Fréttablaðið - 25.05.2005, Page 25
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
B
I2
83
03
0
5/
20
05
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
B
I2
83
03
0
5/
20
05 7,6%*
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra fjárfesta.
Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans.
* Nafnávöxtun frá 01.04.2005–30.04.2005 á ársgrundvelli.
Peningabréf Landsbankans
410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna
Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Athygli fjárfesta er vakin á því að fjárfestingar-
sjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari upplýsingar um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á verð-
bréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir sjóðsins, vísast til útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu sem nálgast má í
afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk upplýsinga á heimasíðu bankans www.li.is
Fjölmiðlanotkun:
Ný tækni
mælir áhorf
Fasteignamarkaðurinn
Stefnir í jafnvægi
Breskir vísindamenn:
Rauður er
vinningslitur
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 25. maí 2005 – 8. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Keypt í Bandaríkjunum | Actav-
is steig stórt skref inn á Banda-
ríkjamarkað með kaupum á
bandaríska samheitalyfjafyrir-
tækinu Amide. Kaupverðið var 33
milljarðar króna. Hagnaður
Amide var fyrir skatta í fyrra um
3,4 milljarðar króna.
Forstjóraskipti hjá Heklu |
Knútur G. Hauksson hættir sem
forstjóri Samskipa og tekur við
forstjórastarfi hjá bílafyrirtæk-
inu Heklu. Tryggvi Jónsson, for-
stjóri Heklu, verður starfandi
stjórnarformaður fyrirtækisins.
Mosaic seldist upp | Fagfjár-
festar vildu fjórfalt meira af hluta-
bréfum í bresku tískukeðjunni
Mosaic en í boði var. Hlutafé seld-
ist fyrir 3,7 milljarða á genginu
13,6. Almennt útboð verður 6. til
10. júní og verða þá bréf fyrir 1,2
milljarða í boði. Í framhaldinu
verður félagið skráð í Kauphöll.
Símakaup í Finnlandi |
Björgólfur Thor Björgólfsson er á
góðri leið með að yfirtaka finnska
símafélagið Saunalathi. Félag í
eigu Björgólfs stefnir að kaupum
á 90 prósenta hlut í félaginu og
skrá það af markaði. Kaupin hafa
vakið mikla athygli í Finnlandi, en
samkeppni er hörð á finnska síma-
markaðnum.
Fjórtán tilboð | Fjórtán tilboð
bárust í Símann frá 37 aðilum.
Einkavæðingarnefnd fer yfir til-
boðin og birtir síðan nöfn tilboðs-
gjafanna. Trúnaðarákvæði hindr-
ar tilboðsgjafa í því að gefa sig
upp, en listi verður birtur að lok-
inni yfirferð einkavæðingar-
nefndar.
Þotur til Kína | FL Group hefur
leigt fimm þotur til Kína. Félagið
tryggði sér kaup og fjármögnun á
737-800 vélum frá Boeing með það
að markmiði að leigja vélarnar
áfram. Alls tryggði félagið sér
fimmtán vélar, en þessar fimm
fara til Kína á fyrri hluta næsta
árs.
Eignarhaldsfélagið
Brunabótafélag Íslands:
Greiðir ágóða
til sveitarfélaga
Stjórn Eignarhaldsfélagsins
Brunabótafélag Íslands (EBÍ)
hefur ákveðið að greiða 450 millj-
ónir króna í ágóðahlut til þeirra
27 sveitarfélaga sem eiga aðild
að Sameignarsjóði EBÍ.
Upphæðin er í réttu hlutfalli
við eignaraðild sveitarfélaganna.
Stjórn og fulltrúaráð EBÍ mælast
til þess að sveitarfélögin noti
framlögin meðal annars til for-
varna og brunavarna.
Hæsta greiðslan rennur til
Akureyrar eða um 50 milljónir
króna. Kópavogsbær fær næst-
hæstu greiðsluna, tæpar 39 millj-
ónir króna.
Frá árinu 1998 hefur EBÍ
greitt aðildarsveitarfélögunum
um 830 milljónir króna í ágóða-
hlut en framlagið hefur verið um
100-150 milljónir króna á ári. - eþa
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Upplýst verður í dag hverjir sendu inn óbindandi til-
boð í Símann og hverjir af þeim uppfylli skilyrði
nefndarinnar til að halda áfram í söluferlinu. Jón
Sveinsson, formaður einkavæðingarnefndar, vildi
ekki upplýsa hvort einhverjum yrði meinuð áfram-
haldandi þátttaka.
Einkavæðingarnefnd var í London í síðustu og
fór yfir tilboðin sem bárust 17. maí síðastlinn með
starfsmönnum Morgan Stanley. Hefur meðal annars
verið kallað eftir útskýringum á eignatengslum
bjóðenda. „Það er einn af þáttunum sem við höfum
þurft að fara mjög vandlega í gegnum,“ segir Jón.
Fjárfestar sem ekki uppfylla reglur um eigna-
tengsl hafa gefið yfirlýsingar um að þeir ætli að
breyta þessum tengslum, segir Jón. Annað hafi
verið skoðað sérstaklega og menn brugðist við þess-
um skilyrðum eða komið með frekari skýringar.
Forsvarsmenn Kögunar fengu þær skýringar að
þeir uppfylltu ekki skilyrði einkavæðingarnefndar
um eignatengsl þar sem dótturfélag þess, Skýrr,
væri í samkeppni við Símann. Ætluðu þeir að óska
eftir útboðsgögnum til að skila inn óbindandi til-
boði.
Jón Sveinsson segist ekki telja að það feli í sér
mismunun að aðrir bjóðendur hafi tækifæri til að
sníða eignatengsl sín að skilyrðum nefndarinnar
eftir að óbindandi tilboðum var skilað inn. Stjórn-
endur Kögunar hefðu verið upplýstir um hverjar
reglurnar væru og þeir hefðu tekið sína ákvörðun.
Samstarfsaðilar Kögunar hefðu væntanlega getað
fengið útboðsgögn afhent og fengið Kögun til liðs
við sig síðar ef þeir þá uppfylltu skilyrðin. Af því
hefði ekki orðið.
Bæði KB banki og Straumur fjárfestingabanki
eiga rúm fimmtán prósent í Kögun og eru tveir
stærstu hluthafarnir. Bankarnir eiga því óbeint
meira en fimm prósent í samkeppnisfyrirtæki Sím-
ans. Ekki fékkst uppgefið í gær hvort þetta yrði til
þess að útiloka þá frá frekari þátttöku í söluferli
Símans.
F R É T T I R V I K U N N A R
10 12-13 8
Á næsta stjórnarfundi Samskipa
verður tekin ákvörðun um að
auka hlutafé félagsins um allt að
fjóra milljarða króna til að fylgja
eftir útrás þess. Boðað verður til
hluthafafundar í kjölfar stjórnar-
fundar. Eigið fé Samskipa var um
2,7 milljarðar samkvæmt síðasta
ársuppgjöri. Ólafur Ólafsson,
stjórnarformaður Samskipa og
stærsti hluthafi Kers, sem er leið-
andi hluthafi í Samskipum, segir
að félagið hafi alltaf stefnt að því
að halda um 40 prósenta eiginfjár-
hlutfalli.
„Við munum ekki skrá félagið á
markað á næsta ári,“ segir Ólafur
aðspurður um hvort fyrirtækið
verði sett á hlutabréfamarkað. „Það
skiptir máli við svona breytingar að
hafa frið en við erum í miklu um-
breytingarferli.“ Velta Samskipa er
áætluð um 45 milljarðar króna á
þessu ári en var 23 milljarðar á
liðnu ári. Félagið rekur 49 skrifstof-
ur í 21 landi og starfsmenn þess eru
1.300 talsins. - eþa
Ingvi Hrafn
fékk Langá
Ingvi Hrafn Jónsson hefur samið
við veiðifélag Langár um áfram-
haldandi leigu á ánni til ársins
2008. Einar Ole Pedersen, for-
maður veiðifélagsins, segir að
leiguverðið hafi hækkað um þrjá-
tíu prósent. Ingvi Hrafn borgi í
kringum fjörutíu milljónir króna
árlega.
Á vef Stangaveiðifélags
Reykjavíkur segir að Langá sé í
sérflokki hvað varði þéttleika
seiða í ár. „Áin er það setin að
Veiðimálastofnun telur enga þörf
á því að veiða og sleppa,“ segir
Einar. Seiðamælingar hafi komið
mjög vel út. – bg
Einkavæðingarnefnd
skoðar eignatengsl
KB banki og Straumur eiga meira en fimm prósent í sam-
keppnisfyrirtæki Símans. Upplýst um bjóðendur í Símann í dag.
Samskip auka hlutafé um fjóra milljarða
Stefna ekki á skráningu á markað á þessu ári.
S A M K E P P N I V I Ð S Í M A N N
Væntanlegir kjölfestufjárfestar mega ekki, samkvæmt skilyrð-
um einkavæðingarnefndar, eiga beint eða óbeint fimm prósent
í fyrirtæki sem er í samkeppni við Símann og hefur fimm
prósenta markaðshlutdeild.
EINKAVÆÐINGARNEFND OG RÁÐGJAFAR MORGAN
STANLEY Fulltrúar einkavæðingarnefndar hafa síðustu vikuna verið
í London til að yfirfara óbindandi tilboð sem bárust í Símann. Í dag
verður tilkynnt hverjir skiluðu inn tilboðum.
H Æ S T U F R A M L Ö G E B Í
T I L S V E I T A R F É L A G -
A N N A Á R I Ð 2 0 0 5
Sveitarfélag Upphæð í milljónum
1. Akureyri 50
2. Kópavogur 39
3. Reykjanesbær 32
4. Ísafjörður 21
5. Vestmannaeyjar 18
6. Fjarðabyggð 16