Fréttablaðið - 25.05.2005, Page 33
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2005 9
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
göngu-
sumarsins
garpa
Fyrir
Meindl Colorado Lady
Flokkun B
Nubuk leður
Gore Tex vatnsvörn
Vibram Multigriff sóli
Þyngd 750 g (stærð 42)
Einnig til í herraútfærslu
Tilboð 14.990 kr.
Verð áður 17.990 kr.
Lowa Renegade GTX
Bestu kaupin í útbúnaðar-
prófun Útiveru 2005
Flokkun AB
Klassískir fjölnota skór
Gore Tex vatnsvörn
Nubuk leður
Verð 13.990 kr.
BC: Fyrir erfiðari göngur og fjallabrölt • C: Fyrir alpagöngur, kletta, ís og brodda
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Bill Gates, stjórnarformaður
tölvurisans Microsoft, sagði á
dögunum að fyrirtæki þyrftu að
gera meira til að hjálpa starfs-
mönnum sínum að takast á við sí-
fellt aukið flæði upplýsinga. Ef
ekkert yrði að gert gæti þetta
komið niður á framleiðni.
Gates sagði vef upplýsinga
orðin svo flókinn að menn vissu
ekki sitt rjúkandi ráð. „Menn fá
ekki greitt fyrir að leita upplýs-
inga eða vafra um á netinu, held-
ur fyrir að hanna nýja vöru á sem
skemmstum tíma með sem
minnstum tilkostnaði.“
Hann bætti svo við að væntan-
leg útgáfa Office-pakkans svo-
kallaða, sem meðal annars inni-
heldur ritvinnsluforritið Word,
ætti að gera mönnum kleift að
skilja hismið frá kjarnanum og
einbeita sér að því sem raunveru-
legu máli skipti: „Nýi búnaðurinn
mun gera fyrirtæki mun sam-
keppnishæfari, þetta verður
alveg nýr heimur“, sagði Gates.
- jsk
Gates hræðist
upplýsingaflæðið
Smásala á netinu eykst
Smásala á netinu í
B a n d a r í k j u n u m
jókst um 23 prósent
á fyrsta ársfjórð-
ungi sé miðað við
árið á undan, er
komin í 1.235 millj-
arða. Netsérfræð-
ingurinn David
Garrity segir
greinilegt að neytendur verði sí-
fellt vanari því að nota netið:
„Fólk virðist ekki hafa
neinar áhyggjur af því
að kaupa í gegnum
netið lengur“.
Netsala er 2,2 pró-
sent allrar smásölu í
Bandaríkjunum og
hefur hlutfallið aukist
hratt og örugglega
undanfarin ár. Búist
er við því að framhald verði á
þeirri þróun. - jsk
Á NETINU Smásala á netinu
eykst jafnt og þétt í Bandaríkjun-
um.
BILL GATES Segir starfsmenn fyrirtækja
vera að drukkna í upplýsingum og ef ekkert
verði að gert muni það koma niður á fram-
leiðni.
Svo virðist sem söngurinn um að
fátt sé óhollara en sólskinið eigi
ekki við rök að styðjast. Þau
góðu tíðindi hafa borist sóldýrk-
endum að sólböð séu holl og
gagnist líkamanum vel í barátt-
unni gegn krabbameini.
Vísindamenn hafa komist að
því að líkaminn þurfi mjög á D-
vítamíninu að halda sem fæst úr
sólarljósi. Líkaminn vinnur mun
betur úr D-vítamíni sem fer þá
leiðina inn í líkamann en D-
vítamíni sem innbyrt er með
mat eða í töfluformi. Nýjar
rannsóknir sýna að sólarljós
hjálpar líkamanum að verjast
eitilkrabbameini, lungnakrabba-
meini, krabbameini í blöðruháls-
kirtli og jafnvel húðkrabba-
meini. Vísbendingarnar eru
sterkastar um að hæfileg sólboð
verji líkamann gegn ristil-
krabbameini.
Vísindamennirnir sem nú
mæla sterklega með sólböð-
um segja ljóst að kostirnir
séu miklu meiri en gall-
arnir. Þeir benda á að
sólböð virðist verja lík-
amann gegn nokkrum
mjög hættulegum teg-
undum af krabbameini.
Lengi hefur verið vitað
að óhófleg sólboð geta vald-
ið húðkrabbameini en það er
sjaldan lífshættulegt.
Að mati Edward Giovann-
ucci, prófessor í læknadeild
Harvard-háskóla, telur að fyrir
hvert andlát sem verður vegna
húðkrabbameins bjargist þrjá-
tíu líf vegna D-vítamínsins sem
líkaminn fær úr sólarljósinu. - þk
Ekki spara sólböðin
Í ljós hefur komið að þau eru meinholl.
Í SÓL OG SUMARYL Ekki nóg með að þessi kona fái fersklegan lit af sólbaðinu. Hún
er líka að verja sig gegn krabbameini.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
VA
Nákvæmasta
klukka heims
Skeikar um eina sekúndu
á 30 milljörðum ára.
Stundvísi er talin dyggð og þeir
sem leggja metnað sinn í að vera
alltaf á réttum tíma geta nú
glaðst yfir því að búið er að
hanna nákvæmustu klukku
heimsins.
Nýjustu atómklukkur eru svo
nákvæmar að þeim skeikar að-
eins um eina sekúndu á þrjátíu
milljón árum. Slíkri klukku
skeikaði því aðeins um tvær sek-
úndur frá þeim tíma sem liðinn
er síðan risaeðlurnar dóu út.
En ef einhverjir eru svo
stressaðir á stundvísinni að þetta
dugir ekki geta þeir hinir sömu
glaðst yfir því að nú er búið að
hanna klukku sem er þúsund
sinnum nákvæmari. Það þýðir að
klukkunni skeikar aðeins um
eina sekúndu á hverjum 30 millj-
örðum ára, en til gamans má geta
þess að alheimurinn er talinn
vera milli tíu og tuttugu
milljarða ára gamall
samkvæmt kenn-
ingum vísindanna
– en töluvert yngri
samkvæmt sköp-
unarsögu Biblí-
unnar, eða um sex
þúsund ára.
Þeir sem eiga það
til að vera óstundvísir
geta því tæpast kennt klukkunni
um því hægt er að verða sér úti
um úr sem stillir sig sjálfkrafa
miðað við atómklukkur. Þær eru
að vísu ekki eins nákvæmar og
þær allra nýjustu og skeikar þar
um eina sekúndu á nokkrum
milljónum ára. - þk