Fréttablaðið - 05.06.2005, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 05.06.2005, Blaðsíða 41
TILKYNNINGAR 9ATVINNA 9 Bílstjórar með meirapróf Mjólkurbú MS/MBF í Reykjavík óskar eftir að ráða 2 bílstjóra til söfnunar og flutnings mjólkur frá framleiðendum til Reykjavíkur. Um er að ræða framtíðarstörf hjá traustu fyrirtæki. Viðkomandi þarf að hafa meirapróf og geta byrjað sem fyrst. Aðsetur bíla er í Borgarnesi. Nánari upplýsingar veitir dreifingarstjóri í síma 569-2200. Umsóknir skulu berast til Mjólkurbús MS/MBF í Reykjavík eigi síðar en 8. júní nk. Hægt er að senda umsóknir á netfangið starfsmannasvid@msmbf.is eða fá sent sérstakt umsóknareyðublað. Útboð HRY-30 Aðveitustöð Hryggstekkur Launaflsvirki Landsnet óskar eftir tilboðum í +/- 30 Mvar launaflsvirki með tilheyrandi rofabúnaði, aflspenn- um, stjórn- og varnarbúnaði vegna stækkunar aðveitustöðvarinnar á Hryggstekk í samræmi við útboðsgögn HRY-30. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsnets, Krók- hólsi 5c, 110 Reykjavík frá og með mánudeginum 6. júní 2005. Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsnets, Krókhólsi 5c, 110 Reykjavík fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 6. júlí 2005 kl. 15:00 sama dag verða þau opnuð að Krókhálsi 5c, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Hárgreiðslustofa. Af sérstökum ástæðum er hárgreiðslustofa til sölu á svæði 170. Húsnæðið er bjart og rúmgott. Mjög góð bílastæði. Stofan hefur verið starfrækt í rúm 20 ár af sama aðila. Hagstætt verð! Upplýsingar í síma 562 6065 & 897 0365. Basar og vöfflusala á Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði Kaffi og vöfflusala verður á Sjómannadaginn 5. júní frá kl. 14:00 til 17:00 Handavinnusýning og sala frá kl. 13:00 til 17.00 og mánudaginn 6. júní kl. 9-16. Allir hjartanlega velkomnir Heimilisfólk Hrafnistu AUGLÝSING frá Yfirkjörstjórn Seltjarnarneskaupstaðar Reglur um framkvæmd íbúakosningar um tillögur H og S vegna deiliskipulags Hrólfsskálamels og Suðurstrandar 1. Kjördagur er laugardagurinn 25. júní 2005 skv. ákvörðun bæjarstjórnar Seltjarnarness. 2. Niðurstaða kosningar er bindandi fyrir bæjarstjórn Seltjarnar- ness fyrir gerð formlegs deiliskipulags fyrir umrædd svæði, þ.e. Hrólfsskálamel og Suðurströnd. 3. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum en engin tiltekin ákvæði um lágmarksþátttöku eru sett. 4. Rétt til þátttöku hafa allir Seltirningar á kosningaaldri þ.e. 18 ára og eldri á kjördegi, sbr. II. kafli laga nr. 5/1998 um kosn- ingar til sveitarstjórna. 5. Kosið verður í Valhúsaskóla. Kjörstaður opnar kl. 09.00 á kjör- dag og lokar kl. 22.00. 6. Kjörskrá liggur frammi á bæjarskrifstofum Seltjarnarnesbæjar, Austurströnd 2, frá og með 14 júní 2005. 7. Unnt verður að greiða atkvæði utan kjörfundar. Atkvæða- greiðsla utan kjörfundar verður á bæjarskrifstofum Seltjarnar- nesbæjar, Austurströnd 2, dagana 6. júní – 24. júní 2005 frá 12:00 til 19:00. 8. Að öðru leyti, þar sem það á við, verður við framkvæmd kosningarinnar tekið mið af lögum nr. 6/1998 um kosningar til sveitarstjórna. Seltjarnarnesi, 30.05.2005. MENNTASKÓLINN VIÐ HAMRAHLÍÐ INNRITUN nýrra nemenda fyrir haustönn 2005 lýkur 14. júní. Dagana 13. og 14. júní geta umsækjendur fengið aðstoð við frágang umsókna og frekari upplýs- ingar um námsval, hraðferðir o.fl. Opið kl. 9- 18. HLUTVERK MH er að mennta nemendur til stúdents- prófs með áherslu á undirbúning fyrrir nám í háskól- um. MARKMIÐ MH er velgengni brautskráðra nemenda og að skólinn sé fyrirmynd um framsækna kennslu, góða stjórnsýslu og rækt við menningu og listir. LEIÐARLJÓS MH eru að virða ólíkar þarfir einstak- linga og ganga út frá vilja nemenda til að axla ábyrgð. Áhersla er lögð á fjölbreytni í valhluta námsins og kappkostað er að kynna nemendum vinnubrögð sem tíðkast í háskólanámi. NÁMSKIPULAG er sveigjanlegt og býður m. a. upp á breidd í menntun, dýpkun á afmörkuðum sviðum og nám til viðbótar 140 einingum eftir því sem nemandi kýs. Nemendur sem stunda nám á tónlistar- eða list- dansnám eiga möguleika á að fá það metið inn á kjörsvið. NÁMSTÍMI er háður vilja og getu nemandans en er að lágmarki 3 ár að loknu grunnskólaprófi á öllum brautum. NÁMSBRAUTIR eru félagsfræðabraut, málabraut, náttúrufræðibraut og alþjóðleg námsbraut (IB) sem lýkur með International Baccalaureate Diploma. IB nám er 3 ára stúdentsprófsnám fyrir dugmikla nemendur. Að loknu undirbúningsári tekur við tveggja ára nám sem lýkur með samræmdu alþjóðlegu stúd- entsprófi. Kennsla og próf eru á ensku. Námið nýtur virðingar um heim allan og fullyrða má að góðar IB Diploma einkunnir opni flestar háskóladyr. UPPLÝSINGAR fást í síma skólans 595 5200 og á heimasíðunni: http://www.mh.is Fyrirspurnir um IB nám má senda á netfangið ibstall- ari@mh.is Rektor
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.