Fréttablaðið - 05.06.2005, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 05.06.2005, Blaðsíða 56
FÓTBOLTI Leikurinn fór mjög rólega af stað og bæði lið fórnuðu fáum mönnum í sóknina. Það var í raun lítið sem ekkert að gerast þegar Eiður Smári kom Íslandi yfir. Ör- lítill heppnisstimpill var á markinu en boltinn féll óvænt fyrir fætur Eiðs í teignum sem gat vart annað en skorað. Markið virkaði eins og vítamínssprauta á íslenska liðið sem óx verulega ásmegin í kjölfar- ið. Næstu 15 mínútur voru þær bestu hjá íslenska liðinu í und- ankeppninni. Þær spilaði liðið af áður óséðu sjálfstrausti. Leikmenn voru óragir við að taka andstæð- inginn á og pressan að marki Ung- verja þyngdist með hverri mínútu. Þrátt fyrir það sáust engin færi. Það var síðan eins og vænt kjaftshögg þegar Ungverjar jöfn- uðu rétt fyrir hlé og íslenska liðið varð að sætta sig við jafna stöðu í leikhléi þrátt fyrir að hafa verið mun betri aðilinn í leiknum. Vendi- punktur leiksins kom á 56. mínútu þegar Ungverjar fengu aðra víta- spyrnu. Haraldur Freyr virtist brjóta á einum Ungverjanum en portúgalski dómarinn skráði brot- ið á Ólaf Örn sem fékk fyrir vikið sitt annað gula spjald í leiknum og þar með það rauða. Gera skoraði úr vítinu og Ungverjar mjög óverðskuldað komnir með öll tök á leiknum. Íslenska liðið neyddist til að gera taktískar breytingar á leik sínum. Stefán fór í stöðu Ólafs og Eiður bakkaði inn á miðjuna til Brynjars. Ísland hefði átt að fá víti á 65. mínútu en dómarinn lét sér nægja að dæma aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Hana tók Eiður Smári og skot hans endaði í stöng- inni. Betur gekk fjórum mínútum síðar þegar Kristján Örn Sigurðs- son afgreiddi sendingu Eiðs Smára á snilldarlegan hátt í netið. Ísland búið að jafna manni færri og þar að auki miklu betri aðilinn í leikn- um. Ungverjar skoruðu síðan enn eina ferðina gegn gangi leiksins á 73. mínútu. Brynjar Björn tapaði boltanum á slæmum stað, Ung- verjar keyrðu hratt upp og Huszti renndi boltanum í netið. Þetta var þriðja skot Ungverja sem fór á markið og það fyrsta í venjulegum leik. Öll þessi skot enduðu því mið- ur í íslenska markinu. Grátleg nið- urstaða. Það var algjör óþarfi að tapa þessum leik enda eru Ungverjar ekki með sérstakt lið og það bauð upp á lítið sem ekkert í Dalnum í gær. Samt gekk það af velli með öll stigin. Það segir meira en mörg orð um íslenska liðið sem var á köflum klaufalegt í vörninni og það vantaði oftar en ekki herslumuninn og vel það í sóknar- leiknum. Það var frábært að sjá til ís- lenska liðsins eftir að Eiður Smári fór á miðjuna og það er með ólík- indum að landsliðsþjálfararnir hafi ekki látið hann byrja leikinn á miðjunni. Þar hefur hann farið á kostum með Chelsea og leikur ís- lenska liðsins var bestur eftir að hann kom á miðjuna, og það þrátt fyrir að Ísland væri manni færri. Það segir líka meira en mörg orð um stöðu, og spilmennsku, ís- lenska landsliðsins í dag að þrátt fyrir tapið var þetta besti leikur liðsins í háa herrans tíð. Það verð- ur fróðlegt að sjá hvernig leik- menn bregðast við þessu tapi gegn Möltu á miðvikudag. henry@frettabladid.is Sorglegt tap gegn slökum Ungverjum 5. júní 2005 SUNNUDAGUR Íslenska landsli›i› í knattspyrnu er enn án sigurs í undakeppni HM eftir grátlegt tap gegn Ungverjum á Laugardalsvelli, 2-3. Ungverjar fengu tvö víti og Ísland missti flrjá menn meidda af velli. > Við finnum til með ... Pétri Marteinssyni sem er væntanlega ökklabrotinn eftir slæma byltu í landsleiknum gegn Ungverjum. Pétur hefur verið að spila lykil- hlutverk með Hammarby í sænsku úrvalsdeildinni en missir nú líklega af tímabilinu. Forföll gegn Möltu ... Íslenska landsliðið missir hugsanlega fjóra byrjunarliðsmenn út úr leiknum gegn Möltu á miðvikudaginn. Ólafur Örn Bjarnason og Indriði Sigurðsson verða í banni og Pétur Marteinsson og Gylfi Einarsson eru meiddir. 60 SEKÚNDUR Hvernig tilfinning er að vera kall- aður The Herminator? Mér finnst það frekar fyndið. Það er meira jákvætt en neikvætt. Hvernig er að falla? Ég man það ekki. Það er svo langt síðan. Tryggvi Guðmunds er... ... Kojak. Eyjar eða London? Eyjar. Eiður Smári er... ... næstbestur í backgammon. Bakvörður eða miðvörður? Alveg sama. Hermann Hreiðarsson er? Hinn hvíti Michael Jordan. Stórmót með landsliði eða bikar með Charlton? Stórmót með landsliði. Fyrirmynd? Það var alltaf Bryan Robson en hélt síðar upp á Cantona. Erfiðasti andstæðingur? Tryggvi Guðmundsson í handbolta. Hvort er Henry eða Nistelrooy auðveldari? Eigum við ekki að segja að Nistelrooy sé auðveldari. Besti samherjinn? Davíð Pálsson í körfubolta. MEÐ HERMANNI HREIÐARSSYNI sport@frettabladid.is EIÐUR SMÁRI Á FULLRI FERÐ Eiður Smári Guðjohnsen var mörgum klössum fyrir ofan aðra leikmenn á Laugardalsvellinum. Hér fer hann illa með Ungverja en Eiður Smári skoraði í gær í fjórða leiknum í röð í Laugardalnum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 32 > Við dáumst af ... .... Eið Smára Guðjohnsen, sem átti frábæran leik gegn Ungverjum og sýndi af hverju hann er að spila stórt hlutverk í einu besta liði heims. Eiður Smári jafnaði föður sinn í öðru sæti yfir markahæstu landsliðsmenn Íslands frá upphafi. Aðeins óheppni kom í veg fyrir að við bættum fleiri mörkum við. Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins, átti stórleik í gær: FÓTBOLTI „Það er alltaf sárt að tapa, sérstaklega þegar maður hefur vanist því að vinna. Spila- mennska okkar var engu að síður mjög góð og mun betri en í síð- ustu leikjum. Andinn í liðinu var mjög góð- ur og oft var mjög góður fótbolti á köflum. Mótlætið var þó mikið, til dæmis hvað varðar dómarana. Við misstum mann útaf en létum ekki deigan síga og náðum að jafna, svo kom smá einbeitingar- leysi undir lokin þegar við feng- um á okkur þriðja markið. Ég var alls ekki sáttur við dómarann í þessum leik og hef ekki meira um það að segja.“ sagði Eiður Smári fljótlega eftir leikinn en hann fékk að líta gult spjald í síðari hálfleik fyrir mótmæli. Þrátt fyrir langt og strangt tímabil með Chelsea var Eiður mjög frískur í leiknum, skoraði gott mark og hefði getað sett fleiri með smá heppni. „Ég var óheppinn að ná ekki að setja fleiri mörk, átti þarna aukaspyrnu sem hafnaði í samskeytunum og svo fékk ég færi sem ég hefði kannski átt að klára betur en boltinn skoppaði svolítið asnalega akkúrat í skrefinu hjá mér.“ sagði Eiður og var skiljanlega fúll á svip yfir því að ekkert stig hafi skilað sér í hús í þessum leik. „Nú þurfum við bara að ná okkur strax eftir þetta svekkelsi og koma vel stemmdir í næsta leik, með þessari spilamennsku ættum við ekki að verða í teljandi erfiðleikum gegn Möltu en hugar- farið þarf að vera rétt.“ sagði Eið- ur Smári Guðjohnsen. -egm fia› var miki› mótlæti í flessum leik 2-3 Laugardalsvöllur Batista, Portúgal (4) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 10–6 (6–3) Varin skot Árni Gautur 0 – Kiraly 3 Horn 3–5 Aukaspyrnur fengnar 24–24 Rangstöður 1–2 1–0 Eiður Smári Guðjohnsen (18.) 1–1 Zoltan Gera, víti (45.) 1–2 Zoltan Gera, víti (56.) 2–2 Kristján Örn Sigurðsson (68.) 2–3 Huzsti Szaboics (73.) Ísland Ungverjaland FRAMMISTAÐAN MARKIÐ: ÁRNI GAUTUR ARASON 4 Reyndi ekkert á hann í leiknum. Einu skotin sem komu á markið fóru inn. VÖRNIN: KRISTJÁN ÖRN SIGURÐSSON 7 Skoraði fallegt mark og var skynsamur. Vel meðvitaður um sín takmörk. PÉTUR MARTEINSSON 5 Gerðist lítið þær mínútur sem hann lék. (25., Haraldur Freyr Guðmundsson, 6): Skilaði ágætu starfi í sínum fyrsta leik. ÓLAFUR ÖRN BJARNASON 7 Spilaði eins og hann gerir best – skyn- samlega og án allrar áhættu. Steig vart feilspor og var óheppinn að fá rautt spjald. INDRIÐI SIGURÐSSON 6 Átti mjög góðan fyrri hálfleik. Kom með mikinn kraft, sjálfstraust og fínar sending- ar. Hvarf sjónum í síðari hálfleik. MIÐJAN: BRYNJAR BJÖRN GUNNARSSON 5 Barðist vel og skilaði sínu varnarlega. Skilaði boltanum illa frá sér og tapaði boltanum á slæmum stað í sigurmarkinu. STEFÁN GÍSLASON 6 Lítill nýliðabragur á Stefáni sem virkaði rólegur og yfirvegaður. Skilaði bolta ágæt- lega en skilaði varnarskyldunum ekki vel. GRÉTAR RAFN STEINSSON 7 Kom með fítonskraft í liðið og fór með góðu fordæmi sem smitaði aðra. Skilaði bolta vel og var verulegur missir af hon- um í seinni hálfleik. (46., Kári Árnason, 6): Var alls óhræddur og gaf allt sem hann átti. Var nálægt því að skora. Yfir litlu að kvarta hjá honum. GYLFI EINARSSON 3 Komst aldrei í neinn takt við leikinn og var slakur. (50., Gunnar Heiðar Þor- valdsson, 6): Kom með kraft í framlínu Íslands. Var óþreytandi og lagði upp færi fyrir Eið sem hann átti að nýta. ARNAR ÞÓR VIÐARSSON 3 Mjög dapur. Var spyrnumaður liðsins í leiknum en sást annars ekkert. Ógnaði aldrei og var farþegi í 90 mínútur. SÓKNIN: EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN 9 Mörgum klössum fyrir ofan aðra leikmenn á vellinum. Það sást best þegar hann kom á miðjuna og Ísland var manni færri. Þá tók hann leikinn í sínar hendur og mataði félaga sína trekk í trekk. Hélt bolta vel og fiskaði aukaspyrnur sem leyfðu Íslending- um að komast upp völlinn. DEILT VIÐ DÓMARANN Eiður Smári Guðjohnsen fékk gult spjald fyrir að deila við dómarann í gær. Ein af mörgum furðulegum ákvörðum dómarans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.