Fréttablaðið - 05.06.2005, Qupperneq 49
SUNNUDAGUR 5. júní 2005 25
365 kúamyndir eftir Jón Eiríksson, bónda og listamann á Búrfelli í Húnaþingi vestra
Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is
og í síma 515 9000.
Opið alla virka daga í sumar frá kl. 13-17 og um helgar frá kl. 13-18.
M
IX
A
•
fí
t
•
5
0
7
2
2
Ár og kýr!
Ljósafossstöð opnar sunnudaginn 5. júní kl. 13.00
Samkór Selfoss syngur í Ljósafossstöð
kl. 15.00 á opnunardaginn.
Stjórnandi kórsins er Keith Reed.
Heitt á könnunni.
Tilvalinn sunnudagsbíltúr.
Verið velkomin.
„Það skiptir engu máli hvað ger-
ist. Þegar allt kemur til alls er það
rokkið sem bjargar heiminum,“
Þetta lét Pete Townsend, gítar-
leikari Who, hafa eftir sér. Popp-
arar og rokkarar hafa orðið æ
meira áberandi í stjórnmálalífinu
og liggja ekki á skoðunum sínum.
Þeir eru hávær hópur sem nota
listina til að koma sjónarmiðum
sínum á framfæri. Sitt sýnist þó
hverjum um áhrifamátt þeirra og
telja margir að þótt aðdáendur
þeirra flykkist á tónleika með
þeim sé ekki víst að þeir fylgi
þeim að skoðunum.
Hungurpopparinn Bob Geldof
tilkynnti á dögunum að hann
hugðist endurtaka ævintýrið frá
1985 þegar tónlistarmenn komu
saman undir nafninu „Haldið þið
kjafti og komið með peningana“.
Vakin var athygli á hungursneyð-
inni í Afríku og milljónir söfnuð-
ust í átakinu. Engum dylst hvílíkt
átak þetta var en þetta voru þó
bara styrktartónleikar. Diana
prinsessa var meira að segja á
tónleikunum. Geldof sagði sjálfur
þá sögu að leikstjórinn Richard
Curtis hefði fengið meiri pening
fyrir Afríku úr teboði hjá Mitter-
and en söfnuðust á LiveAid.
Popparar mótmæla
Live 8 tónleikarnir sem haldnir
verða 2. júli eru af allt öðru meiði
en LiveAid. Á tónleikunum safn-
ast saman fólk með sömu stjórn-
málaskoðun: Að átta ríkustu lönd
heims eigi að frysta skuldir þró-
unarríkjanna. Þetta verður engin
fjársöfnun heldur mótmæli gagn-
vart stefnu G8.
Þrátt fyrir að framtak Bob
Geldof sé hvað þekktast er hann
síður en svo eini tónlistarmaður-
inn sem hefur notað tónlistina til
þess að koma sjónarmiðum sínum
á framfæri. Tónlistarmaðurinn
Sting berst gegn eyðingu regn-
skóganna og hefur bjargað svæð-
um sem eru stærri en Belgía.
Engu að síður hefur hann verið
gagnrýndur fyrir að vera full ein-
strengislegur.
Þegar Íraksstríðið braust út
voru tónlistarmenn ekki á eitt
sáttir við stefnu Bandaríkjanna
og Breta. George Micheal samdi
lagið Shoot the Dog til að mót-
mæla afstöðu Breta í Íraksstríð-
inu. Myndbandið við það sýndi
Tony Blair sem litla hundinn hans
Bush en Michael varð fyrir svo
miklu aðkasti í Bandaríkjunum að
hann neyddist til að flýja land.
Bandaríkjamenn og Bretar eiga
enn í stríði í Írak.
Andstaðan gegn Bush
Þegar George W. Bush sóttist eft-
ir endurkjöri reyndu fjölmargir
tónlistarmenn að fá óákveðna
kjósendur til að kjósa Kerry.
Bruce Springsteen sameinaðist
Dixie Chick í andstöðu sinni við
George Bush. Repúblikanar svör-
uðu því með að kalla „Þegiði og
syngið“. REM tók þátt í þessari
baráttu en Micheal Stipe viður-
kenndi síðar meir, að það væri
ómöglegt fyrir poppara að fá óá-
kveðna kjósendur í jafn stóru ríki
og Bandaríkjunum til þess að snú-
ast á sveif með þeim. Eminem
gekk þó skrefinu lengra og taldi
sigur Bush vera sér að kenna.
Hann hefði með lagi sínu frekar
styrkt stöðu forsetans en hitt.
Söngvari U2, Bono, orðaði að-
stöðu poppara ef til hvað best þeg-
ar hann ávarpaði Verkamanna-
flokkinn. „Ykkur finnst kannski
fáranlegt að rokkstjarna standi
hér og vilji að ákveðnir hlutir séu
gerðir. Ég er hins vegar í þeirri
aðstöðu að ég get sagt hvað sem
er og ef einhverjum líkar það ekki
flýg ég bara til Suður Frakklands.
Við eigum að geta treyst ykkur
því hver treystir rokkstjörnu?“ ■
Karl Bretaprins
heiðrar fyrirsætur
Popparar bjarga heiminum
Hin gamla glysímynd rokkara og poppara, þar sem
þeim virtist standa á sama um allt nema dóp og
konur, er fallin. Nú eru rokkarar pólitískir, vilja
heimsfrið, mat handa öllum og gagnrýna stjórn-
málamenn við hvert tækifæri. Spurningin er bara:
Hlustar einhver á þá?
STIPE OG SPRINGSTEEN Snéru bökum saman og reyndu að koma í veg fyrir að Bush
yrði endurkjörinn. Þeim varð ekki að ósk sinni.
BONO OG BUSH Bono hefur verið öt-
ull í margvíslegum baráttumálum og
meðal annars hefur hann þrýst á
kaþólsku kirkjuna að leyfa smokka.
KARL OG CAMILLA Stolt af hugmyndaauðgi breskra kvenna.
Karl Bretaprins og eiginkona
hans, Camilla, héldu veislu til
heiðurs ólíklegustu kynbombum
Bretlands, Dagatalsstúlkunum.
Dagatalsstúlkurnar eða The
Calendar Girls eru allt konur,
komnar af léttasta skeiði, sem
gerðu garðinn frægan þegar þær
ákváðu að sitja fyrir naktar á
dagatali til styrktar krabbameins-
sjúkum. Um þetta uppátæki
þeirra var gerð mynd sem leik-
konan Helen Mirren lék aðalhlut-
verið í en dagatalið vakti heimsat-
hygli og hefur selst í yfir 320 þús-
und eintökum. Karl og Camilla
heiðruðu þær fyrir vel unnin störf
enda hafa fyrirsæturnar síungu
nú safnað yfir einni milljón
punda. „Þetta er alveg dásamleg-
ur dagur. Hver myndi ekki vilja
hitta prinsinn og hertogaynj-
una?,“ sagði Angela Baker, en
dauði eiginmanns hennar úr
krabbameini var innblásturinn að
dagatalinu. Prinsinn hló og gant-
aðist með kjarnakonunum enda
vert tilefni til þess að gleðjast. ■