Fréttablaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 62
50 29. apríl 2005 FÖSTUDAGUR Sendiherrum er uppálagt að veraekki með puttana í pólitík en nú hafa tveir slíkir blandað sér í for- mannsslaginn í Samfylkingunni. Sig- hvatur Björg- vinsson reið á vaðið og lýsti yfir stuðningi við Össur Skarp- héðinsson á heimasíðu þess síðarnefnda. Þetta ýtti við Jóni Baldvin Hanni- balssyni sem svarar Sighvati á heimasíðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. „Þar með þykir það ekki tiltökumál, þótt sendiherra fjalli opinberlega um formannskjör í flokki sínum – ef þeir styðja Össur. Þá hlýtur það að gilda jafnt um aðra formannsframbjóðendur. Jafnræðis- reglan blífur, ekki satt?“, spyr Jón Baldvin og hafnar varnaðarorðum Sighvats um að formannskjörið kunni að skaða flokkinn og nefn- ir meðal annars sjálfan sig sem dæmi um hið gagnstæða. „1984 bauð ég mig fram gegn sitjandi formanni og lagði valið í dóm trúnaðarmanna flokksins á flokksþingi. Ég hafði bet- ur og sat sem formaður í tólf ár. Ég leiddi flokkinn inn í ríkisstjórn og til áhrifa á landstjórnina á umbrotatím- um.“ Jón Baldvin segir að framboð sitthafi síður en svo skaðað flokkinn vegna þess að þeir sem tókust á „höfðu manndóm til að slíðra sverð- in og að starfa saman, eftir að flokksmenn höfðu kveðið upp sinn dóm“. Jón segir forvera sinn, Kjart- an Jóhannsson, hafa starfað með sér af fullum heilindum og sama megi segja um Sighvat. „Hann var andstæðingur minn í formannskjör- inu, en varð síðar einn af mínum nánustu og bestu samstarfsmönn- um.“ Eina spurningin sem Ingibjörg Sólrún og Össur þurfa því að svara, að mati Jóns Baldvins, er hvort þau hafi „manndóm til að hlíta dómi kjósenda án eftirmála og að starfa saman af fullum heilindum fyrir málefnunum sjálfum, eins og ekkert hafi í skorist“. Lárétt: 1 máttur, 5 stafur, 6 tvíhljóði, 7 tónn, 8 beygju, 9 vindleysa, 10 gangþófi, 12 flana, 13 óþrif, 15 til, 16 heljarmenni, 18 skrökvar. Lóðrétt: 1 góðsemi, 2 fæða, 3 tveir eins, 4 kraftur, 6 skynfæra, 8 slönguteg- und, 11 þreytu, 14 á himni, 17 keyr. Lausn. 1 5 6 87 9 12 15 10 13 16 17 11 14 18 2 3 4 Sönkonan Hafdís Huld Þrastar- dóttir, sem var áður í hljóm- sveitinni Gusgus, syngur lag sem hljómar í glæpamyndinni Layer Cake, sem er gerð af þeim sömu og framleiddu hinar vin- sælu Snatch og Lock, Stock and Two Smoking Barrels. Lagið nefnist Hayling og er samið af Hafdísi og félögum í hljómsveitinni FC/Kahuna. Hayling, sem er hugljúft popp- lag með danstónlistaráhrifum, er fyrsta lag nýútkominnar plötu sem hefur að geyma lög úr myndinni. Þar eru einnig lög eftir listamenn á borð við Kylie Minogue, Joe Cocker, Duran Duran, Starsailor og The Cult. Leikstjóri Layer Cake er Matthew Vaughn sem lék á sín- um tíma í Lock Stock and Two Smoking Barrels. Vaughn virð- ist vera upprennandi leikstjóri í Hollywood því að hann hefur þegar tekið að sér að leikstýra framhaldsmyndinni X-Men 3 en tvær fyrstu myndirnar í serí- unni hafa notið gífurlegra vin- sælda. Layer Cake hefur fengið mjög góða dóma, þar á meðal á kvikmyndasíðunum imdb.com og rottentomatoes.com, og því virðist Hafdís Huld og hljóm- sveit hennar hafa dotttið í lukkupottinn með því að eiga þar lag. Myndin verður frum- sýnd hérlendis seint í sumar og þá geta íslenskir kvikmynda- húsagestir fengið að hlýða á óm- þýða rödd Hafdísar mitt í öllum hasarnum. ■ Hafdís syngur í glæpamynd HAFDÍS HULD Söngkonan knáa syngur lagið Hayling í kvikmyndinni Layer Cake. [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á bls. 8 1 3 2 Reva. Sumar á Sýrlandi með Stuð- mönnum og Bubbaplöturnar Ísbjarnarblús og Kona. Magnús Kristinsson. „Við foreldrar erum aldrei stikkfrí frá því að útskýra og leiðbeina börnunum okkar,“ segir Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur en heitar umræður hafa sprottið upp vegna þáttarins Strákarnir sem sýndur er á Stöð 2 klukkan átta, fjögur kvöld í viku. Hafa foreldra- félög og umboðsmaður barna farið þess á leit að þættinum verði seink- að eða efni hans endurskoðað. Þórkatla segir að foreldrar eigi að gæta þess að láta börnin ekki horfa á hvað sem er alein. „For- eldrar eiga að horfa á sjónvarpið með börnunum og láta þau vita af skoðunum sínum, hvað þeim finnst fyndið og hvað ekki, hvað er í lagi og hvað ekki.“ Hún segir enn frem- ur að ekki sé eingöngu hægt að draga Strákana til ábyrgðar því það eru ekki fyrirmyndirnar sem hafa lokaorðið. „Það eru foreldr- arnir sem eru aðalleiðbeinendurnir og þeir þurfa að koma með mót- vægi gagnvart því sem börnin sjá á skjánum,“ segir hún. „Foreldrar finna stundum til vanmáttar gagn- vart fyrirmyndunum og halda að þau hafi ekkert yfir þeim að segja. Það er ekki rétt, foreldrar hafa lokaorðið,“ segir hún og telur jafn- framt að í stað þess að eyða öllu púðri í að kvarta yfir efninu eigi foreldrar að nota kraftinn til þess að útskýra fyrir börnunum hvað það er sem þau sjá á skjánum. Enn fremur segir Þórkatla að það sé ekki í hlutverki Strákanna eða Stöðvar 2 að slökkva á sjón- varpinu fyrir foreldra. „Þó að mér finnist sjálfri efnið ekki vera við hæfi barna yngri en tólf ára þá er það hlutverk foreldranna að slökkva á sjónvarpinu ef þau telja efnið ekki við hæfi barna sinna.“ Strákarnir sjálfir vildu ekki tjá sig um málið en þeir hafa að undan- förnu gert hálfpartinn grín að öllu þessu fári í þáttunum sínum. freyrgigja@frettabladid.is FRÉTTIR AF FÓLKI ...fær Bubbi Morthens fyrir að gefa út tvær nýjar plötur í sumar og endurútgefa tvær aðrar. HRÓSIÐ Nú er sumarið framundan sem þýðir mik- ið djamm og partístand fyrir marga Ís- lendinga. Þegar þessi tími hefst eru allir staðráðnir í að njóta frídaganna til hins ýtrasta og skemmta sér vel. Það slæma við sumardjammið er hins vegar það að við erum of mörg sem ætlum að koma okkur fyrir inni á skemmtistöðum borgar- innar. Því miður verður það iðulega til þess að staðirnir verða of fullir og maður getur ómögulega fylgst með gangi mála, það verður ansi erfitt að dansa eðlilega og kvöldið fer að stórum hluta í að troð- ast og sjá til þess að verða ekki undir fjöldanum. Maður er nú samt fljótur að sætta sig við það þegar komið er inn, því það erfiðasta er klárlega að komast inn á staðinn. Hver þekkir ekki að standa í röð og þurfa að berjast með kjafti og klóm til að komast inn úr rigningunni og rokinu, því þannig er nú víst íslenska sumarið. Biðraðahangs gæti jafnvel kallast menn- ing á þessu landi því það er röð fyrir utan alla staði allar helgar. Mikill tími fer í að reyna að komast inn og ef maður reynir ekki að gera sem best úr því og skemmta sér líka í röðinni verður þolinmæðin fljót- lega að engu og rúmið næsta stopp. Þess vegna er um að gera að láta sér lynda traðk á spariskónum, brennandi sígarettur í andlitinu og eins og fimm manneskjur liggjandi á bakinu á sér. En við erum greinilega víkingar að uppruna og látum slag standa hverja einustu helgi. Þar sem við teljum okkur vera einstaklega vel gefin má undra sig á því að enginn hafi komið með lausn á þessu vandamáli til að létta okkur lífið. Það verður líka að líta á björtu hliðarnar og skoða það góða sem hefur komið út úr biðröðum. Fólki virðist takast vel að kynnast þar því það stendur svo nálægt hvert öðru að því tekst að mæla út hvernig viðkomandi hentar í maka. Þá er bara að máta hann við sig og sjá hvort ilmvatnið sé rétt. Margir hafa einmitt eignast góða vini í röðum en reyndar einnig óvini. Svona við nánari skoðun er þetta senni- legast ágætis leið til að kynnast fólki og skemmta sér úti í rigningunni. Nú svo er það bara að brosa blítt til dyravarðarins og blikka hann svo á leiðinni inn í von um að þurfa ekki að bíða eins lengi næstu helgi. Sjáumst í röðinni! REYKJAVÍKURNÆTUR HARPA PÉTURSDÓTTIR SKRIFAR UM BIÐRAÐAHANGS Gleðilega biðröð! Lárétt: 1vald,5ell,6au,7la,8bug,9 logn,10il,12ana,13lús,15að,16jaka, 18ýkir. Lóðrétt: 1velvilji,2ala,3ll,4dugnaður, 6augna,8boa,11lúa,14ský,17ak. Þórkatla Aðalsteinsdóttir Segir foreldra aldrei vera stikkfrí frá því að útskýra og leiðbeina börnum sínum. ÞÓRKATLA AÐALSTEINSDÓTTIR: STRÁKARNIR EKKI ALVALDIR Foreldrar hafa lokaorðið – hefur þú séð DV í dag? Hrottalegasti handrukkari Íslands fékk makleg málagjöld í Hæstarétti í gær BRAVÓ! BÖÐULLINN BAK VIÐ LÁS OG SLÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.