Fréttablaðið - 25.05.2005, Blaðsíða 41
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2005 17
S K O Ð U N
Katrín Ólafsdóttir
skrifar
Nýlega fór um 200 manna við-
skiptasendinefnd til Kína ásamt
forseta Íslands. Markmið ferðar-
innar var að styrkja tengsl íslensks
atvinnulífs við Kína. En hvernig
stendur á því að svo mörg fyrir-
tæki sáu ástæðu til að taka þátt í
þessari ferð?
Hagvöxtur í Kína hefur verið
gífurlega mikill síðustu ár og útlit
fyrir áframhaldandi vöxt. Þannig
færist Kína hröðum skrefum í átt
að vestrænum ríkjum hvað varðar
stöðu efnahagsmála. Í kjölfarið
hafa lífskjör fólks í Kína batnað til
muna á undanförnum árum, þótt
batinn sé mjög mismikill eftir
svæðum.
Eftir því sem árin líða mun Kína
gegna æ stærra hlutverki í heims-
búskapnum. Fólksfjöldinn er gífur-
legur og eftir því sem lífskjör íbú-
anna batna og ráðstöfunartekjur
aukast er útlit fyrir að þarna opnist
einn stærsti markaður heims fyrir
alls kyns vörur og þjónustu.
Kína gerðist aðili að Alþjóðavið-
skiptastofnuninni (WTO) í lok árs
2001. Með því samþykktu þeir að
gangast undir þær skyldur sem að-
ildinni fylgir, þ.e. að tryggja eðli-
lega viðskiptahætti milli landa.
Jafnframt var nýlega undirritað
samkomulag milli Íslands og Kína
sem er undanfari fríverslunarvið-
ræðna. Með aðild Kína að Alþjóða-
viðskiptastofnuninni og með hugs-
anlegum fríverslunarsamningi Ís-
lands og Kína verða viðskipti þess-
ara þjóða mun greiðari en annars.
Framsýn fyrirtæki leita því
leiða til að tengjast þessum risa-
stóra markaði sem á ekki eftir að
gera annað en að stækka á komandi
árum og áratugum. Sem dæmi má
nefna að stærsti markaður heims-
ins fyrir farsíma er í Kína, þar sem
farsímaeigendur eru ríflega 300
milljón talsins. Þá kaupa Kínverjar
um þriðjung af öllum fartölvum í
heiminum.
En það eru fleiri sóknarfæri en
að selja Kínverjum íslenskar
vörur. Þar sem efnahagsaðstæður
eru mjög mismunandi eftir svæð-
um er víða nóg framboð af vinnu-
afli og launin enn lág. Sem dæmi er
landsframleiðsla á mann í Shang-
hai átta sinnum hærri en lands-
framleiðsla á mann í Sichuan-
héraði. Í Kína eru um 740 milljónir
manna á vinnumarkaðnum, sem er
heldur stærri vinnumarkaður en
hér á landi þar sem eru 156 þúsund
manns. Því eru víða tækifæri til að
framleiða vinnuaflsfrekar vörur
við lítinn kostnað og má geta þess
að Kínverjar framleiða um 60% af
öllum DVD-spilurum í heiminum.
Í ljósi mikillar útrásar íslenskra
fyrirtækja síðustu ár er engin
ástæða til að ætla að við látum hér
staðar numið. Því virðist eðlilegt að
næsta skref verði að snúa sér að
þessum stærsta markaði heims, en
framtíðin ein leiðir í ljós hvort
þessi ferð Íslendinga til Kína hafi
verið ferð til fjár.
Viðskiptatækifæri í Kína
Fasteignir
og kínverskir
peningar
Íslandsbanki spáði því á dögun-
um að fasteignamarkaðurinn
myndi hækka áfram um fimmt-
án prósent á árinu. Ég er alveg
viss um að þetta er rétt hjá
þeim.
Hagfræðingarnir eru alltaf
að glápa á meðaltalið meðan ég
og mínir líkar leitum uppi veð-
hlaupahestana. Það að fasteigna-
markaðurinn hækki að meðaltali
um fimmtán prósent þýðir að
ákveðnar eignir munu hækka
meira. Þá er ég að tala um
stærri eignir og eignir sem eru
vel staðsettar. Ástæðan er sú að
þeim sem eiga fullt af peningum
hefur fjölgað verulega og lána-
möguleikar þeirra sem eiga eitt-
hvað undir sér eru nánast enda-
lausir. Þessi hópur er til í að
borga helling fyrir góðar hæðir
og hús í vesturbænum og mið-
bænum. Einhvern veginn virð-
ast KR-ingar hafa það betra en
aðrir, nema að menn verði sjálf-
krafa KR-ingar af því að vegna
vel í lífinu.
Ég er búinn að tryggja mér
eitt hús í Vesturborginni og
flotta hæð á Laufásveginum. Lit-
háarnir eru á leiðinni og eru
samkvæmt því sem umboðs-
maður þeirra sagði hörkudug-
legir strákar. EES-samningurinn
tryggir að þeir geta unnið hérna
í íbúðunum með þennan líka
hagstæða þjónustusamning upp
á vasann.
Það borgar sig samt ekki að
flikka of mikið upp á íbúðirnar.
Kaupendurnir moka þessu hvort
eð er öllu út. Þær þurfa hins
vegar að líta sæmilega út til
þess að sem hæst verð fáist. Ég
ætla því að koma þessu í sæmi-
legt stand og bíða svo í nokkra
mánuði með að selja. Best væri
náttúrlega að fá einhvern til að
búa í þarna í smá tíma, því það
er alltaf auðveldara að selja íbúð
sem búið er í.
Þótt vorkvöldin séu falleg í
vesturbænum kvað líka vera
fallegt í Kína og maður getur
ekki leyft sér að hugsa bara um
skammtímagróðann. Kínverska
juanið hefur verið fest við doll-
arann í tíu ár. Það fer að koma að
því að það losni um þau tengsl.
Ég er því byrjaður að skipta
krónum í juan til lengri tíma
litið. Maður tekur líklega tíu
prósent í hagnað þegar Kínverj-
ar láta undan Bandaríkjamönn-
um og svo slatta í viðbót þegar
krónan leiðréttir sig. Til lengri
tíma litið er þetta pottþétt fjár-
festing. Kínverski gjaldmiðill-
inn mun bara vaxa að verðmæti
á næstu árum.
Spákaupmaðurinn á horninu
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
Þ J Ó Ð A R B Ú S K A P U R I N N
Í Kína eru um 740 milljónir manna á vinnumarkaðnum,
sem er heldur stærri vinnumarkaður en hér á landi þar
sem eru 156 þúsund manns.