn lögun. Basilík-
an söxuð og stráð yfir tómatana um
leið og þeir eru teknir úr ofninum.
Borið fram t.d. sem meðlæti með
mat eða sem sósa út á pasta.
Kirsuberjatómatabrauð
300 ml vatn, ylvolgt
1 msk. þurrger
1 tsk. hunang eða sykur
450 g hveiti, eða eftir þörfum
1 tsk. salt
3 msk. ólífuolía
500 g kirsuberjatómatar
svolítið gróft salt (má sleppa)
Vatn, ger og hunang eða sykur
sett í skál og látið standa í nokkrar
mínútur. Þá er hveiti, salti og 2
msk. af olíu bætt út í og hrært vel.
Deigið á að vera fremur þykkt en
þó ekki svo að hægt sé að hnoða
það með höndunum. Látið lyfta sér
við stofuhita í um 2 klst. Þá er því
hvolft úr skálinni á pappírsklædda
bökunarplötu og það mótað með
hveitistráðum höndum í fremur
þunnt brauð, ferhyrnt eða
kringlótt. Tómötunum þrýst vel
ofan í brauðið og það síðan látið
lyfta sér aftur í um 25 mínútur. Á
meðan er ofninn hitaður í 220˚C.
Tómötunum þrýst aftur ofan í
brauðið, það penslað með 1 msk af
ólífuolíu, dálitlu grófu salti e.t.v.
stráð yfir, og það síðan bakað í 18-
20 mínútur, eða þar til það hefur
lyft sér vel og er fallega gullin-
brúnt. ■
LINDEMANS BIN: Risarnir frá Ástralíu
Enski læknirinn Henry Lindeman hóf víngerð í Hunter-dalnum í
Nýja Suður-Wales í Ástralíu snemma á 19. öld. Lindemans er stærsta
vínhús Ástralíu, framleiðir einnig Rosemount, Penfolds og fleiri
gæðavín.
Lindemans Cabernet Sauvignon Bin 45 fékk nýlega afbragðsein-
kunn í tímaritinu Wine Spectator, 85 stig, og talin „bestu kaup“ í vín-
um. Vínið er nútímalegt, ávaxtaríkt og auðdrekkanlegt. Það ræður
við flestan mat og er ákaflega ljúft eitt og sér.
Lindemans Chardonnay Bin 65 er mest selda ástralska vínið í ver-
öldinni. Rétt eins og cabernet sauvignon vínið hefur það verið útnefnt
„bestu kaup“ í Wine Spectator. Þetta vín flokkast sem þurrt vín, ákaf-
lega ferskt vín og ávaxtaríkt, einnig finnst hér kemur af hnetu og eik.
Kynningarverð á áströlskum dögum 1.300 kr.
JACOB'S CREEK: Ofursopi Ástralíu
„Ofursopi Ástralíu“, eða „Australia's Top Drop“, er vínið
Jacob’s Creek nefnt af andfætlingum okkar. Philip Laf-
fer, víngerðarmaðurinn á bak við Jacob’s
Creek, hefur m.a. verið valinn víngerðar-
maður Ástralíu en hann þykir í hópi helstu
víngerðarmanna heims. „Við búum við ákaf-
lega góðar aðstæður frá náttúrunnar hendi
og höfum því getað nýtt landið mjög vel og
komið gæðunum í flöskurnar án mikilla til-
færinga. Við höfum líka alltaf haft þá
stefnu að setja peningana í framleiðsluna
frekar en auglýsingar og þess vegna
erum við að bjóða svona gott verð,“
segir Philip Laffer. Þrátt fyrir hógværð
Laffers er ljóst að það eru engir
aukvisar sem hugsa um markaðsmálin
hjá Orlando Wyndham en Jacob's
Creek er langsöluhæsta vínið í Ástralíu
og jafnframt það ástralska vín sem
mest er flutt út af. Fyrirtækið ætlar að
eyða 100 miljónum dollara í að byggja
upp framleiðslu sína næstu þrjú árin
til að anna þeirri miklu eftirspurn sem
er eftir vínunum á alþjóðamarkaði.
Patrick Ricard, forstjóri risasam-
steypunnar Pernod Ricard, sem á Or-
lando Wyndham, segir að Jacob's
Creek sé „stjarnan í perlufesti sam-
steypunnar“ og markmiðið sé að gera
vínið að söluhæsta víni veraldar.
Kynningarverð á áströlskum dögum: Jacob's Creek Shiraz-
Cabernet 1.090 kr. og Jacob's Creek Chardonnay 990 kr.
- mest lesna blað landsins
Á LAUGARDÖGUM