Fréttablaðið - 05.06.2005, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
&Hellur steinar
S. 540 6800
www.steypustodin.is
ÁFRAM BJARTVIÐRI í dag og hægur
vindur en einhverjar líkur á síðdegisskúrum
hér og hvar. Veður 4
SUNNUDAGUR
5. júní 2005 - 150. tölublað – 5. árgangur
Vill nýtt líf
Aron Pálmi Ágústsson segist
bjartsýnn á framtíðina.
Hann ætlar að sækja
sér menntun og móta
sér framtíð í öðru um-
hverfi eftir að hann er
laus mála úr stofu-
fangelsi í Texas.
VIÐTAL 22
ÍSLAND HLAUT 73 VERÐLAUN
Frjálsíflróttakonan Ásdís Hjálmsdóttir kóróna›i eftirminnilega viku
me› flví a› vinna sín önnur gullver›laun en Ísland var me› næstflest
ver›laun á leikunum á eftir K‡pur. ÍÞRÓTTIR 35
MEÐ PENSILINN Á LOFTI
Vilhelm Anton Jónsson FÓLK 46
SMÁÞJÓÐALEIKUNUM Í ANDORRA LAUK Í GÆR
ROKKARINN
VER‹UR MÁLARI
Popparar bjarga heiminum
Hin gamla
glysímynd rokk-
ara og poppara,
þar sem þeim
stendur á sama
um allt nema
dóp og kon-
ur, er fallin.
Rokkarar
eru nú pólitískir
friðarsinnar.
FÓLK 23
Óskabarnið fer á flug
Með kaupum Avion Group á
Eimskipum hverfur félagið
tímabundið af hluta-
bréfamarkaði. Stefnt
er að skráningu
sameinaðs félags
fyrir lok janúar á
næsta ári. Stefnt er
að því að hluthafar
Burðaráss, sem eru
tæplega 20 þúsund fái
þá bréf í Avion.
VIÐSKIPTI 10
VEÐRIÐ Í DAG
Skorradalur:
Sameiningu
hafna› á n‡
SVEITASTJÓRNARMÁL „Þessi niður-
staða kom í raun ekki óvart enda
því sem næst óbreytt frá fyrri
kosningu,“ segir Sveinbjörn Eyj-
ólfsson, formaður sameiningar-
nefndar sveitarfélaga í Borgar-
firði. Skorrdælingar höfnuðu aft-
ur sameiningu við hin sveitarfé-
lögin í Borgarfirði með sama at-
kvæðafjölda og í síðustu kosn-
ingu, 26 voru á móti en 17 fylgj-
andi.
Sveinbjörn segir að málið sé nú
loks komið út af borðinu og sam-
einingarnefndin þurfi ekki lengur
að taka tillit til Skorrdælinga. „Nú
geta hinar sveitirnar komið sér
saman um sína framtíð og nú fer í
hönd meiri vinna vegna þess sem
framundan er enda nóg eftir enn-
þá.“
-aöe
MÖGNU‹
TILBO‹
Á N†JUM VÖRUM
Kaup
2.-5. júní
Sí›asti dagurinn!í i i
Lothar Matthäus, þjálfari Ungverja, biður Íslendinga afsökunar:
Hissa á a› vi› unnum leikinn
FÓTBOLTI Ég hef aldrei fengið jafn
mikið fyrir jafn lítið á mínum
þjálfaraferli, sagði Lothar
Matthäus, landsliðsþjálfari Ung-
verja, eftir að lið hans bar sigur af
því íslenska í fimm marka leik á
Laugardalsvelli í gærkvöldi.
Matthäus sagði að í raun skuldaði
hann Íslendingum afsökunar-
beiðni fyrir það hversu lítið þeir
hefðu fengið út úr leiknum.
Ásgeir Sigurvinsson, landsliðs-
þjálfari Íslands, kvaðst ánægður
með spilamennsku Íslendinga
þrátt fyrir að leikurinn hefði tap-
ast 3-2. Hann sagðist óánægður
með að hafa engin stig fengið úr
leiknum því liðið hefði átt skilið
að landa stigum miðað við spila-
mennskuna.
Eiður Smári Guðjohnsen var
besti maður Íslands í leiknum í
gær. Hann sagði Íslendinga hafa
mætt miklu mótlæti í leiknum.
Þau orð hans koma ekki á óvart
þegar litið er til þess að íslenska
liðið fékk tvö víti dæmd á sig,
missti tvo leikmenn af velli
meidda og einn með rautt spjald.
Sjá síður 32 - 35
Þéttbyggðari Reykjavík:
Úthverfin
væru ekki til
SKIPULAG Öll Reykjavík kæmist
fyrir á svæðinu vestan Elliðaár-
ósa ef byggð utan Hringbrautar
og Snorrabrautar hefði þróast
með sama hætti og byggð innan
þessara gatna.
Íbúðabyggð austan Elliðaárósa
væri varla önnur en bóndabæir og
stöku sumarbústaðir í Árbæ,
Breiðholti, Grafarholti og Grafar-
vogi ef reykvísk íbúðabyggð hefði
þróast með þessum hætti. Þó er
gert ráð fyrir því í þessum út-
reikningum að Reykjavíkurflug-
völlur væri áfram í Vatnsmýrinni
í óbreyttri mynd og að engar
breytingar væru gerðar á at-
vinnu- og útivistarsvæðum.
Í dag búa um 62 þúsund manns
á 891 hektara skipulagðrar
íbúðabyggðar vestan Elliðaárósa
en um 52 þúsund manns á 983
hekturum austan þeirra. Allt
þetta fólk kæmist fyrir vestan
Elliðaárósanna ef sami þéttleiki
væri alls staðar í borginni og er í
101 Reykjavík.
Sjá síður 18 og 19
RÍKISÚTVARPIÐ Ríkissjónvarpið á
tvær íslenskar þáttaraðir sem það
getur ekki sýnt, meðal annars
vegna þess að ekki hefur fengist
heimild til kaupa á efninu.
Anna Th. Rögnvaldsdóttir,
handritshöfundur og leikstjóri
annarrar þáttaraðarinnar, sagði
að upphaflega hefði staðið til að
fyrsti þátturinn af þremur yrði
sýndur sunnudaginn 6. febrúar, en
nú lægi fyrir að þeir yrðu ekki
sýndir fyrr en eftir áramót. „Þetta
var skýrt þannig fyrir okkur að
innlend dagskrárdeild hefði ekki
efni á að bókfæra kaupverðið fyrr
en á næsta fjárhagsári.“
Rúnar Gunnarsson, dagskrár-
stjóri Ríkisútvarpsins, neitaði í
samtali við Fréttablaðið að ætlun-
in hafi verið að sýna þættina í
febrúarbyrjun, þótt svo kunni að
hafa verið nefnt í upphafi.
Þáttaraðirnar eru Kallakaffi og
Allir litir hafsins eru kaldir. Rún-
ar sagði ekki heppilegt að sýna
tvo innlenda þætti á sama tíma og
það væri meðal annars ástæða
þess að sýningar væru óhafnar.
Allir litir hafsins eru kaldir verða
sýndir eftir áramót þegar sýning-
um á Kallakaffi verður lokið. „Það
er góð þjónusta við áhorfendur að
sýna ekki tvo íslenska sjónvarps-
þætti á sama tíma, sagði Rúnar.
„Vetrardagskráin skiptist á tvö
bókhaldsár, fyrir og eftir áramót,
og við hugsum um veturinn sem
heild en ekki bókhaldsárið,“ sagði
Rúnar en vildi ekki staðfesta að
bókhaldið ráði að þættirnir hafi
ekki verið sýndir og ekki heldur
að ekki hefði fengist fjárheimild
til kaupa á öllum þáttunum.
Ákveðið hefur verið að Kalla-
kaffi verði sýnt í haust og Allir lit-
ir hafsins eru kaldir eftir áramót.
Alls kostaði framleiðsla þátt-
anna 120 milljónir króna og Sjón-
varpið hefur greitt sinn hlut að
fullu. Ekki liggur nákvæmlega
fyrir hve há upphæðin var, en hún
mun vera á þriðja tug milljóna. Sá
kostnaður verður ekki gjaldfærð-
ur í bókhaldi RÚV fyrr en eftir
áramót. Samkvæmt bókhaldskerfi
stofnunarinnar er kostnaður
vegna dagskrárgerðar ekki gjald-
færður fyrr en efnið er sýnt. Sam-
kvæmt heimildum er treyst á að
fjárheimildir fáist áður en allt
efnið verður sýnt. -grs
RÚV keypti flætti
án fjárheimilda
Tvær fullunnar íslenskar sjónvarpsfláttara›ir bí›a s‡ninga hjá Sjónvarpinu,
önnur fram yfir áramót. Ríkisútvarpi› hefur greitt flættina. Ekki hefur fengist
heimild til kaupanna og fless vegna flarf a› bí›a me› s‡ningar.
ALLIR LITIR HAFSINS ERU KALDIR
Úr þáttaröðinni Allir litir hafsins eru kaldir,
sem hefur verið sett í geymslu fram yfir
áramót.
FYRSTA MARKIÐ AÐ LÍTA DAGSINS LJÓS Íslendingar komust yfir með marki Eiðs Smára Guðjohnsen á átjándu mínútu.
Markið skoraði hann eftir mikla baráttu í vítateig Ungverja.