Fréttablaðið - 29.04.2005, Qupperneq 53
Benedikt Lafleur, rithöfundur,
listmálari og bókaútgefandi með
meiru, situr ekki auðum höndum
frekar en fyrri daginn. Um þessar
mundir eru að koma út sex nýjar
bækur frá Lafleur útgáfunni. Von
er á þremur í viðbót á næstu vik-
um og síðan bætist eitthvað á ann-
an tug við síðar á árinu.
„Ég er að blása til stórsóknar í
bókaútgáfunni núna í ár,“ segir
Benedikt, sem auk bókaútgáfunn-
ar hefur um langt skeið staðið fyr-
ir svonefndum Skáldaspírukvöld-
um, þar sem þekkt jafnt sem
óþekkt skáld lesa úr verkum sín-
um. Skáldaspírukvöldin eru hald-
in annan hvern þriðjudag á Kaffi
Reykjavík.
„Maður uppgötvar sífellt fleiri
efnilega höfunda í kringum
Skáldaspírukvöldin. Oft leynast
perlur í skúffum höfunda sem
ekki hafa fengið neitt gefið út.“
Bækurnar sex sem voru að
koma út eru Orð milli vina, úrval
ljóða eftir Gunnar Dal sem ber
sama nafn og ein ljóðabóka Gunn-
ars, Örfok, skáldsaga eftir Eyvind
P. Eiríksson, Ugla sat á kvisti,
smásagnasafn eftir Þorstein Ant-
onsson, Rökrétt framhaldslíf,
ljóðabók eftir Kristján Hreinsson,
og Með mér er Regn, ljóðabók eft-
ir Hörð Gunnarsson, að ógleymdri
bókinni Sólris í hringhendingum,
sem er spunasafn smásagna, ljóða
og hugleiðinga eftir Benedikt
sjálfan.
Þá stefnir Benedikt á að gefa
út þrjár bækur erlendis á árinu;
tvær í Frakklandi og eina í Þýska-
landi.
Fyrir utan bókaútgáfuna er
Benedikt þessa dagana að opna
litla myndlistarsýningu í Borgar-
bókasafni Reykjavíkur, aðalsafn-
inu í Tryggvagötu. ■
FÖSTUDAGUR 29. apríl 2005
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
26 27 28 29 30 1 2
Föstudagur
APRÍL
Tenórinn Tangókvöld
ALLRA SÍÐASTA
SÝNING
Laugardaginn
7. maí kl. 20.00
Þriðjudaginn
3. maí kl. 20.00
Sjá sýningar í dálk Borgarleikhússins
KRINGLUKRÁIN UM HELGINA
• Fjölbreyttur sérréttamatseðill
öll kvöld vikunnar
• Tilboðsmatseðill
fyrir Leikhúsgesti
• Hópamatseðill
• Sérsalur fyrir hópa
Borðapantanir í síma 568-0878 www.kringlukrain.is
HLJÓMSVEITIN
KARMA
í kvöld.
■ ■ TÓNLEIKAR
17.00 Hljómsveitin Benny Crespo’s
Gang sprellar í Smekkleysu Plötu-
búð, Laugavegi 59.
23.00 Á Grand Rokk verða tónleik-
ar með The Fucking Champs ásamt
Changer og Dáðadrengjunum.
■ ■ SKEMMTANIR
22.00 Trúbbarnir Böddi og Danni
leika af fingrum fram í Hressingar-
skálanum.
Hljómsveit Stefáns P. leikur fyrir
dansi í Ránni, Keflavík.
Hljómsveitin Bermuda verður í stuði
í Sjallanum á Ísafirði.
Atli skemmtanalögga og Áki Pain
verða í búrunum á Pravda.
Einar Örn trúbador verður á litla
sviði Gauksins á neðri hæð og DJ
Maggi með syngjandi sveiflu á efri
hæð.
■ ■ SÝNINGAR
16.00 Ævintýradansleikhús barna
heldur upp á vorið með sýningu í
Ketilhúsinu á Akureyri á alþjóðlegum
degi dansins. Fram koma fjöllista- og
spunahópur, balletthópar, og dans-
hópur kvenna.
18.00 Ævintýradansleikhús barna
heldur upp á vorið með sýningu í
Ketilhúsinu á Akureyri á alþjóðlegum
degi dansins. Fram koma fjöllista- og
spunahópur, balletthópar, og dans-
hópur kvenna.
■ ■ ÓPERA
20.00 Þáttakendur í Óperustúdíói
Íslensku óperunnar og Listaháskóla
Íslands frumsýna óperuna Apótekar-
ann eftir Haydn í Íslensku óperunni.
Hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecky og
leikstjóri Ingólfur Níels Árnason.
hvar@frettabladid.is
Blæs til stórsóknar
BENEDIKT LAFLEUR Sendir frá sér níu
bækur í vor og annað eins síðar á árinu.