Fréttablaðið - 29.04.2005, Qupperneq 49
FÖSTUDAGUR 29. apríl 2005
■ FÓLK
■ TÖLVULEIKIR
Connery í tölvuleik
Leikarinn Sir Sean Connery ljáir
James Bond rödd sína í nýjum
tölvuleik, From Russia with Love,
sem er byggður á samnefndri
kvikmynd frá árinu 1963 með
Connery í aðalhlutverki. Þetta er í
fyrsta sinn sem þessi virti leikari
kemur fram í tölvuleik.
Leikurinn verður gefinn út í
haust fyrir PlayStation 2, Xbox og
Nintendo GameCube. Mun hann
byggja á hinni sígildu Bond-mynd
en þó mun hann taka einhverjar
nýjar stefnur.
„Fyrir leikara er þetta ný og
spennandi leið til að fá útrás fyrir
sköpunargleðina,“ sagði Connery.
„Leikir eru gríðarlega vinsælt af-
þreyingarefni og ég er mjög
ánægður með að fá tækifæri til að
taka þátt í þessu verkefni.“ ■
Það þóttu óneitanlega mikil tíð-
indi þegar sögur bárust af því að
David Beckham, fyrirliði enska
landsliðsins og leikmaður Real
Madrid, hefði haldið framhjá
konu sinni Victoriu Beckham með
barnfóstrunni Rebeccu Loos.
Hafði hjónabandið þangað til ver-
ið álitið eitt það traustasta meðal
fræga fólksins og engum duldist
að þar var sönn ást. Lægðust öld-
urnar töluvert og Rebecca Loos
hvarf af sjónarsviðinu. Adam var
þó ekki lengi í paradís því slúður-
blöðin héldu áfram að grafa ofan í
kvennamál fyrirliðans og birtu
fljótlega fréttir af því að Beck-
ham ætti í tygjum við aðra unga
snót, Söruh Marbeck.
Ekki bætir úr skák að nýja
fóstran, Abbie Gibson, hefur nú
tjáð fjölmiðlum að hjónabandið
hangi á bláþræði. Þessi ummæli
hennar hafa orðið til þess að
Beckham lýsti því yfir í viðtali að
frásögn Gibson væri lygi. „Þetta
er ótrúlegt, alveg ótrúlegt,“ lét
Beckham hafa eftir sér. „Þú býður
einhverjum inn á heimili til þín til
þess að líta eftir börnunum og það
eina sem þú getur gert er að
treysta manneskjunni,“ sagði
hann vonsvikinn og bætti því við
að hann og Victoria væru í mjög
eðlilegu hjónabandi þar sem upp
kæmu ósættir en þá væru vanda-
málin leyst, rétt eins og í öðrum
hjónaböndum.
Í viðtalinu sagðist Beckham
enn fremur vera alinn upp við að
koma fram við konur af virðingu
og vera góður við þær. „Ef ég
gerði eitthvað rangt myndi
mamma hringja í mig og hund-
skamma mig,“ sagði hann. Beck-
ham-hjónin reyndu að fá lögbann
á birtingu frásagnar Gibson í
blaðinu News of the World en því
var hafnað. Dómarinn sagði frá-
sögnina vera í þágu almennings.
Beckham er hamingju-
samlega giftur
DAVID OG
VICTORIA
JAMES BOND Leikarinn vinsæli ljáir
James Bond rödd sína í nýjum tölvuleik.