Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.04.2005, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 29.04.2005, Qupperneq 39
Ingibjörg, Össur, flokkur, þjóð En eina ferðina stefnir í bræðra- víg í flokki alþýðunnar og hags- munum heildarinnar er vikið fyrir sínum eigin. Þar sem víðar, fær eigingirnin allt besta pláss- ið? Ætla menn aldrei að þroskast og læra af reynslunni? Um er að ræða tvo sæmilega hæfa for- ingja, sem eru þó langt í frá gallalausir. Ef þau sömu halda að Sam- fylkingin þoli eigingjarnt frama- pot og augljósa sýndarmennsku, fara þau villur vega. Sagt er að sá vægi, sem vitið hefur meira. Svo þarf þó ekki að vera í öllum málum. Snjallir herforingjar hætta ekki öllu í eina orustu. Þeir vilja vinna stríðið og geyma trompið. Ef hallar á og óvinurinn ætlar að láta kné fylgja kviði, tekur óþreytt úrvalslið á móti þeim. Þannig á Samfylkingin að gera. Tefla Össuri fram í fyrstu lotu og þar á eftir Ingibjörgu. Með því móti gæti flokkurinn átt mörg ár í ríkisstjórn. Samstaðan og sjónarmiðin skipta mestu um farsæld. Óvinafagnaður sá, er forustu- fólkið kyndir nú undir sem ákaf- ast, á eftir að koma flokknum illa og þeim sjálfum þar af leiðandi. Ég efast lítið um að þau tvö, sem nú kjósa að gera hverja vitleys- una á fætur annarri, hafi til síns ágætis nokkuð. En glámskyggnin er ekki bara einfeldninganna. Þótt Ingibjörg Sólrún hafi vænt mig um kvenfyrirlitningu í skrif- um mínum og Össur, þáverandi ritstjóri DV, lokað á greinar frá mér, tók ég það ekki inn á mig. Sólrúnu líkaði ekki afstaða mín til fyrirhugaðrar úthlutunar lóð- ar í Laugardalnum og fleira. En inngrip Össurar helguðust af því að ég og þeir bræðurnir vorum ekki sammála um friðun dýra og annað í umhverfismálum. Það varð til þess að sú saga komst á kreik, eftir að viðvörunarkerfi fór af stað á umhverfisráðstefnu í Háskólabíó, að ég hefði hafnað aðstoð Össurar úr mögulegum eldsvoða. Hann kom að vísu til mín, en gárungarnir sögðu að ég vildi heldur brenna inni en þiggja aðstoð frá honum. Meðan svona húmor lifir, er okkur óhætt. Engin flokkur getur þóknast öllum en Samfylkingin hefur mesta breidd. En hún hefur, því miður, sérlega fráhrindandi áhugamál. Þar ber hæst áætlun um inngöngu í ESB, þar sem glundroðinn er í algleymingi. Fyrir okkur þýddi það ófrelsi, niðurlægingu og verri kjör. Við- skipti við önnur lönd færðust úr okkar höndum sem og allar auð- lindirnar. Vegna þessa máls Sam- fylkingarinnar og kæruleysis í umhverfismálum eiga Vinstri grænir sér líf utan hennar. Ég hef aldrei verið svo heillum horf- inn að kjósa Framsókn en kaus Sjálfstæðisflokkinn í borgar- stjórn, vegna gagnkvæmra lof- orða. Björn Bjarnason hét að rétta hlut ferðaþjónustu fatlaðra og annað í þeim dúr. Nokkuð sem R-listinn hafði látið drabbast nið- ur, auk þess að mergsjúga fatlað fólk með þjónustugjöldum. Ef fylkingin og Vinstri viðhalda R-listanum neyðast margir til að skila auðu. ■ 27FÖSTUDAGUR 29. apríl 2005 Endurgreiðsl- ur Trygginga- stofnunar Hvaða þjónusta á rétt á að fá endurgreiðslu frá Tryggingja- stofnun? Eiga gigtar-, lömunar- og hreyfihamlaðir sjúklingar rétt á að fá stuðning frá Trygg- ingastofnun fyrir fótaaðgerð? Hér á landi sem og víða annars staðar flokkast fótaaðgerð undir heilbrigðisþjónustu. Vil ég leggja fyrir- spurn til félagasam- taka þessara hópa og ann- arra hópa sem eru í svipaðri að- s t ö ð u . H v e r n i g stendur á því að þessi þjónusta er ekki niður- greidd líkt og sjúkra- þjálfun að undangeng- inni skoðun og eftir mati lækna? Hafa þessi félagasamtök ekki reynt að leita eftir því? Hefur þeim verið hafnað af Tryggingastofnun? Margir einstaklingar sem eru fatlaðir og þjást af gigtarsjúk- dómum, sykursýki, psoriasis o.fl. þurfa nauðsynlega á þessari þjónustu að halda og geta ekki án hennar verið. Vekur það undrun mína að stuðningur gegnum Tryggingastofnun sé ekki fyrir löngu komin á eins og gerist í ná- grannalöndum okkar samkvæmt mati læknis hverju sinni. Ýmsir húðsjúkdómar mynda ákveðin húðútbrot á fótum þar sem fóta- aðgerð er besti kosturinn, ásamt hjálp með sýrukremi sem er ávísað á fólk. Liðagigtasjúkdómar þar sem álagssvæði fótsins fer úr skorð- um leiða oft til sársaukafullrar myndunar á siggi sem þarf að fjarlægja reglulega. Stuðningsmeðferðir með síli- koni á tær fyrir fólk sem m.a. lamast af ýmsum orsökum. Það er meðferð sem mikilvægt er að framkvæma strax þegar varan- leg lömun hefur átt sér stað, áður en sinarnar byrja að styttast og tærnar byrja að kreppast. Aðgerðir sem hafa verið gerð- ar á tábeinum mistakast því mið- ur mjög oft og fólk verður að leita til okkar eftir þær aðgerðir þar sem líkþornamyndun m.a. hefur aukist og þörf er fyrir stuðning með sílikoni. Margir sjúkraþjálfarar eru meðvitaðir um hvað sílikon getur hjálpað og senda fólk til okkar í meðferð. Niðurgrónar neglur eru mikið vandamál sem hægt er að laga með spangarmeðferð, samanber réttingu á tönnum, og óþarft að gera dýrar aðgerðir fram- kvæmdar af læknum í mörgum tilvikum. Sú þjónusta sem hér býðst sjúklingum getur aukið vellíðan þeirra sem og sparað al- mannafé í formi vinnutaps og kostnaðar á vegum sjúkrastofn- anna. ■ ALBERT JENSEN UMRÆÐAN SAMFYLKINGIN EYGLÓ ÞORGEIRS- DÓTTIR Fótaaðgerða- fræðingur og sjúkra- nuddari.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.