Fréttablaðið - 05.06.2005, Qupperneq 41
TILKYNNINGAR 9ATVINNA
9
Bílstjórar með meirapróf
Mjólkurbú MS/MBF í Reykjavík óskar eftir
að ráða 2 bílstjóra til söfnunar og flutnings
mjólkur frá framleiðendum til Reykjavíkur.
Um er að ræða framtíðarstörf hjá traustu fyrirtæki.
Viðkomandi þarf að hafa meirapróf og geta byrjað
sem fyrst. Aðsetur bíla er í Borgarnesi.
Nánari upplýsingar veitir dreifingarstjóri í síma
569-2200.
Umsóknir skulu berast til Mjólkurbús MS/MBF í
Reykjavík eigi síðar en 8. júní nk. Hægt er að senda
umsóknir á netfangið starfsmannasvid@msmbf.is
eða fá sent sérstakt umsóknareyðublað.
Útboð HRY-30
Aðveitustöð Hryggstekkur
Launaflsvirki
Landsnet óskar eftir tilboðum í +/- 30 Mvar
launaflsvirki með tilheyrandi rofabúnaði, aflspenn-
um, stjórn- og varnarbúnaði vegna stækkunar
aðveitustöðvarinnar á Hryggstekk í samræmi við
útboðsgögn HRY-30.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsnets, Krók-
hólsi 5c, 110 Reykjavík frá og með mánudeginum 6. júní
2005.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsnets, Krókhólsi 5c,
110 Reykjavík fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 6. júlí 2005
kl. 15:00 sama dag verða þau opnuð að Krókhálsi 5c, að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Hárgreiðslustofa.
Af sérstökum ástæðum er hárgreiðslustofa til sölu á
svæði 170. Húsnæðið er bjart og rúmgott. Mjög góð
bílastæði. Stofan hefur verið starfrækt í rúm 20 ár
af sama aðila. Hagstætt verð!
Upplýsingar í síma 562 6065 & 897 0365.
Basar og vöfflusala á Hrafnistu
í Reykjavík og Hafnarfirði
Kaffi og vöfflusala verður á Sjómannadaginn 5. júní frá
kl. 14:00 til 17:00 Handavinnusýning og sala frá kl. 13:00
til 17.00 og mánudaginn 6. júní kl. 9-16.
Allir hjartanlega velkomnir
Heimilisfólk Hrafnistu
AUGLÝSING
frá Yfirkjörstjórn
Seltjarnarneskaupstaðar
Reglur um framkvæmd íbúakosningar um
tillögur H og S vegna deiliskipulags
Hrólfsskálamels og Suðurstrandar
1. Kjördagur er laugardagurinn 25. júní 2005 skv. ákvörðun
bæjarstjórnar Seltjarnarness.
2. Niðurstaða kosningar er bindandi fyrir bæjarstjórn Seltjarnar-
ness fyrir gerð formlegs deiliskipulags fyrir umrædd svæði, þ.e.
Hrólfsskálamel og Suðurströnd.
3. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum en engin tiltekin
ákvæði um lágmarksþátttöku eru sett.
4. Rétt til þátttöku hafa allir Seltirningar á kosningaaldri þ.e. 18
ára og eldri á kjördegi, sbr. II. kafli laga nr. 5/1998 um kosn-
ingar til sveitarstjórna.
5. Kosið verður í Valhúsaskóla. Kjörstaður opnar kl. 09.00 á kjör-
dag og lokar kl. 22.00.
6. Kjörskrá liggur frammi á bæjarskrifstofum Seltjarnarnesbæjar,
Austurströnd 2, frá og með 14 júní 2005.
7. Unnt verður að greiða atkvæði utan kjörfundar. Atkvæða-
greiðsla utan kjörfundar verður á bæjarskrifstofum Seltjarnar-
nesbæjar, Austurströnd 2, dagana 6. júní – 24. júní 2005 frá
12:00 til 19:00.
8. Að öðru leyti, þar sem það á við, verður við framkvæmd
kosningarinnar tekið mið af lögum nr. 6/1998 um kosningar
til sveitarstjórna.
Seltjarnarnesi, 30.05.2005.
MENNTASKÓLINN VIÐ HAMRAHLÍÐ
INNRITUN nýrra nemenda fyrir haustönn 2005 lýkur
14. júní. Dagana 13. og 14. júní geta umsækjendur
fengið aðstoð við frágang umsókna og frekari upplýs-
ingar um námsval, hraðferðir o.fl. Opið kl. 9- 18.
HLUTVERK MH er að mennta nemendur til stúdents-
prófs með áherslu á undirbúning fyrrir nám í háskól-
um.
MARKMIÐ MH er velgengni brautskráðra nemenda
og að skólinn sé fyrirmynd um framsækna kennslu,
góða stjórnsýslu og rækt við menningu og listir.
LEIÐARLJÓS MH eru að virða ólíkar þarfir einstak-
linga og ganga út frá vilja nemenda til að axla ábyrgð.
Áhersla er lögð á fjölbreytni í valhluta námsins og
kappkostað er að kynna nemendum vinnubrögð sem
tíðkast í háskólanámi.
NÁMSKIPULAG er sveigjanlegt og býður m. a. upp á
breidd í menntun, dýpkun á afmörkuðum sviðum og
nám til viðbótar 140 einingum eftir því sem nemandi
kýs. Nemendur sem stunda nám á tónlistar- eða list-
dansnám eiga möguleika á að fá það metið inn á
kjörsvið.
NÁMSTÍMI er háður vilja og getu nemandans en er
að lágmarki 3 ár að loknu grunnskólaprófi á öllum
brautum.
NÁMSBRAUTIR eru félagsfræðabraut, málabraut,
náttúrufræðibraut og alþjóðleg námsbraut (IB) sem
lýkur með International Baccalaureate Diploma.
IB nám er 3 ára stúdentsprófsnám fyrir dugmikla
nemendur. Að loknu undirbúningsári tekur við tveggja
ára nám sem lýkur með samræmdu alþjóðlegu stúd-
entsprófi. Kennsla og próf eru á ensku. Námið nýtur
virðingar um heim allan og fullyrða má að góðar IB
Diploma einkunnir opni flestar háskóladyr.
UPPLÝSINGAR fást í síma skólans 595 5200 og á
heimasíðunni: http://www.mh.is
Fyrirspurnir um IB nám má senda á netfangið ibstall-
ari@mh.is
Rektor