Fréttablaðið - 19.05.2005, Page 61
29FIMMTUDAGUR 19. maí 2005
Gildir á meðan birgðir endast.
NÝJAR LYFJAPRÓFANIR Íslensk erfða-
greining hefur hafið prófanir á astmalyfi.
Fyrir eru í prófunum lyf við æðakölkun og
hjartaáfalli.
Íslensk erfðagreining:
Prófar n‡tt
astmalyf
Eftir nokkurt hlé streyma fréttir
frá deCode. Í gær tilkynnti félag-
ið um að hafnar væru lyfjaprófan-
ir á nýju astmalyfi og að fyrsti
sjúklingurinn hefði þegar hafið
töku lyfsins.
Lyfið hefur áhrif á starfsemi
ensíms sem rannsóknir Íslenskr-
ar erfðagreiningar hafa sýnt fram
á að tengist líffræðilegum orsök-
um astma. Lyfið var upprunalega
þróað af öðru fyrirtæki við öðrum
sjúkdómi.
Um 160 íslenskir astmasjúk-
lingar með áhættuarfgerð taka
þátt í lyfjaprófununum og er
markmið rannsóknarinnar að
kanna hvort lyfið sé öruggt og
sjúklingar þoli það vel.
Kári Stefánsson, forstjóri
deCode, segir í tilkynningu fyrir-
tækið vera farið að sjá ávöxt
erfðarannsókna í þróun á nýjum
lyfjum gegn alvarlegustu heil-
brigðisvandamálum samtímans.
„Á innan við einu ári höfum við
hafið klínískar lyfjaprófanir í
þremur mikilvægum sjúkdómum:
hjartaáfalli, æðakölkun og nú
astma,“ segir Kári. - hh
Kögun fékk
ekki gögnin
Gunnlaugur Sigmundsson, for-
stjóri Kögunar, undrast að félagið
hafi ekki fengið gögn vegna
einkavæðingar Símans.
Hann segir
einkavæðingar-
nefnd hafa
hafnað ósk um
gögn á þeim for-
sendum að dótt-
urfélag Kögun-
ar sé í sam-
keppni við Sím-
ann en Skýrr,
sem Kögun á,
býður upp á
gagnaflutningsþjónustu en hefur
mjög litla markaðshluldeild.
Tekið var fram í skilyrðum um
söluna að fyrirtæki sem væri í
samkeppni við Símann fengi ekki
að bjóða í hlut ríkisins ef velta
samkeppnisrekstrarins væri
meira en hundrað milljónir á ári.
Gunnlaugur segir erfitt að úr-
skurða um það í fjarskiptamálum
hvaða fyrirtæki séu í samkeppni
við önnur. Til dæmis geti erlend
fyrirtæki staðið fyrir netsíma-
þjónustu sem Íslendingar nýti sér
en ekki sé víst að það yrði til þess
að útiloka þau frá þátttöku. - þk
Novator b‡›ur í finnskt símafélag Aflaver›mæti
minnkar
Afli íslenskra skipa í apríl var 112
þúsund tonn en var 81 þúsund
tonn í apríl 2004, samkvæmt vef
Hagstofu Íslands. Þetta er aukn-
ing um 37,8 prósent. Aflaverð-
mætið dróst hins vegar saman um
2,8 prósent á föstu verði, sé miðað
við aflaverðmætið í apríl í fyrra.
Þetta skýrist af mun meiri
kolmunnaafla til bræðslu og
minni þorskafla í apríl í ár saman-
borið við í fyrra. Verðmæti fisk-
aflans það sem af er ári hefur þó
aukist um 2,5 prósent sé miðað við
árið 2004.
Fiskveiðiárið á Íslandi hefst
fyrsta september ár hvert.
- jsk
GUNNLAUGUR
SIGMUNDSSON
Björgólfur brýtur sér
leið inn á finnska síma-
markaðinn.
Dótturfélag Novator Inter-
national, sem er að meirihluta í
eigu Björgólfs Thors Björgólfs-
sonar, hefur gert yfirtökutilboð í
finnska símafélagið Saunalahti,
sem er skráð í finnsku kauphöll-
inni. Novator býður 1,9 evrur í
hvern hlut i Saunalahti, sem er 15
prósent yfirverð miðað við loka-
verð á þriðjudaginn. Hækkaði
gengi félagsins upp í 1,94 evrur.
Novator á nú um 27 prósenta hlut
í félaginu eftir að hafa fest kaup á
22,6 prósentum í gær.
Novator álítur að Saunalahti búi
yfir mikilli þekkingu á sviði tækni-
og markaðsmála á farsímamark-
aði. Viðskiptavinir félagsins eru
um 500.000 talsins og hefur það náð
sterkri samkeppnisstöðu á einum
kraftmesta símamarkaði heimsins.
Gangi kaupin upp ætlar Novator að
færa starfsemi Saunalahti út fyrir
Finnland. Fjárhagslegur styrkur
finnska félagsins eykst talsvert við
kaupin. Velta Saunalahti var um
þrettán milljarðar á síðasta ári og
voru starfsmenn 260 að tölu.
Novator er kjölfestufjárfestir í
nokkrum evrópskum símafélög-
um. Þar má nefna BTC í Búlgaríu,
CRa í Tékklandi og Netia Mobile í
Póllandi. - eþa
BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON Novator ætlar sér að yfirtaka Saunalahti sem er
finnskt símafélag. Saunalahti stendur framarlega í farsímatækni og er með sterka mark-
aðsstöðu í Finnlandi.
28-61 (28-29) Viðskipti 18.5.2005 16.50 Page 3